|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Svekkjandi jafntefli |
| Höfundur: Tryggvi Jónsson | ||||
| Þriðjudagur, 28. júlí 2009 13:27 | ||||
|
Valsmenn tóku á móti Keflvíkingum í 14. umferð Íslandsmótsins á mánudagskvöld. Fyrir leikinn var ekki alveg ljóst við hverju var hægt að búast af Valsliðinu. Skellir á móti Fylki og Fjölni í síðustu leikjum á undan gáfu ekki góð fyrirheit auk þess flestir minnugir háðulegrar útreiðar sem Valur fékk snemma móts í Keflavík. Upphafsmínúturnar voru fjörugar í meira lagi. Þrjú mörk litu dagsins ljós á fyrsta korterinu auk fjölda annara færa og voru Valsmenn ívið sterkari. Pétur Markan skoraði snemma leiks en menn voru ekki alveg komnir niður á jörðina þegar Haukur Ingi jafnaði með helst til ódýru marki. Reynir Leósson hafði reynt að spila Hauk rangstæðan sem mislukkaðist og úthlaupið hjá Kjartani var heldur ekki nægilega gott. Valsliðið var fljótt að ná sér af þessu áfalli og kom Helgi Sig liðinu yfir á nýjan leik skömmu síðar. Við tók síðan góður leikkafli hjá liðinu fram að hálfleik og alveg fram að jöfnunarmarki Keflavíkur í seinni hálfeik. Satt að segja var grátlegt að ekki hafi tekist að ganga frá sigrinum á þessum leikkafla því Keflvíkingar áttu sért vart viðreisnarvon. Hvert færið leit annað hjá Val en alltaf vantaði upp á smiðshöggið. Helgi átti bæði möguleika á að skora og leggja upp mörk og eins virtist rangstöðudómur á Pétur Georg vafasamur úr stúkunni þegar hinn sprettharði sóknarmaður skoraði eftir góðan leik Baldur Ingimars. Baldur var einnig við það að sleppa í gegn í eitt skipti en var togaður niður og hinn ávallt ofmetni Kristinn Jakobsson gaf aðeins gult spjald á Keflvíkinginn. En að öllu gamni slepptu var Kristinn prýðilegur á flautunni í gær. Í gær mátti sjá heilmikil batamerki á Valsliðinu. Ian Jeffs var kominn aftur á miðjuna með Sigurbjörn sér við hlið og framan af leik sýndu þeir mun betri takta en oftast áður í sumar. Einnig munaði heilmikið um að fá Baldur Aðalsteinsson inn í liðið sem setti ávallt mikla pressu á varnarmenn Keflavíkur, hvort sem hann var að sækja eða verjast. Eina sem vantaði upp á hjá Baldri var síðasta sending á framherja í nokkur skipti en hún hlýtur að koma með leikforminu. Viktor Unnar var ekki alveg jafn ógnandi á vinstri kantinum og líklega nýtur hann sín betur í framlínunni. Helgi var góður framan af leik en Atli hefði betur skipt honum út af frekar en Viktori þegar Marel var settur inn á. Eins dróg af Sigurbirni í seinni hluta leiksins og var hann oft full langt frá andstæðingunum og skilaði boltanum seint og illa frá sér eftir að hafa staðið sig vel með Jeffs á miðjunni lengi vel í leiknum. Kjartan Sturluson kom aftur inn í liðið eftir að hafa verið á tréverkinu frá því snemma móts. Segja má að þetta sé sanngjörn ákvörðun hjá Atla enda eiga allir menn að fá tækifæri til að sanna sig hjá nýjum þjálfara. Haraldur er búinn að eiga góðar innkomur en hefur einnig átt slæm mistök. Þess ber að geta að hann er í fyrsta sinn á sínum ferli að spila aðalliðsleiki og miðað við það hefur Haraldur sýnt að það er heilmikið í hann spunnið. En hann kemur líka inn í byrjunarlið þegar mannskapurinn er í tætlum og ljóst er að það eru engar draumaaðstæður fyrir markvörð að hefja sinn feril með vörn fyrir framan sig sem er búin að vera jafn óörugg. Vissulega er Kjartan búinn að skila heilmiklu til félagsins en við hljótum að horfa fram á við í þessum efnum sem öðrum. Eitt mikilvægasta hlutverk íslenskra knattspyrnufélaga er að rækta hæfileikaríka leikmenn og helst að koma þeim til manns fyrir atvinnumennsku. Haraldur hefur alla burði til að verða að toppmarkverði en þjálfarinn þarf að skapa honum umhverfi þar sem hann getur blómstrað. Niðurstaðan í leiknum var jafntefli og eftir á að hyggja eru það sanngjörn úrslit. Mestu vonbrigðin eru auðvitað þau að hafa ekki náð að skora þriðja markið í stöðunni 2-1 enda virtust Keflvíkingar ekkert sérstaklega líklegir til afreka. Jöfnunarmark þeirra var klaufalegt í meira lagi, sérstaklega þegar helstu varnarmenn liðsins voru þarna nálægir. Vonbrigðin með úrslitin eru að vissu leyti ljúfsár. Þegar menn eru hættir að svekkja sig á vonlausri spilamennsku liðsins og einstakra leikmanna en eru í staðinn fúlir með að hafa glutrað niður góðum leik í jafntefli sýnir það að liðið er að komast á rétta braut. Atli Eðvaldsson hraunaði yfir eitt og annað í viðtölum í gær og sá sem þetta skrifar getur ekki annað en verið sammála honum í öllum megin atriðum. Hvort að Atla vinnist tími til að snúa þessu við er annað mál en stærsta prófraun hans með liðið kemur á sunnudaginn næstkomandi þegar KR-ingar koma í heimsókn í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar. Væntanlega dregur þessi stórleikur úr bílaumferð frá miðborginni þótt úthverfaliðið austan Kringlumýrarbrautar verði á faraldsfæti.
Besservisserar (2)
![]()
Rauður
said:
|
|
... Það er líka hressandi þegar þjálfarinn talar tæpitungulaust, en vissulega er íhugunarefni hvernig jafn illa gat farið innanstokks í liðinu undir stjórn Willums... |
|
... Flott umfjöllun strákar, þið eru að rokka! Það hefur bara sýnt sig að Willum var búinn með sinn tíma eftir síðasta tímabil. Grátlegt að hann var ekki látinn fara þá. Annars er ég sammála Atla í einu öllu og vona ég að hann nái að snúa dæminu okkur í hag. |