|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Valur trois points |
| Höfundur: Tryggvi Jónsson | ||||||
| Miðvikudagur, 26. maí 2010 14:09 | ||||||
|
Hera trekkir meira en Grindavík
Loksins hafðist það. Gunnlaugur Jónsson er búinn að draga sinn fyrsta sigur í hús en það mátti varla á tæpara standa. Tvö mörk dugðu gegn stigalausum heimamönnum í Grindavík sem hefðu vel getað stolið stigi á lokamínútnum. Um 700 áhorfendur mættu samkvæmt fjölmiðlum og alveg allt í lagi mæting hjá Völsurum. Illar tungur vildu meina að einhverjir væru að láta forkeppni Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva þvælast fyrir sér. Það verður látið liggja á milli hluta enda aðal málið að ná í sem flest stig í boltanum sem öðrum keppnum. Það var rjómablíða í Grindavík í gær og stúkan góða sá áhorfendum fyrir skjóli frá hinni þrálátu golu sem einkennir Suðurnesin. Draumaaðstæður fyrir aðkomulið þótt heimamenn séu því eflaust ósammála og sennilega einhverjir gamlir Skagamenn í herbúðum Vals. Gunnlaugur stokkaði liðið upp frá síðasta leik en Martin Pederesen var færður í stöðu Hauks Páls á miðjunni og í stað Martins kom Glenn Ross í bakvörðinn og stóð sig með prýði. Jón Vilhelm var síðan settur í stöðu Ian Jeffs og gekk nokkuð vel. Valsmenn léku undan vindi í fyrri hálfleik en færðu sér veðrið ekkert sérstaklega í nyt. Talsverð stöðubarátta var milli liðanna og hvorugt þeirra náði neinum sérstökum tökum á boltanum en okkar menn voru kannski skömminni skárri en heimamenn. Valsliðið átti í hefðbundum erfiðleikum við að koma boltanum frá varnarmönnum og upp vallarhelming andstæðinganna en Grindjánar gáfu okkar mönnum lítinn tíma á boltann. Fyrri hálfleikur var þó tíðindalítill fyrir utan þegar Rúnar Már Sigurjónsson, Skagfirðingurinn í liði Vals, átti góðan sprett, lék framhjá varnarmönnum Grindavíkur og átti síðan skot sem hristi netmöskvana. Valsarar í stúkunni voru ekki alveg vissir hvort þeir ættu að fagna eður ei en boltinn fór aðeins í hliðarnetið og liðin skildu því jöfn þegar bláisð var til leikhlés.
Skagamenn kunna vel við sig hjá Val. Jón Vilhelm nýtti tækifærið í gær
Reynir Leósson fór meiddur út af í hálfleik og Gunnlaugur skipti inn á hinum aldna leiðtoga Sigurbirni Hreiðarssyni og færði Martin Pedersen í miðvarðarstöðuna. Bjössi virkar ferskur í ár og kom með nýja vinkla inn í leik liðsins. Valsmenn héldu áfram að vera með undirtökin en án þess að stjórna lögum og lofum á vellinum. Eftir um 60 mínútna leik gaf Grindavíkurvörnin sig þegar Danni Köning skoraði ódýrt mark af stutt færi eftir sendingu frá Baldri Aðalsteins. Svo virtist sem að varnarmenn heimamanna hafi treyst á að markvörður þeirra myndi afgreiða lausa sendingu Baldurs en þess í stað stóð Köning einn á auðum sjó inn í markteignum. Sennilega mun hann ekki skora auðveldara mark í sumar.
