|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Svefn(g)englar |
| Þriðjudagur, 16. júní 2009 12:22 | ||
![]() Ætli sófa Valsararnir hafi horft allan tímann? Valsarar voru mættir á Kópavogsvöll á mánudagskvöldið að sjá sína menn etja kappi við Breiðablik. Tölfræðin hefur ekki verið okkur í hag á heimavelli Blika síðustu árin en það virðist vera að snúast við og unnu Valsmenn útileik liðanna annað árið í röð. Skemmtanagildið var ekki upp á marga fiska en líkt og Willum Þór hefur talað um undanfarið þá er sígandi lukka best. Eða eitthvað svoleiðis. Valur náði forystu þegar um 20 mínútur voru liðnar af leiknum. Laglegt samspil þeirra Helga og Marels galopnaði vörnina og Baldur Bett komst á auðan sjó inn í vítateig Breiðabliks og opnaði markreikninginn sinn þetta sumarið. Glæsileg sókn og glæsileg afgreiðsla hjá Baldri. Eftir þetta létu Valsmenn Blikum eftir að sækja. Segja má að Valur hafi varla farið almennilega sókn það sem eftir lifði leiks og ekki eitt einasta færi leit dagsins ljós. Blikar eru vissulega skæðir fram á við en að sama skapi mega menn alveg reyna að klára leiki í stað þess að hanga á eins marks forystu eins og vaninn er stundum hjá Valsliðinu. En jæja. Blikar fengu sinn tíma með boltann en lítið athafnarými hins vegar. Valsmenn lokuðu svæðum mjög vel og voru duglegir að brjóta sóknir heimamanna á bak aftur. Kópavogsbúar voru vissulega mun meira með boltann en sköpuðu litla sem enga hættu og þegar nálgast tók vítateiginn voru turnarnir í Valsvörninni með allt undir sinni stjórn. Varnarlína Vals var ekki beint árennileg fyrir smávaxna leikmenn Breiðabliks en hún var skipuð þeim Reyni, Atla Svein, Gumundi Viðari og Bjarna Ólafi. Fyrir aftan hana var svo Haraldur Björnsson öryggið uppmálað. ![]() Það gerðist þó um miðjan síðari hálfleik að einn Blikinn reyndi að fara í skallaeinvígi við Guðmund Viðar. Mete hafði reynt að skalla frá en vildi ekki betur til að boltinn fór beint upp í loftið. Arnór Sveinn bakvörður Blika ákvað að hoppa í bolta sem hann virtist ekki eiga nokkurn möguleika í og fór ekki betur en svo að hann skallaði Guðmund. Augljós aukaspyrna og gult spjald hugsuðu flestir Vals megin í stúkunni. Garðar Örn Hinriksson dómari sá hlutina hins vegar öðruvísi. Hann sleppti að dæma aukaspyrnu og slapp þannig við að gefa Blikanum sitt annað gula spjald og hafði frekar uppkast. Hins vegar bókaði Garðar Guðmund Mete sem var ekki par sáttur við Blikann unga og átti einnig orðastað við þjálfara Breiðabliks. Ólafur Kristjánsson sýndi furðulegt látbragð sem var honum ekki beint til vegsauka en Garðar lét sér duga að spjalda liðsstjóra Breiðabliks. Furðuleg uppákoma og Garðar virðist ekki vera að koma neitt sérstaklega vel undan vetri frekar en í fyrra.. Kópavogsliðið hélt áfram að dútla með boltann það sem eftir lifði leiks en vörn Vals sá við öllum þeirra sóknaraðgerðum. Viðbótartími Garðars átti að vera fjórar mínútur en hann ákvað að hafa þær fimm af einhverjum óljósum ástæðum. Sókninn hjá Val var á sama tíma full kærulaus en varnarmenn liðsins sáu um að landa þremur stigum og halda í bilið milli Vals og toppliðs FH. Það er ekki beint hægt að segja að okkar menn hafi spilað áhættusækinn bolta síðustu 12 mánuði eða svo. Eftir brösulega byrjun á Íslandsmótinu á síðasta ári skipti Willum yfir í leikaðferð sem gengur út á að menn fari sér engu óðslega. Margoft hafa síðuskrifarar á valsarar.is tuðað yfir þessari