|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Valur farinn á flug |
| Föstudagur, 15. maí 2009 13:52 | ||
|
Valsarar voru mættir á Hlíðarenda í gær til að sjá sína leikmenn spila gegn hinu rísandi stórveldi Fjölni. Helgi Sig tók forystuna strax á 4. mínútu og Ólafur Páll jók hana eftir tæpan 15. mínútna leik. Fjölnir minnkaði muninn fyrir lok hálfleiks en Marel Baldsvinsson kom Val í 3-1 í síðari hálfleik. Sigur Valsmanna var aldrei í hættu og hefði átt að verða mun stærri. Miklar breytingar hafa orðið á liði Fjölnis á einu ári og líklega hugsar Grafarvogsliðið Val þegjandi þörfina hvað það varðar. Valur krækti í þá Ólaf Pál og Pétur Georg Markan í vetur auk þess sem Kristján Hauksson var kallaður til baka úr láni. Við það bætist að reynsluboltarnir Óli Stefán Flóventsson og Ágúst Gylfason hafa sagt skilið við félagið. Stuðningsmenn Fjölnis hljóta því að búas sig undir erfitt sumar. Talsverður munur var á þessum leik þeim sem spilaðir voru á síðasta tímabili. Valur vann þá báða en lenti í miklum erfiðleikum í bæði skiptin. Í gær var allt annað upp á tenningnum. Valsmenn mættu ákveðnir til leiks og margir áhorfendur voru enn að kaupa sér miða þegar Helgi Sigurðsson skoraði fyrsta mark leiksins. Bjarni Ólafur átti sendingu inn í teiginn sem Marel skallaði beint fyrir fætur Helga sem elskar ekkert meira en að vera í þessari stöðu og slúttaði af stuttu færi. Valur hélt pressunni áfram eftir þetta mark og hvað eftir annað galopnaðist Fjölnisvörnin. Óli Palli bætti við öðru markinu eftir að hafa búið sér til pláss rétt fyrir utan teig og átt fast skot í nærhornið. Rétt tæpt korter búið, 2-0 forskot og ekki laust við að margir færu að búa sig undir stórsigur hjá Valsliðinu. Þrátt fyrir mýmörg færi virtist þriðja Vals markið ætla að láta á sér standa. Fjölnismenn voru ekki alveg bitlausir og áttu nokkrar ágætar sóknir. Kjartan bjargaði tvisvar á glæsilegan hátt en gat lítið gert í marki Tómasar Leifssonar. Lið Vals hafði engu að síður örugg tök á leiknum og þegar Marel skoraði þriðja markið var ljóst að mótspyrnu Fjölnis var að mestu lokið. Þrátt fyrir tvö rauð spjöld var leikurinn prúðmannlega leikinn. Einn Fjölnismanna fékk að líta sitt seinna gula spjald þegar korter var eftir og Sigurbjörn Hreiðarsson sömuleiðis. Einnig virtist Kjartan Sturluson vera heppinn með að sleppa frá víti og rauðu þegar hann einn Fjölnismanna féll við án þess að Kjartan kæmi við boltann. Rauða spjaldið hjá Sigurbirni var samt bölvaður klaufaskapur. Í fyrri hálfleik hlaut hann gult spjalt sennilega vegna þess að Valsmenn höfðu átt nokkur brot út á velli í aðdragandanum. Seinni spjaldið var full ódýrt fyrir jafn reynslumikinn leikmann en Herra Valur stóð sig vel líkt og flestir leikmenn liðsins. Vörnin virkaði nokkuð traust en mætti kannski helst gagnrýna hana fyrir hversu nálægt marki Fjölnismenn gátu oft spilað sig. Á miðjunni átti Ian Jeffs góðan leik en sá sem kom skemmtilegast á óvart var Hafþór Ægir. Habbó var ekki svipur hjá sjón á síðustu leiktíð en í gær var allt annar leikmaður að spila. Hann var duglegur að taka varnarmenn Fjölnis á, átti fyrirgjöfin í markinu hjá Marel, fiskaði mann út af og gaf Fjölnismönnum aldrei neinn frið þegar þeir léku boltanum á milli sín í vörninni. Flott innkoma og besta leiðin til að reka af sér sliðruorðið. Frammi voru þeir Helgi og Marel skæðir og ljóst að þeir munu valda hvaða vörn sem er hausverkjum haldist þeir heilir. Marel hefur það fram yfir flesta leikmenn deildarinnar að hann tekur vel á móti bolta og nánast vonlaust er að ná tuðrinni af honum. Líkamlegur styrkur hans kemur einnig flestum varnarmönnum í vandræði. Það verður því spennandi að fylgjast með sóknarlínunni í sumar en Pétur Georg Markan sýndi með innkomu sinni að hann hefur ýmislegt fram að færa og ekki má gleyma þeim Viktori Unnari og Alberti Ingasyni. Valsarar geta þó ekki stillt sig um að tuða yfir einhverju. Mætingin var vissulega slök en helstu Stuðarar síðsustu ára þurfa að þétta hópinn á nýjann leik, tala nú ekki um þegar Siggi Már er mættur aftur í öllu sínu veldi (og Country Bjössi skammt undan). Keflavík á mánudaginn og þar munu Joey Drummer og félagar í Puma sveitinni væntanlega taka vel á móti okkur. Besservisserar (1)
![]()
Gastone
said:
|
|
... Líklegt byrjunarlið í kvöld... 4-4-2... Kjartan í markinu, Atli og Reynir miðverðir, Bjarni Ólafur vinstri bakvörður , Steinþór hægri.. Jeffs og Bett á miðjunni , Bett djúpur. Hafþór Ægir vinstri kantur, Ólafur Páll hægri kantur. Marel og Helgi frammi....... Ég geri ráð fyrir að Bjössi sé í banni annars er hann fyrir Bett...... þetta lið er ekki árennilegt og Keflvíkingar misst sinn besta mann Hólmar Örn í meiðsli...... |