• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Valsmenn sýndu mátt sinn
Mánudagur, 07. júlí 2008 11:04
Valsarar voru mættir á Hlíðarenda í kvöld til að horfa á sína menn taka á móti hinu alræmda varnarliði Fram.  Willum gerði breytingu frá bikarleiknum og setti Sigurbjörn í byrjunarliðið í stað Habbó og Bjarni var færður á vænginn.  

Það tók áhorfendur ekki langan tíma til að átta sig á hvort liðið var mætt til þess að spila fótbolta.  Valsmenn byrjuðu með látum og strax á fimmtu mínútu átti Birkir Már skot í stöng.  Bakvörðurinn skemmtilegi átti svo nokkrar fleiri ferðir upp kantinn sem allar sköpuðu hættu og hefðu með smá heppni getað skapað mark.  Þó færin hafi nokkuð látið á sér standa í fyrri hálfleik og markalaust hafi verið í hálfleik fór ekki á milli mála hvort liðið átti leikinn.  Heimamenn voru að spila vel og gáfu gestunum enga mola til að vinna með.

Valsmenn héldu uppteknum hætti í seinni hálfleik.  Helgi átti fyrst dauðafæri sem var varið og skoraði svo mark sem dæmt var af vegna rangstöðu.  Okkar menn áttu fleiri góðar sóknir og góð færi en allt kom fyrir ekki, boltinn vildi ekki inn.  Ekki fyrr enn Pálmi Rafn skoraði þegar kortér var eftir af leiknum.  Birkir Már gaf boltann frá kantinum og Pálmi tók hann frábærlega og smellti honum í bláhornið.  1-0 fyrir Val og múrinn brotinn.  Nokkrum andartökum síðar var staðan 2-0 og aftur var það Pálmi.  Búmm búmm, tveir löðrungar á verðandi-fyrrverandi Safamýrarliðið og Valsmenn í fínum málum.  Valsarar léku við hvurn sinn fingur eftir þetta og lönduðu góðum sigri.

Menn gengu þvílíkt sáttir frá Hlíðarenda í kvöld.  Liðið lék líklega sinn besta leik í sumar og sýndi hvað virkilega hvað það getur.  Nokkrir lykilpunktar að mínu mati eru að Barry er auðvitað kominn aftur og er að spilast í form.  Rene er einnig að komast í gang og farinn að líkjast Rene Carlsen frá 2007, sérstaklega eins og hann spilaði í seinni hálfleik.  Bjarni Ólafur var kominn á vænginn sem bætti vænginn bæði sóknarlega og varnarlega. 

Gummi Ben er einnig að spilast í form og svo kom Baldur Ingimar inn af bekknum og það er heldur betur styrking fyrir liðið.  Innkoman hjá Baldri virkaði eins og vítamínssprauta á allt liðið og sérstaklega á Pálma Rafn.

Valur er sem sagt að endurheimta nokkra lykilpósta ásamt því að aðrir að slípast betur og betur inní liðið. 

Framarar reyndu voða lítið í sókninni og treystu á að loka vörninni allan tímann. Þetta hefur kannski skilað þeim stigum hingað til en er frekar slök taktík og fyrirsjáanleg til lengdar.

Mætingin var frekar döpur en stemmningin prýðileg og gaman að heyra að Framarar séu farnir að styðja við sitt lið. Líklega var þetta í fyrsta sinn sem það heyrðist eitthvað meira frá þeim en hið klassíska "Framarar-klapp-klapp-klapp" einu sinni í sitt hvorum hálfleikum.

Þessi sigur gat ekki komið á betri tíma því næsti leikur er á móti KR og ef menn verða með sama hugarfar í þeim leik og í þessum hefur Valur ekkert að óttast.

Digg    Facebook   
Besservisserar (0)add comment

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Mánudagur, 07. júlí 2008 11:05