• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Úti á Tungli
Höfundur: Ásgeir Tryggvason   
Föstudagur, 26. júní 2009 14:37

Valsarar voru mættir í Garðabæinn í gær til að horfa á sína menn keppa við Stjörnuna.  Leikurinn hafði sum part á sér yfirskriftina “Baráttan um annað sætið” eða “Hver ætlar að hanga í FH”.  Eftir leikinn er yfirskriftin fyrir Val “.....”. Ykkur er frjálst að fylla inn í með þeim lýsingarorðum sem þið eigið því ég kann ekki og þekki ekki lýsingarorð til að lýsa þeim lélegheitum sem voru þar í gangi að hálfu Vals.

Leikurinn var nokkuð jafn fyrstu mínúturnar.  Á annarri mínútu reyndi Jeffs að stinga boltanum inná Helga en það vantaði aðeins uppá.  Á áttundu mínútu kom fyrsta markið.  Þá átti Stjarnan upphlaup sem endaði með því að Guðni Rúnar sendi boltann fyrir og Stjörnumaður setti boltann í netið.  Eftir þetta var þetta eiginlega búið.  Valur átti eitt færi þegar Stjörnumaður komst fyrir skot Péturs Markan um miðjan fyrri hálfleik og svo átti Atli Sveinn skot í slá af löngu færi en það er varla hægt að kalla færi.  Stjörnumenn bættu við marki fyrir hlé og staðan 2-0 í hálfleik.

 

Seinni hálfleikur var svo eitt stórt kjaftæði.  Það var ekkert í gangi og Valsliðið aldrei líklegt til að ógna markinu hvað þá að skora.  Liðið var í vörn allan hálfleikinn, ef vörn skal kalla því Stjarnan óð í færum og ég nenni ekki að telja það upp.  Spilið hjá Val einkenndist af því að boltinn var gefinn á Marel, sem var búinn að draga sig tilbaka á miðjuna, og hann átti að gera eitthvað og aðrir horfðu á.  Leikurinn endaði svo 3-0.

 

Eftir svona leik þarf að taka liðið í gegn.  Hrósa þarf Haraldi fyrir góðan leik.  Stjarnan skoraði þrjú en þau hefðu getað verið miklu fleiri.  Erfitt er að hrósa nokkrum öðrum.

 

Vörnin var skelfileg og virkar stjórnlaus.  Atli Sveinn er mikill baráttumaður en hann er greinilega enginn leikstjórnandi í vörninni og saknar sárlega Barry Smith til að stýra þessu.

 

Guðmundi Meté virðist vera alveg sama um allt þarna.  Reynir er látinn spila bakvörð og það hefur á sér þann brag að verið sé að troða honum inní liðið, einhverja stöðu bara, því hann er ekki góður bakvörður (ég er mjög kurteis).  Bjarni Ólafur er fyrirliði í vinstri bakverði og lætur ekkert í sér heyra og er að leika langt undir getu.

 

Miðjan er algjörlega týnd og virkar getulaus.  Ólafur Páll var á hægri kant og sást ekki.  Pétur Markan var á vinstri kant og sást mikið en gerði ekkert.  Á miðri miðjunni voru svo Ian Jeffs og Baldur Bett.  Þeir voru lélegustu menn vallarins í gær.  Hlaupa í hringi og horfa á andstæðingana gefa boltann eða hlaupa framhjá sér.  Að pressa boltamanninn er eitthvað sem þeir kunna ekki.  Hræðilegir.

 

Sóknarlega, Helgi Sigurðsson er kominn á skjalbökuhraðann.  Það er verið að reyna að kýla boltann fram á hann og hann á að vera að spretta upp í hornin og ná honum.  Þetta virkar ekki.  Það kom ekkert útúr þessu í gær og meira að segja ef þetta virkar þá er samt alltaf jafn leiðinlegt að horfa á þetta.

 

Marel Baldvinsson er greinilega besti spilarinn þarna.  Það sýnir sig best í því að hann þarf að draga sig úr sókninni inná miðjuna til að búa til spil.  Það endurspeglar líka getuleysi miðjunnar í gera nokkurn skapaðan hlut.

 

Eftir höfðinu dansa limirnir segir einhvers staðar.  Það nær yfir til þjálfarans og svo til stjórnarinnar.  Þjálfarinn leggur upp taktík sem á að spila eftir.  Henni hefur stundum verið líkt við Kick and Run taktík sem flestir halda að sé úrelt.  Hvað sem á að nefna þessa taktík þá er hún leiðinleg og ber takmarkaðan árangur.  Stjórnin nær svo í leikmenn og notar þá fjármuni sem hún hefur milli handanna.  Síðast þegar ég vissi voru þessi fjármunir þó nokkrir og það sýnir sig í þeim “stjörnum” sem liðið hefur “krækt” í.  Þessir gæjar koma og hirða fullt af peningum í laun og fara svo eftir nokkur misseri.

 

Fyrir mér er engin framtíðarsýn í þessu og að enda í 3-5. sæti með þetta lið með þessa peninga í því er verra en að lenda í 10. sæti með unga og efnilega leikmenn og fleiri uppalda sem eiga þá einhverja framtíð.

 

Fyrir leikinn í gær voru Valsmenn búnir að vinna nokkra leiki í röð og menn voru jafnvel farnir að gæla við það að vera í toppbaráttu.  Nú er ljóst að þetta lið á ekki skilið að vera þar.  Það verður að segjast að flestir þessara sigra sem hafa unnist eru iðnaðarsigrar með engum glæsibrag og engu hjarta.

 

Það segir ýmislegt um spilamennskuna í sumar að fólk var yfir sig ánægt með leikinn á móti ÍBV og spilamennskuna þar þegar það var í raun bara sæmileg frammistaða og í raun bara einn góður hálfleikur.

 

Framundan er leikur á móti FH og ég vil ekki hugsa það til enda ef liðið sýnir svona leik þá.  Meira um það síðar.

Digg    Facebook   
Besservisserar (0)add comment

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 11. ágúst 2009 09:23