• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Valssigur á vígsludegi
Mánudagur, 26. maí 2008 00:02
 

Valsmenn voru mættir á Hlíðarenda í kvöld til að keppa við Fjölni og til að vígja Vodefonevöllinn.  Gott prógram var í gangi.  B Sig spilaði meðal annars nokkur góð lög og gestir gátu fengið sér pylsur og Gatorade og kaffi.  Það var létt yfir fólki þegar það skoðaði nýja heimavöllinn sinn og ef það ætti að lýsa þeim tilfinningum sem í loftinu voru fyrir leikinn í einni setningu myndi hún vera: Það er gott að vera kominn heim.

 

 

 

 

 

Byrjunarlið Vals var óbreytt frá Fylkisleiknum en tilfæringar höfðu átt sér stað innan liðsins.  Gunnar Einarsson var kominn í bakvörðinn og Bjarni í miðvörð en Birkir fór á hægri kant.  Valsmenn byrjuðu leikinn kröftuglega og stýrðu ferðinni á meðan Fjölnismenn lágu aftarlega.  Mest kvað af Birki til að byrja með.  Bróðurpartur sókna Vals fóru í gegnum hann á vængnum og hann átti fyrsta færið en skot hans fór af varnarmanni og aftur fyrir.  Fljótlega eftir þetta fengu Valsarar horn og úr henni átti Helgi skalla í slá af stuttu færi.  Gestirnir fóru svo að komast betur inn í leikinn eftir þetta og voru nálægt því að skora þegar Fjölnismaður náði ekki í endann á fyrirgjöf á fjærstöng.  Valsmenn tóku svo forystuna rétt fyrir hlé og það var Helgi Sig sem skoraði fyrsta markið á Vodafonevellinum með góðu skoti úr vítateignum eftir klafs í boxinu.  1-0 í hálfleik og menn sáttir.

 

 

 

Í hálfleik var svo Ingó mættur til að spila nokkur lög en undirritaður missti reyndar af því þar sem hann kíkti í hátíðarsalinn til að fá sér kaffi og kleinur.  Í raun var þetta erfitt val því Bahama lagið er frábært lag og hefði verið gaman að heyra það live, reikna með því að það hafi verið tekið.  Kaffið og kleinurnar höfðu þó vinninginn að þessu sinni.

 

 

 

Eftir hressinguna var slagurinn tekinn að nýju og nú höfðu liðin skipt um hlutverk.  Valsmenn voru komnir aftar og Fjölnir var nú liðið sem sótti meira.  Til verulegra tíðinda dró þó ekki fyrr en eftir klukkutímaleik.  Þá átti Fjölnir neglingsskot beint í höfuðið á Habbó sem lá óvígur eftir.  Þrátt fyrir höfuðmeiðslin stöðvaði dómarinn ekki leikinn og í ringulreiðinni sem skapaðist var Ómar Hákonarson allt í einu með boltann í teignum og kom honum í netið.  Tvöfalt áfall því Habbó var svo skipt útaf, verulega vankaður.  Erfiðir tímar fóru nú í hönd var heimamenn.  Fjölnir átti horn í slá og nokkrar hættulegar fyrirgjafir sem Kjartan greip vel inní.  Seinna fékk Baldur Bett að líta rauða spjaldið fyrir brot þegar Fjölnismaður var að sleppa í gegn.  Úr aukaspyrnunni átti gestirnir skalla sem var merktur stöngin inn en Kjartan markmaður Sturluson bjargaði því með stórkostlegri markvörslu, stórkostlegri.  Taugatrekktir Valsarar voru orðnir áhyggjufullir á þessum tíma því útlitið var ekki bjart.  Reis þá upp X-factorinn okkar, Pálmi Rafn Pálmason.  Eftir fyrirgjöf var hann kominn með boltann við markteiginn með mann í bakinu.  Pálmi barðist við að halda stöðunni, náði svo að finna rétta sekúndubrotið til að snúa sér og skjóta og boltinn endaði í markinu í fjærhorninu.  Staðan 2-1 og eftir þetta náðu Valsmenn einum færri að halda út og innbyrða stigin þrjú sem í boði voru.

