• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Útúrkú í úthverfi
Höfundur: Valþór Druzin   
Föstudagur, 24. júlí 2009 13:35
Það er fátt hægt að segja um leik eins og þann sem fram fór í Grafarvoginum í gær, án þess að missa sig í bölmóð og pirring.
Það er þá kannski úr vegi að hefja þennan pistil á því að tiltaka það sem jákvætt var í leiknum, sem var annarsvegar það að kick and run fótboltinn sem Valsliðið hefur stundað uppá síðkastið er á hröðu undanhaldi fyrir mun skemmtilegri leikstíl þar sem menn eru mun betur staðsettir á vellinum og spila boltanum sín á milli, og svo hinsvegar að Halli varð vítaspyrnu (og frákast hennar).
"..skammarlegt að við tökum ekki frákastið" --Atli Sveinn
"Að tapa frákasti eftir víti er bara verulega dapurt, sorglegt bara" --Sigurbjörn Hreiðarsson
Þetta voru þeirra orð eftir leikinn á mánudaginn, en svo virtist sem þau væru gleymd og grafin í gær, og raunar alveg stórmerkilegt að lið, sem fær á sig mark úr frákasti vítaspyrnu í leiknum á undan, skuli ekki getað hundskast til þess að gyrða fyrir það einfalda atriði að andstæðingurinn nái frákasti aftur í þessum leik. Þessi orð Atla og Bjössa virtust m.a.s. svo svakalega vel gleymd að enginn Valsmaður gerði svo mikið sem tilraun til þess að sækja frákast vítaspyrnunnar sem Hlgi Sig klikkaði á. Það er kannski ekki rétt að dvelja of lengi við þetta, en þó eru þetta grundvallaratriði sem þarf barasta að vera í lagi og ekkert rugl.
Eftir að Valsmenn fengu á sig fyrra markið, virtust þeir þyngjast um c.a. 5 kíló á staðnum, og leikur liðsins sem fram að því hafði lofað ágætu, drabbaðist niður og allt bit fór úr honum.
Út úr sóknarvængspili liðsins kom ekkert í gær, nákvæmlega ekkert, og virtust vörn og markvörður Fjölnis, sem fyrir leikinn höfðu fengið á sig næstflest mörk allra liða í deildinni, lítið hafa fyrir að loka á sóknartilburði Valsmanna af köntunum.
Ef frá er talinn Stóribróðir, þá var miðjuspilið ekki gott í gær, þá sérstaklega eftir að fyrsta markið hafði dottið á Valsmenn. Bjössi og Bett, sem hvor um sig eru fínir leikmenn, eru bara ekki að fúnkera nógu vel saman, þvímiður. Bett er fremur hægur varnarsinnaður miðjumaður og fínn í djúpri stöðu en Bjössi sem er auðvitað local hero á Hlíðarenda, og skilað ótrúlega góðu starfi fyrir Val í gegnum tíðina, virðist þvímiður hafa tapað niður hraðanum sem hann áður hafði. Saman eru þeir ekki að vega hvorn annan nógu vel upp, reynsla Bjössa sem gæti mögulega nýst með sneggri miðjumanni er ekki að gera það með Baldri Bett. Baldur er sömuleiðis leikmaður sem þyrfti að hafa snöggan og skapandi miðjumann með sér til þess að þessar einföldu færslur sem hann leysir mjög vel, væru að nýtast Valsliðinu betur.
Uppi á toppi eru Valsmenn ennþá að kljást við sama hugmyndaleysið og áður, enda segir markatala liðsins allt um það, 15 skoruð mörk í 13 leikjum er vægast sagt slakur árangur. Aðeins eitt lið í deildinni sem hefur skorað færri mörk en Valsliðið; ÍBV, enda er það lið í fallsæti.
Það er kannski augljóst mörgum, en það er bara eitt grundvallaratriði sem þarf að uppfylla í hverjum fótboltaleik til þess að sigur náist, en það er að skora a.m.k. 1 mark. Það hefur Valsliðinu mistekist í 6 af 13 deildarleikjum sumarsins, sem er auðvitað vægast sagt ömurlegur árangur og ef einhversstaðar er hrópandi í eyðimörkinni þá er það þarna. Liðið er bara ekki að skora mörk og sóknarleikurinn álíka beitt og gömul trésleif.
Bitleysið í sókninni er að einhverju leyti því að kenna að miðjuspil Vals hefur verið slakt og frekar hægt.
Það er svo auðvelt að færa fyrir því rök að þegar bitleysið er svona mikið framá við, þá þarf vörnin að puða tvöfalt meira fyrir vikið, enda virðast andstæðingar Vals hafa verið lítið hræddir við að halda sig bara á vallarhelmingi Vals í sumar, enda lítillar refsingar að vænta á móti.
Það verður þó að segjast að varnarmenn Vals ullu verulegum vonbrigðum í gær, þá sérstaklega þau mistök Bjarna Ólafs að fylgja ekki sóknarmanni Fjölnis eftir alla leið niður að endalínu í fyrra markinu. Bjarni Ólafur hefur raunar ekki verið svipur hjá sjón í sumar, m.v. hversu öflugur hann er í raun og veru. Valsarar.is vona að Bjarni nái að stíga uppúr þeim öldudal sem hann hefur verið í og sýni sitt rétta andlit, hann getur miklu betur og veit það sjálfur.
Eins hefði Halli, sem valsarar.is hafa mært mikið hingað til, átt að gera betur í fyrra markinu, svona skot á aldrei að leka inn hjá klassa markverði.
Reynir Leóss átti að auki ekki góðan dag, var á hælunum og alls ekki nógu meðvitaður til þess að geta spilað rangstöðutaktík, ef það var þá pælingin í dag.
Nú er hinsvegar leikið nokkuð þétt í deildinni, og það ætti að vera jákvætt fyrir lið sem er að reyna að byggja upp nýtt spil, auk þess sem ákveðinn gálgafrestur gefst þá á bikarleikinn gegn KR. Keflvíkingar koma í heimsókn á mánudaginn og ef ekki á að stefna í stórslys í þeim leik, er eins gott að leikmenn gyrði sig í brók og þjappi sér saman.
Það er alveg klárt mál, að sofandaháttur og andvaraleysi eins og var í gangi í úthverfinu í gær gengur ekki gegn neinu liði í deildinni og leikmannahópur Vals á að vera betri en þetta. Það er einfaldlega óþolandi að tapa svona illa fyrir liði í fallbaráttu, liði sem er ekki betra en Fjölnisliðið er.
Upp með helv*** sokkana, fjandakornið!
Það er fátt hægt að segja um leik eins og þann sem fram fór í Grafarvoginum í gær, án þess að missa sig í bölmóð og pirring.
Það er þá kannski úr vegi að hefja þennan pistil á því að tiltaka það sem jákvætt var í leiknum, sem var annarsvegar það að kick and run fótboltinn sem Valsliðið hefur stundað uppá síðkastið er á hröðu undanhaldi fyrir mun skemmtilegri leikstíl þar sem menn eru mun betur staðsettir á vellinum og spila boltanum sín á milli, og svo hinsvegar að Halli varð vítaspyrnu (og frákast hennar).