Scott Ramsey sló á létta strengi
0-1 fyrir Val og næstu mínútur lofuðu góðu. Valsmenn héldu áfram að sækja og tæpum 10 mínútum eftir fyrsta markið brá Atli Sveinn sér í sóknina þegar Valur átti innkast rétt við hornfánann. Atla var ætlað skalla boltanum aftur fyrir sig eins og sést hefur nokkrum sinnum í sumar en áhorfendur voru mishrifnir af þessari taktík. Aftarlega í stúkunni heyrðist einn efasemdamaður segja: "Af hverju er alltaf verið að senda hann Atla fram í þessum innköstum? Hvenær á þessari sögu að ljúka?" - "Þetta er framhaldssaga! " svaraði Óttar Felix Hauksson að bragði með sinni hvellu og auðþekkjanlegu rödd. Aðrir Valsarar glottu við fót en fáum var þó hlátur í hug nokkrum sekúndum síðar. Grindvíkingar unnu boltann eftir innkastið og geystust fram. Giles Ondo komst inn fyrir Valsvörnina sem einhverja hluta vegna vantaði einn burðarstólpann og lagði boltann snyrtilega framhjá Kjartani. Sannarlega var fussað og sveijað yfir þessari taktík Valsliðsins en menn þurftu þó ekki að svekkja sig of lengi. Valsarar hófu leik að nýju og eftir smá barning á miðjunni vann Danni Köning boltann og sendi út á hægri kantinn á Sigurbjörn. Bjössi losaði sig við varnarmann Grindavíkur og lék boltanum í átt að endalínu og átti síðan hárfína fyrirgjöf á fjærstöngina. Boltinn sveif yfir vörn og markvörð Grindvíkinga og þar var mættur Akurnesingurinn Jón Vilhelm Ákason og skallaði knöttinn í autt markið. Valur kominn aftur yfir eftir að hafa fengið á sig ódýrt jöfnunarmark og áhorfendur gátu tekið gleði sína á ný. Um 20 mínútur voru enn eftir af leiknum og Valsarar með ágætis tök á spilinu. Munurinn var þó ekki nema eitt mark og hefur það sjaldan kunnað góðri lukku að stýra að leggjast í vörn of snemma. Þriðja markið lét hins vegar á sér standa og eftir því sem á leið færðist örlítið meiri þungi í sókn Grindavíkur, án þess þó að þeir væru að vaða í færum. Sigurbjörn var mögulega heppinn að fá ekki dæmda á sig vítaspyrnu þegar hann virtist fara aftan í Scott Ramsey en Gunnar Jarl dómari sá ekkert athugavert við atvikið. Þegar skammt var eftir átti skoska tækniundirð skot í innanverða stöngina, frákastið barst síðan út á Ray Jónsson sem náði ekki að leggja boltann nægjanlega vel fyrir sig en Kjartan Sturluson var jafnframt vel staðsettur og lokaði markinu. ![]() Þorsteinn Gunnarsson og félagar ráku Luka Kostic eftir úrslit gærkvöldsins
Eftir þetta var mest allur vindur farinn úr Ramsey og félögum og Valsmenn fögnuðu innilega þegar Gunnar Jarl ágætur dómari leiksins flautaði til leiksloka. Gunnar Jarl hefur átt skjótan frama í dómarafaginu en stöku sinnum var eins og skorti upp á örlítið meiri reynslu hjá honum. Hins vegar var leikurinn þess eðlis að erfitt var að gera skandala á flautunni. Næsti leikur hjá okkur verður gegn Fylki í sunnudagsþynnku eftir aðalkeppni Eurovision og kosningavöku. Nánar að því síðar. Besservisserar (3)
![]()
Trifon
said:
|
|
... flottur pistill. Fylkisleikurinn er kominn á mánudag kl 20.00. Það er því tími til að sleikja sárin eftir kosningasigur besta flokksins |
|
... Var þessi sigur ekki full erfiður gegn Grindavík með öll sín vandamál? Valur þarf að fara halda hreinu ef liðið ætlar sér að gera eitthvað í þessu móti. Það eru fjórir leikir búnir og við fáum alltaf á okkur mark. |
|
... Aðalmálið er að liðið byrji að vinna leiki eftir lélega byrjun. Þrjú stig á útivelli eru vel þegin í þessari deild þar sem allir geta unnið alla. Fylkir verða örugglega erfiðir með sína baráttuhunda út um allan völl og Albert Ingason í framlínunni. En eigum við ekki að segja að Kjartan haldi hreinu gegn sínu gamla liði og Viktor og Danni Köning skori sitt hvort markið í öruggum 2-0 sigri fyrir Val. |