• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Valur áfram í bikarnum
Þriðjudagur, 07. október 2008 12:49

Leikur Vals og HK í 32-liða úrslitum Eimskipabikarsins fór fram í Vodafonehöllinni í gær, mánudaginn 6. október 2008. Ljóst var að þarna var um að ræða stærstu viðureign fyrstu umferðar bikarkeppninnar en HK hefur líkt og Valur á einu sterkasta liði landsins að skipa. Leikmenn liðanna burgðust ekki væntingum áhorfenda og  buðu upp á hörkuskemmtilegan leik sem endaði með eins marks sigri Vals 27-26 og bikarvörnin byrjar með bravör.

 

Andinn í Valsheimilinu var góður eins og vera ber þrátt fyrir ringuleiðina sem ríkir alls staðar annars staðar í þjóðfélaginu. Valsarar voru mættir snemma á Hlíðarendann þetta kvöldið enda stóð til að nýta sér súpueldhús handknattleiksdeildar svona ef ske kynni að heimsendir væri í nánd. Helstu sjálfboðaliðar félagsins voru í óðaönn að koma upp auglýsingaskiltum og undirbúa veitingarnar, meistaraflokkur kvenna hamaðist í lóðasalnum líkt og enginn væri morgundagurinn og leikmenn liðanna fóru sér engu óðslega í upphitun sinni. Heit aspassúpa fyrir leik rann ljúflega niður og menn ræddu helstu málefni líðandi stundar.
 

 

 

Leikurinn hófst og það voru gestirnir í HK sem byrjuðu betur. Í stöðunni 4-9 fyrir gestina benti fátt til þess að Valsliðið væri að fara gera einhverjar rósir. Óli Gísla komst ekki í sama haminn og hann gerði á móti Fram á dögunum og varnarmúr HK með silfurmanninn Sverre Jakobsson í fararbroddi var ill kleifur.

 

 

 

Kópavogliðið er þó ekki eitt um að hafa silfurmann innan sinna raða. Hlíðarendatröllið Sigfús Sigurðsson er fimm manna maki í vörninni og þegar hann og Ingvar Árnason fundu fjölina var ekki að sökum að spyrja. Sóknarleikur HK varð ráðalaus á meðan Valsmenn keyrðu upp hraðann hinu megin á vellinum enda standast fáir þeim Sigfúsi Páli, Sigurði Eggertssyni, Baldvini Þorsteinssyni og Arnóri Gunnarssyni snúninginn.

 

 

 

Sókn Vals hrökk í gang eins og vel smurður sportbíll og gjörsamlega reykspólaði yfir gestina fram að hléi. Elvar Friðriksson skoraði hvert glæsimarkið á fætur öðru og Ingvar sýndi góða takta á línunni með því að skora mörk úr erfiðum færum. Áður en HK menn vissu sitt rjúkandi ráð var Valur búinn að snúa stöðunni yfir í 13-10 þegar skammt var til leikhlés.

 

 

 

Digranesliðið var slegið út af laginu en rankaði aðeins við sér fram að hléi. Þegar rétt tæp mínúta var til hálfleiks fékk HK sókn í stöðunni 14-12. Valsvörninni tókst að brjóta hana á bak aftur og Baldvin Þorsteinsson var fyrstur af stað fram og kom Val í 15-12. Aftur fóru HK-menn af stað en misstu boltann og enn á ný var Baldvin fyrstur úr startholunum og smellti Val í 16-12. Fyrri hálfleikur rann sitt skeið og Sverre og liðsfélagar með nasirnar fullar af brenndu gúmmíi.  

 

 

 

Valsmenn héldu áfram á fullu gasi strax í byrjun seinni hálfleiks. Pálmar kom inn í markið og varði hvert skotið á fætur öðru og HK-menn urðu örvæntingafyllri með hverri sókninni. Liðið náði mest sjö marka forystu og um miðjan hálfleik virtust þeir vera að stinga endanlega af. Þá fór hið klassíska jafnaðar-heilkenni að láta á sér kræla hjá dómaraparinu sem dæmdi einmitt líka leik Vals við Fram á dögunum. Tveir Valsmenn fengu tveggja mínútna brottvísun fyrir litlar sakir í sömu sókn HK og skyndilega fóru allir vafadómar að falla gegn okkar mönnum. “Þessir dómarar eru á framlengingar bónus” var gjammað í stúkunni en HK tók að nálgast Val óðfluga.

 

 

 

Valsmenn héldu þó forystunni og í stöðunni 27-22 virtist bara þurfa eitt mark í viðbót til að vinna kapphlaupið. Þá fór Vals vélin að hökkta. Menn fengu á sig leiktafir og slök skot fóru að einkenna sóknarleikinn. Allt í einu voru HK-ingar farnir að anda ofan í hálsmálið á Völsurum og þegar innan við mínúta var eftir var staðan orðin 27-26.

 

 

 

Enn ein misheppnuð sókn hjá Val þegar um 30 sekúndur voru eftir þýddi að HK var komið með boltann og brunaði af stað. Valdimar Þórsson leitaði að vinstri hornamanni sínum en sending hans var á við út af akstur á fleygi ferð og fór beint í innkast. Valsliðið náði að hanga á boltanum út leiktímann og fagnaði sætum sigri.

 

 

 

Sagði einhver kreppa? Sennilega var ekki nokkur maður að spá lengur í það að leik loknum enda frábær skemmtun að baki.

 

 

 

Næsti skammtur er gegn FH í Kaplakrika klukkan 19.30 á fimmtudaginn.

 

Digg    Facebook   
Besservisserar (0)add comment

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 07. október 2008 21:26