"..skammarlegt að við tökum ekki frákastið" --Atli Sveinn
"Að tapa frákasti eftir víti er bara verulega dapurt, sorglegt bara" --Sigurbjörn
Þetta voru þeirra orð eftir Fylkisleikinn á mánudaginn, en svo virtist sem þau væru gleymd og grafin í gær, og raunar alveg stórmerkilegt að lið, sem fær á sig mark úr frákasti vítaspyrnu í leiknum á undan, skuli ekki getað hundskast til þess að gyrða fyrir það einfalda atriði að andstæðingurinn nái frákasti aftur í þessum leik. Þessi orð Atla og Bjössa virtust m.a.s. svo svakalega vel gleymd að enginn Valsmaður gerði svo mikið sem tilraun til þess að sækja frákast vítaspyrnunnar sem Hlgi Sig klikkaði á. Það er kannski ekki rétt að dvelja of lengi við þetta, en þó eru þetta grundvallaratriði sem þarf barasta að vera í lagi og ekkert rugl.

SLOWFramvinda leiksins var svosum ekkert virði neinna húrrahrópa, en eftir að Valsmenn fengu á sig fyrra markið, virtust þeir þyngjast um c.a. 5 kíló á staðnum, og leikur liðsins sem fram að því hafði lofað ágætu, drabbaðist niður og allt bit fór úr honum.
Út úr sóknarvængspili liðsins kom ekkert í gær, nákvæmlega ekkert, og virtust vörn og markvörður Fjölnis, sem fyrir leikinn höfðu fengið á sig næstflest mörk allra liða í deildinni, lítið hafa fyrir að loka á sóknartilburði Valsmanna af köntunum.

Ef frá er talinn Stóribróðir, þá var miðjuspilið ekki gott í gær, þá sérstaklega eftir að fyrsta markið hafði dottið á Valsmenn. Bjössi og Bett, sem hvor um sig eru fínir leikmenn, eru bara ekki að fúnkera nógu vel saman, þvímiður. Bett er fremur hægur varnarsinnaður miðjumaður og fínn í djúpri stöðu en Bjössi sem er auðvitað local hero á Hlíðarenda, og skilað ótrúlega góðu starfi fyrir Val í gegnum tíðina, virðist þvímiður hafa tapað niður hraðanum sem hann áður hafði og er oftar en ekki skrefinu á eftir andstæðingnum. Saman eru þeir ekki að vega hvorn annan nógu vel upp, reynsla Bjössa sem gæti mögulega nýst með sneggri miðjumanni er ekki að gera það með Baldri Bett. Baldur er sömuleiðis leikmaður sem þyrfti að hafa snöggan og skapandi miðjumann með sér til þess að þessar einföldu færslur sem hann leysir mjög vel, væru að nýtast Valsliðinu betur.