leikaðferð sem hefur gefist vægast sagt misjafnlega. Á síðasta tímabilli komu flestir sigrar liðsins gegn miðlungsliðum sem reyndu að sækja en okkar menn áttu í litlum vandræðum með að brjóta þau niður. Aðferðin virkaði hins vegar engan veginn gegn betri sóknarliðum eins og FH og Keflavík sem tóku 10 stig af 12 gegn okkur. Þetta virkaði heldur ekki heldur á móti fallistunum í HK og ÍA sem lágu í skotgröfunum og höfðu engan áhuga á að spila sóknarleik frekar en Valsliðið. Þessi lið hirtu einnig 10 stig af 12 gegn okkur. Ekki eru allir sáttir við spilamennsku Vals Það tekur langan tíma að snúa vörn í sókn og oft gengur leikskipulagið út á að kýla boltann á framherja sem eru vægast sagt ekki þeir fljótustu í deildinni. Stundum er alltof lítið um samspil en í gær var þetta samt full vandræðalegt. Liðið gat á tíðum ekki þrætt saman tvær til þrjár sendingar og var strax búið að gefa Blikum boltann á ný eftir að vörnin hafði unnið hann. Slíkt kann ekki góðri lukku að stýra. Á móti kemur að liðinu skortir ákveðið sjálfstraust þegar það fer fram á við. Mikil endurnýjun hefur átt sér stað á skömmum tíma og það tekur auðvitað ákveðinn tíma fyrir menn að slípast saman og fá tilfinningu fyrir hvor öðrum. Einnig skipta meiðsli lykilmanns eins og Baldurs Aðalsteinssonar máli en hann hefur inn og út úr liðinu vegna meiðsla í töluverðan tíma. Þegar Baldur er heill er hann einn allra besti leikmaður deildarinnar, svo einfalt er það. Vissulega erum við með hættulega sóknarmenn sem geta gert skemmtilega hluti en við erum líka með marga leikmenn sem eru ekki lengur á sínu allra besta skeiði. Þegar liðið ætlar sér að liggja jafn aftarlega eins og í leik sem þessum hlýtur spurningin að vakna um hvort ekki sé vænlegra að hafa annað hvort Viktor Unnar eða Pétur Georg Markan til taks í framlínunni. Báðir búa þeir yfir meiri hraða en Marel og Helgi. Gömlu jálkarnir (Marel er að vísu bara 29 ára) voru vissulega mjög duglegir við að halda Blikunum niðri en það vantaði meiri ógn frá þeim þegar liðið reyndi að fara í hröð upphlaup. Jákvæðasti hlutinn úr leiknum eru auðvitað þrjú stig en þau hafa ekki verið auðsótt í Kópavoginn í gegnum tíðina. Sigur í leik þar sem við vorum alls ekki að sýna neitt af viti er góðs viti, eins furðulega og það kann að hljóma. Mannskapurinn er það öflugur að liðið gæti allt eins farið að smella saman þegar líða tekur á seinni hluta mótsins og því er mikilvægt að hirða stigin í svona leik jafnvel þó þau séu stundum óverðskulduð. Vörnin hjá okkur er að komast í ógnar gott form og einnig er Ian Jeffs allur að koma til á miðjunni. Baldur Bett var farinn að líkjast 2007 útgáfunni af sjálfum sér mun meira og það veit bara á gott. Þeir Guðmundur Mete og Reynir Leósson voru síðan virkilega fastir fyrir í kvöld og Mete minnti menn á að hann er ekkert lamb að leika sér við þegar sá gálinn er honum. Að síðustu er vert að nefna Harald Björnsson sem er hvergi banginn þrátt fyrir ungan aldur. Haraldur greip oft vel inn í þegar þess þurfti og það er erfitt að sjá Kjartan Sturluson ná sæti sínu á nýjan leik með þessu áframhaldi. Næsti leikur Vals er á Hlíðarenda í bikarnum gegn Álftanesi á fimmtudaginn en næsti deildarleikur fer fram á heimavelli á mánudaginn þegar ÍBV kemur í heimsókn. Orðið er laust. Besservisserar (5)
![]()
Tryggvi
said:
|
|
... Vel gert Torres. Einnig fær TonyK sérstakar þakkir fyrir þátttökuna í þessari stórskemmtilegu keppni. |