|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Titillinn í andlitið |
| Höfundur: Tryggvi Jónsson | ||||||||||||
| Mánudagur, 21. september 2009 00:12 | ||||||||||||
|
Segja má að væntingavísitalan hafi ekki verið neitt sérlega há þegar haldið var í Kaplakrikann í dag. Það er skrítið til þess að hugsa að ekki eru nema tvö ár síðan að Valur eyðilagði fyrirhugaða sigurhátíð FH á þessum stað og hirti síðan Íslandsmeistaratitilinn viku síðar. Í dag var möguleiki á að skemma partýið en himinn og haf aðskilur Valsmenn frá toppbaráttunni þetta árið. Við virtumst vera með þetta allt á hreinu fyrir 24 mánuðum en í ár og í fyrra var þvílíkur klassamunur á þessum liðum. „Hvar í fjandanum fór allt til fjandans hjá Val?“ flaug í gegnum kollinn á síðuskrifara þó nokkrum sinnum á meðan leik stóð líkt og svo oft áður í sumar. Stundum fara hlutir hreinlega til fjandans hjá liðum. Við erum svo sem ekkert einir í því í ár og vorum það ekki heldur í fyrra, líkt og Skagamenn máttu reyna. Ekki er heldur langt síðan KR féll úr því að vera meistari í að vera ýmist fallkandídatar eða miðjumoðarar í ein fimm tímabil. Keflavík var við borðbrún Íslandsbikarsins síðasta haust en í ár fór allt í vaskinn þótt fjölmiðlar pæli lítið í því. Kannski er það vegna höfuðborgar dekri blaðamanna eða kannski af því að Valur er búinn að vera svo áberandi lélegur að allir aðrir falla í skuggann af Hlíðarenda hlunkunum. Valsliðið veitti alveg þokkalega mótspyrnu í dag fram að hálfleik. Í stöðunni 1-0 fyrir Íslandsmeistarana átti Helgi Sigurðsson tvö ágætis færi en voru mislagðir fætur. Hinum megin fengu FH-ingar sinn skammt af sénsum líkt og aðrir andstæðingar Vals þetta tímabil. Á lokamínútunni kom Atli Guðnason FH í 2-0 með sínu öðru marki og þar með var Valurinn lagður. Seinni hálfleikur var að mestu tíðinda lítill og FH-ingar lönduðu titlinum í höfn af þeirri yfirvegun og öryggi sem einkennt hefur spilamennsku liðsins síðustu árin. Stöðugleiki FH er áðdáunarverður og svo virðist sem heildarsýn og stefna félagsins sé mun markvissari heldur en víðast hvar annars staðar og ljóst að við Valsmenn getum lært mikið af þeim í þessum efnum. Í enn eitt skiptið í sumar var miðja Vals, borin uppi af Ian Jeffs, Sigurbirni og Baldri Bett, gjörsamlega yfirspiluð. Sigurbjörn virtist vera að ganga úr skaptinu á Íslandsmeistara ári Vals 2007 en stóð upp úr í ömurlegu liði síðasta árs. Þetta tímabilið virðist greinilegt að ellikerling er mætt í bæjarhlaðið og heimtar sitt. Hinir tveir eiga einhver ár upp á að hlaupa og hafa svo sem möguleika á að ná sér á strik á nýjan leik án þess að það sé margt sem bendi til þess miðað við þetta tímabil. Vörnin var gloppótt eins og alltaf, menn misstu annað hvort boltann á hættusvæði, hlupu út úr stöðum eða voru of seinir í tæklingar. Allt er þetta orðið að kunnulegu stefi. Baldri Aðalsteins var þrykkt í hægri bakvörðin og kom það lítið á óvart þegar hann gleymdi því hlutverki og datt í sína náttúrulegu stöðu uppi á kantinum í nokkur skipti. Það er með ólíkindum að það séu ekki til leikmenn úr 2. flokk félagsins sem geta fengið sína eldskírn og fyllt í þessar bakvarðastöður, sérstaklega þegar Valur hefur að nákvæmlega engu að keppa. Engu! Sóknin með þá Helga Sig, Matthías og Arnar Svein átti lítið erindi enda ekki mikil hjálp í restinni af liðinu. Menn náðu svo sem að komast í nokkur færi en það var aldrei nein veruleg ógnun í þessu tríói. Ef það er þess virði að týna til einhverja ljósa punkta í leiknum í dag eru