Uppi á toppi eru Valsmenn ennþá að kljást við sama hugmyndaleysið og áður, enda segir markatala liðsins allt um það, 15 skoruð mörk í 13 leikjum er vægast sagt slakur árangur. Aðeins eitt lið í deildinni sem hefur skorað færri mörk en Valsliðið; ÍBV, enda er það lið í fallsæti. Trésleif
Það er kannski augljóst mörgum, en það er bara eitt grundvallaratriði sem þarf að uppfylla í hverjum fótboltaleik til þess að sigur náist, en það er að skora a.m.k. 1 mark. Það hefur Valsliðinu mistekist í 6 af 13 deildarleikjum sumarsins, sem er auðvitað vægast sagt ömurlegur árangur og ef einhversstaðar er hrópandi í eyðimörkinni þá er það þarna. Liðið er bara ekki að skora mörk og sóknarleikurinn álíka beitt og gömul trésleif.

Bitleysið í sókninni er að einhverju leyti því að kenna að miðjuspil Vals hefur verið slakt og frekar hægt.
Það er svo auðvelt að færa fyrir því rök að þegar bitleysið er svona mikið framá við, þá þarf vörnin að puða tvöfalt meira fyrir vikið, enda virðast andstæðingar Vals hafa verið lítið hræddir við að halda sig bara á vallarhelmingi Vals í sumar, enda lítillar refsingar að vænta á móti.
Það verður þó að segjast að varnarmenn Vals ullu verulegum vonbrigðum í gær, þá sérstaklega þau mistök Bjarna Ólafs að fylgja ekki sóknarmanni Fjölnis eftir alla leið niður að endalínu í fyrra markinu. Bjarni Ólafur hefur raunar ekki verið svipur hjá sjón í sumar, m.v. hversu öflugur hann er í raun og veru. Valsarar.is vona að Bjarni nái að stíga uppúr þeim öldudal sem hann hefur verið í og sýni sitt rétta andlit, hann getur miklu betur og veit það sjálfur.
Eins hefði Halli, sem valsarar.is hafa mært mikið hingað til, átt að gera betur í fyrra markinu, svona skot á aldrei að leka inn hjá klassa markverði.
Reynir Leóss átti að auki ekki góðan dag, var á hælunum og alls ekki nógu meðvitaður til þess að geta spilað rangstöðutaktík, ef það var þá pælingin í dag.

Nú er hinsvegar leikið nokkuð þétt í deildinni, og það ætti að vera jákvætt fyrir lið sem er að reyna að byggja upp nýtt spil, auk þess sem ákveðinn gálgafrestur gefst þá á bikarleikinn gegn KR. Keflvíkingar koma í heimsókn á mánudaginn og ef ekki á að stefna í stórslys í þeim leik, er eins gott að leikmenn gyrði sig í brók og þjappi sér saman.
Það er alveg klárt mál, að sofandaháttur og andvaraleysi eins og var í gangi í úthverfinu í gær gengur ekki gegn neinu liði í deildinni og leikmannahópur Vals á að vera betri en þetta. Það er einfaldlega óþolandi að tapa svona illa fyrir liði í fallbaráttu, liði sem er ekki betra en Fjölnisliðið er.

Upp með helv*** sokkana, fjandakornið!

Digg    Facebook   
Besservisserar (4)add comment

Valsari said:

...
Við skoruðum 4 mörk á móti KR. Ef við tökum þann leik frá er liðið búið að skora 11 mörk í 12 leikum. Það er rosalega dapurt og í raun ekki hægt að búast við árangi með slíkri tölfræði. Ohh ég er svo pirraður!
14:54 | 24 júlí | 2009

Valþór said:

...
Valsliðið hefur ekki skorað eitt einasta mark í 47% deildarleikja sinna í sumar...
15:02 | 24 júlí | 2009 | url

Bjössi said:

...
Andleysið og hugmyndarleysið er algjört í þessu liði.

Þetta er hárrétt með Bjössa og Baldur, þeir eru prýðisleikmenn, en alveg kapút þegar þeir eru tveir saman á miðjunni. Spurning um að tefla fram 4-3-3 í næsta leik með þá tvo á miðjunni og Arnar sem leikstjórnanda fyrir framan þá.

15:54 | 24 júlí | 2009

Fúsi said:

...
Auðvitað á að spila með 3 menn inná miðju. Bjössi og Balli eru toppleikmenn en ef við horfum á þá aðeins. Bjössi er 35 ára og Baldur 30 ára. Öll lið sem hafa leikmenn sem eru komnir á þennan aldur á miðju eru alltaf með 3 menn. Af hverju? Jú til að nýta getu og reynslu svona gamals leikmanns eins og Bjössa í þessu tilviki. Hann á ekki að vera hlaupa út um allt heldur að nýta sína hæfileika í spil.
19:42 | 24 júlí | 2009

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Föstudagur, 24. júlí 2009 13:57