• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Valur sýnir lífsmark
Mánudagur, 25. ágúst 2008 14:53
Image Loksins loksins sótti Valur þrjú stig gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli. Sigurinn var furðu þægilegur miðað við þær ófarir sem við höfum gengið í gegnum gegn Blikum á útivelli síðustu árin. Mörk frá reynsluboltunum Guðmundi Benediktsyni og Sigurbirni Hreiðarssyni halda lífsmarkinu í titilvonir Valsara í ár.  

Leikurinn var varla mínútu gamall þegar fyrsta markið datt inn. Gummi Ben skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu á meðan fjölmargir áhorfendur voru enn að versla aðgöngumiða. Íslenska stundvísin kom þar heldur betur í bakið á mörgum. Eftir markið tóku heimamenn þó við sér og virtust lengi vel líklegir til að svara markinu. Valsliðið fór í kunnuglegar stellingar, lagðist að mestu til baka og lét Breiðabliksmönnum það eftir að reyna búa eitthvað til. Vörnin hélt þó sínu striki og fyrir framan hana voru Baldur Bett og þá aðallega Sigurbjörn fyrirliði duglegir að brjóta sóknarlotur Blika á bak aftur.

 

 

 

Fyrri hálfleikur gekk þó ekki áfallalaust fyrir sig. Þeir Baldur Bett og Bjarni Ólafur urðu fyrir hnjaski í leiknum og þurftu að fara meiddir útaf auk þess meiddist Baldur Ingimar í síðari hálfleik. Meiðslasaga Valsliðsins hefur verið hálf ótrúleg í sumar en á móti kemur að á síðasta tímabili voru meiðslin mjög takmörkuð allt  fram í síðustu leiki.

 

 

 

Eftir að Valur komst í 0-2 má segja að mesti vindurinn hafi farið úr Blikaliðinu. Lítil ógn var í sóknarlínunni hjá þeim og var sérstaklega athyglisvert hversu Prince Rajkomar hafði sig lítið frammi. Á síðasta tímabili var þetta einn öflugasti leikmaður deildarinnar en í ár hefur heldur betur dofnað yfir honum. Marel Baldvinsson reyndi að gera hluti upp á eigin spítur en varnarmenn Vals sáu ávallt við honum sem og kantmanninn spræka Jóhanni Berg.

 

 

 

Heilt yfir stóð Kristinn Jakobs sig vel á flautunni. Í stúkunni voru alltaf einhverjir Valsarar tilbúnir að gjamma yfir einstaka ákvörðunum Kristins en meint hatur hans á Val lét lítið á sér kræla í þessum leik. Eina sem má gera athugasemd við hjá KR-ingnum var gult spjald sem Rasmus Hansen fékk þegar hann tæklaði augljóslega boltann. Kristni var svo mikið í mun að sýna að hann hafði haft rétt fyrir sér þegar Valsliðið mótmælti aukaspyrnunni að hann dróg upp óþarfa spjald í kjölfarið.

 

 

 

Willum Þór virðist vera vel meðvitaður um takmarkanir liðsins. Leikmenn eru ekki að fara í kapphlaup við yngri og sprækari lið heldur hugsa fyrst og fremst að vera þéttir fyrir og beita síðan skyndisóknum. Liðið er alltaf líklegt til að skora og leikmönnum líkar vel við að verja forystu frekar en að bæta í. Þrátt fyrir að margir ágætis spilarar séu innan okkar raða þá gerist það oftar en ekki að andstæðingarnir fá að hanga talsvert á boltanum á löngum köflum. Blikar fengu að dútla með boltann í kringum miðjuna en Valsmenn lokuðu svæðum vel aftarlega á vellinum. Sama var upp á teningnum gegn Fylki á dögunum.

 

 

 

Þegar boltinn vannst var síðan jafnan leitað að Gumma Ben sem er alltaf líklegur til að búa eitthvað til fyrir samherja sína. Þó svo að líkamlegur styrkur, hraði eða yfirferð séu ekki helstu kostir Guðmundar þá ber hann höfuð og herðar yfir aðra leikmenn hvað varðar útsjónarsemi og allan leikskilning. Vonandi þarf annar eins hæfileikamaður og hann ekki að eyða knattspyrnu­ferlinum í íslensku deildinni aftur.

 

 

 

Morgunblaðið í dag tók fram að 16 ár voru síðan að okkar lið vann sigur á Kópavogsvelli en blaðmanni láðist greinilega að HK spilar einnig heimaleiki sína á sama leikvangi. Algeng mistök svo sem þó þau fari víst yfirleitt ekkert alltof vel í hvít-rauða Kópavogsbúa.

 

 

 

Í næstu umferð eru það Skagamenn sem koma í heimsókn á Vodafonevöllinn-á-Hlíðarenda. Hafi Íslandsmeistaravonir okkar Valsara verið komnar í dauðateygjurnar má segja að vonir Akurnesinga um áframhaldandi veru í efstudeild séu gott sem orðnar andvana. Ellefu stig skilja að ÍA og Fylki sem er líklega orðið of breitt bil til að brúa. Engu að síður eru Skagamenn með stórhættulegt lið og hafa verið einstaklega óheppnir eftir komu tvíburanna. Leikurinn verður síðasti möguleiki ÍA til að halda í vonina og þeir koma inn í leikinn með engu að tapa. Slík lið eru ávallt skeinuhætt og gæti reynst varasamt fyrir okkar menn að liggja of mikið til baka.  Valsarar verða að vera á tánum í þeim leik sé ætlunin að halda frekara lífi í titilvonir okkar.

 

Digg    Facebook   
Besservisserar (0)add comment

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Mánudagur, 25. ágúst 2008 14:54