það helst hraustlegar tæklingar hjá Arnari "Geir Sveinssyni" í fyrri hálfleik og hins vegar Viktori Unnari Illugasyni undir lok leiks. Sá síðarnefndi var tæklaður klunnalega af Davíð Þór Viðarssyni sem komst upp með brot sitt eins og svo oft áður. Viktor var ekki sáttur, beið færis og straujaði fyrirliða FH á karlmannlegan hátt skömmu síðar. Klárlega besta augnablik Vals í leiknum og hefðu aðrir leikmenn vel mátt klára sinn spjalda kvóta með álíka tilburðum. Sem betur fer er þessu tímabili næstum því lokið. Bara möguleg rassskelling gegn KR eftir. Valsarar.is eru búnir að út tuða sig fyrir allan peninginn í ár og taka út fyrirfram skammt fyrir næstu þrjú tímabil í það minnsta. Héðan í frá verður haldið kjafti eða skrifaðar tómar lofgreinar. Besservisserar (8)
![]()
Tóti
said:
|
|
... Mér fannst þetta nú í fínu lagi í gær. Auðvitað var þetta tap en samt ekki eins svart og þú talar um. Mér fannst þetta óvenju góður leikur hjá vörninni og miðjan var ekki að tapa fyrir FH. Hvað gerðu Tryggvi, Matthías Vill og Davíð í gær umfram okkar miðju? Svo fengu nú sóknarmenn liðsins fleiri færi en í flestum leikjum sumarsins. Þú málar of svarta mynd af þessu. Ég er sammála þér um að miðjan gæti hafa staðið sig betur eins og allt liðið reyndar. Eins finnst mér þú tala full ósanngjarnt um Bjössa. Hann hefur spilað betur en í sumar og það er rétt að hann virkar þungur en eru meiðsli hans síðast vetur og í sumar ekki að plaga hann? Og að hann hafi verið að hrökkva af skaptinu 2007! Við hefðum ekki unnið mótið nema fyrir frábæra leiki hans á endasprettinum eins og menn eiga að muna. Finnst hann bara svo öflugur leikmaður að ég tek upp hanskan aðeins fyrir hann. |
|
... Get ekki sagt að séi einu sinni nálægt meistaratitli að kr missti af þessu. Skulum ekki gleyma því að miklar líkur eru á að kr rassskelli okkur í næsta leik. |
|
... Málið með Sigurbjörn. Búinn að standa sig vel hjá Val, endingargóður og kominn með ansi marga kílómetra á þessar labbir. Þegar Valur vann 2007 þá var Sigurbjörn mikið á bekknum, kom oft inná ferskur. Manni fannst það hlutverk henta honum ágætlega enda farinn að eldast og mikilvægt að halda honum ferskum. Þetta tímabil hefur það lent á honum að bera uppi þessa miðju. Ég held að það sé verið að láta hann spila of mikið. En það er kannski ekki annað hægt? Hinir gæjarnir eru búnir að vera svo slappir. En þetta er bara enn eitt dæmið um hvað liðinu hefur farið aftur frá 2007, hvað liðið er miklu slakara. |
|
... Ég er nokkuð sammála þér Skyri að hann er kannski bara að spila of mikið. Þyrfti að vera eins og Skols og giggs að vera bara öðrum til stuðnings og spila þegar hann er ferskur. En hann er búinn að vera frábær fyrir Val svo ég vil auðvitað að hann verði áfram í klúbbnum þó ekki væri nema bara til að spila einn og einn leik. |
|
... Það er leiðinlegt að segja það en þetta hlýtur að vera seinasta tímibilið hans Bjössa fyrir Val, hann hefur þjónað liðinu frábærlega og það að hann skyldi ná að vera fyrirliði og lyfta bikar og Íslandsmeistaratitli með Val gerir hann að stórum part í sögu Vals, en nú er komið nóg, hann hefur ekki lengur það sem til þarf og eins og allir knattspyrnumenn þurfa að kynnast þá er hans tími liðinn á þessu leveli, hef trú á að hann muni nú snúa sér að þjálfun neðri deildar lið og hver veit ef það gengur vel gæti hann aftur snúið á Hlíðarenda í líki þjálfara. |
|
... Og við fengum enn einn skellinn sem betur fer er tímabilið búið og við lausir við Atla vonandi endanlega. |