 

 

 

Sigurinn í kvöld var í senn í frábær og mikilvægur.  Frábært að byrja með sigri á nýja vellinum og setja tóninn fyrir framhaldið.  Mikilvægt að ná sigri í leik sem hefði getað dottið öðrum hvorum megin og að missa ekki efstu lið of langt frá sér.  Valsmenn eiga þó klárlega mikið inni og getað spilað töluvert betur.  Pálmi bjargaði þó deginum í dag og svo má ekki gleyma þætti Kjartans sem hélt okkur á floti á erfiðum kafla í leiknum.

 

 

 

Framundan er svo tvöfaldur Kópavogur.  Fyrst á útivelli á móti HK og svo á Hlíðarenda á móti Blikunum.  Meira um það síðar.

 

Digg    Facebook   
Besservisserar (6)add comment

Ingvi said:

...
Þetta er bara helvíti gott, frumflytjum þetta á móti hk á mánudaginn. gott framtak
21:31 | 29 maí | 2008

Donde said:

10:19 | 30 maí | 2008

Valþór said:

...
Núnú, þeim hefur flogið þetta í hug líka.
Enda sennilega eitt flottasta chant sem maður hefur heyrt
10:31 | 30 maí | 2008 | url

GJ said:

...
Legg til að þið takið bara KR lagið hans Bubba og setjið bongótrommur inní það. Já og svo er Ave Maria ennþá up for grabs.

Og til hamingju með Diet Coke völlinn! Hvað ætliði samt að gera þegar KR kemur í heimsókn með 3000 manns í haust? Þarf ekki að rífa þetta stúkukríli og setja eitthvað alvöru upp?

Munið svo að kokteilsósa læknar ekkert, hún deyfir bara.
14:45 | 30 maí | 2008

Ingvi said:

...
bongótrommur í kr lagið er fyrirtaks hugmynd, ykkur veitir ekki af smá Vals áhrifum en ég held að við leyfum ykkur að halda Ave maria svo þið getið gripið í það í haust ef þið skilduð vera nálægt fallsætinu líkt og í fyrra.

Það er búið að gera ráð fyrir fullt af kr ingum í haust, það verða settar upp réttir til að smala ykkur í, ekki viljum við hafa ykkur lausráfandi svona nálægt flugvellinum.

og endilega haldið svo áfram að fræða okkur hin um áhrif sósunnar, þið eruð manna bestir í að dýfa ykkur í svoleiðis rannsóknir smilies/smiley.gif
15:04 | 30 maí | 2008

GJ said:

...
Jæja loksins einhver með smá rænu hérna. Gaman að skrifast á við Valsara aftur eftir langt hlé frá alvöru íþróttum (ekki reyna að halda því fram að einhver fylgist með handbolta). Þetta hlaut að fara örlítið uppávið eftir að þeir tóku skólpið í nauthólsvíkinni í gegn og settu þessa litlu strönd sem er reyndar í stíl við litla flugvöllinn og litla íþróttafélagið sem borgin er að rembast við að dæla peningum í en öllum virðist samt slétt sama um.

Hlakka til þegar borgin slettir upp elliblokkum þarna og fattar svo að bletturinn og kapellan eiga eftir að nýtast miklu fleirum en þeim sem ráfa þarna um þessa stundina og fá borgað fyrir að þykjast vera valsarar. Þannig að Ave Maria getur svo hljómað þarna um ókomna tíð eftir allt saman.

Ef á svo að fara að setja upp réttir þarna, reynið þá að gera ráð fyrir fleiri en 800 manns...
15:28 | 30 maí | 2008

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Mánudagur, 26. maí 2008 18:06