|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Sumarið hafið |
| Höfundur: Tryggvi Jónsson | ||||||||||
| Miðvikudagur, 12. maí 2010 18:25 | ||||||||||
|
Valsarar.is eru komnir í sumar fluggírinn
Ókei, Íslandsmótið er hafið og valsarar.is eru að vakna af værum blundi. Fyrirfram hefði 2-2 jafntefli við Íslandsmeistara FH þótt ágætis úrslit í fyrstu umferð en miðað við spilamennsku liðanna er ekki laust við að Valsarar geti leyft sér að vera pínu súrir með niðurstöðuna. Stjórn Vals ásamt þjálfara liðsins er búin að stokka rækilega upp og segja má að okkar menn séu eitt risastórt spurningamerki eftir vetrar tiltektina. Ekkert bólaði á gömlum jálkum eins og Helga Sig, Arnari Gunnlaugs og Mareli Baldvins (og Bjarna Ólafi) eða hvað þeir hétu allir en í staðinn eru komnir nokkrir sprækir kappar en þó í bland við burðarása eins og Kjartan, Atla Svein, Reyni Leós, Baldur Ingimar að ógleymdum Sigurbirni Hreiðars. Það mátti sjá strax á upphafsmínútunum að Valsliðið sem mætir til leiks í ár er allt annað en það sem lauk Íslandsmótinu í fyrra með skömmustulegri frammistöðu gegn KR. Enginn í liðinu virðist líta of stórt á sig og allir eru tilbúnir að leggja sig fram fyrir hvorn annan. Eitthvað sem var ansi sjaldgæf sjón síðustu tvö tímabil en nóg um samanburðin við þau rándýru flopp lið. Mótið 2010 er hafið og allt sem gerðist í fortíðinni er komið ofan í kassa með hinu dótinu enda er það venjan að horfa fram á við á Hlíðarenda fremur en að dvelja of lengi í fyrri tíð.
Meira en stór fiskur í lítilli tjörn?
Okkar menn fengu stórveldi 21. aldarinnar í heimsókn og fyrirfram var vart hægt að hugsa sér erfiðari andstæðing í 1. umferð. FH-liðið mætti hins vegar laskað til leiks og fjórir til fimm byrjunarliðsmenn frá því á síðasta ári voru meiddir og brotthvarf Davíðs Þórs og Tryggva Guðmunds á eflaust eftir að taka sinn toll af meisturunum. Ef FH hefur einhvern tímann legið vel við höggi þá var það nú. Eitt af einkennum Hafnarfjarðarrisans er að menn eru orðnir ansi rútíneraðir í sinni leikaðferð og flest allir leikmenn liðsins eru öruggir á boltann. Það þekkja allir sitt hlutverk í liðinu og það sem FH gerir öðrum íslenskum liðum betur er að halda tuðrunni innan liðsins á meðan flestum leikmönnum annara félaga er mjög tamt að negla fram undir eins. Ekkert íslenskt lið getur leikið þessa aðferð FH-inga eftir með góðu móti og því svo sem ekkert vit í að reyna að spila samskonar leik og þeir. Valsmenn gáfu FH-ingum því lítinn tíma til athafna og voru fljótir að keyra á þá í sókninni enda hraðinn orðinn mun meiri fram á við með tilkomu Arnars Sveins og Danni Köning. Eftir rúman hálftíma leik var ísinn brotinn með marki frá danska framherjanum sem nýtti færi sitt vel gegn Gunnleifi landsliðsmarkverði. Við þetta mark má segja að FH-ingar hafi vaknað til vorsins og settu þeir allt í gang. Kjartan gerði vel að verja rétt eftir markið en aðeins fáum andartökum síðar var boltinn kominn í net Valsmanna þegar rangstöðugildran brást eftir vippusendingu. Glæsilegt mark svo sem en engu að síður hefði vel mátt koma í veg fyrir þetta. FH-ingar voru ekki langt frá því að komast yfir fyrir leiklhlé en Valsmenn héldu út og voru eflaust flautunni fegnir.
Fimleikafélagið hefur staðið öðrum framar í fótbolta síðustu árin
Í síðari hálfleik virtust Valsmenn vera með undirtökin án þess þó að yfirspila FH að neinu ráði. Miðjumenn Vals áttu í litlum erfiðleikum með starfsbræður sína í FH liðinu og það má vel setja efasemdir fram um hversu verðugur arftaki Herra Fjölnir er að miðjustöðunni sem Davíð Þór Viðarsson skildi eftir sig. Það er spurning hversu mikla þolinmæði Mafían hefur gangvart þessum nýja liðsmanni sem skapaði sér nafn í neðrideildunum og á aðeins tvö tímabil í úrvalsdeild að baki. Valsliðið er aftur á móti enn í talsverðri mótun og ekki sama pressa á titilbaráttu í ár á Hlíðarenda og í Kaplakrika og líklegra að það sé aukið pláss fyrir mistæka nýliða. Eftir að Arnar Sveinn kom Val í 2-1 leit þetta virkilega vel út og Fimleikafélagið virtist ekki vera með nein svör að ráði við leikaðferð Knattspyrnufélagsins. Allt þar til að það fann þau hjá Kristni Jakobssyni dómara leiksins. Þegar rúmar 10 mínútur voru til leiksloka bjargaði Kristinn stigi fyrir gestina með algjöru gjafavíti. Dómari sem er hampað þetta mikið fyrir sína meintu getu á einfaldlega ekki að falla fyrir svona svindli. Sumum finnst kannski bara gaman að láta plata sig en þannig fólk á að halda sig á sýningum hjá Bjarna töframanni en ekki dæma fótboltaleiki. Það er síðan furðulegur ávani hjá Kristni að gefa mönnum alltaf gult spjald um leið og hann flautar vítaspyrnu, eins og það eigi að undirstrika hversu viss hann er í sinni sök. Í þessu tilfelli er augljóslega engin brotavilji hjá Reyni og Matthías er að senda boltann út úr teignum, ekki í átt að marki og í alls engu skotfæri. Það voru talsvert alvarlegri brot hjá báðum liðum í þessum leik sem hefðu verðskuldað spjald en þetta er greinilega einhver taktík hjá Kristni, kannski hugsað til að koma í veg fyrir mótmæli. Martin Pedersen lenti meðal annars í ryskingum þegar FH-ingar vildu meina að hann hefði traðkað ofan á Gunnari Má sem hafði átt vægast sagt klaufalega tilraun til tæklingar á hann. Báðir hefðu réttilega átt að fá bókun en greinilegt er að Martin er enginn aukvissi og lætur engan eiga neitt inni hjá sér. ![]() Sumum finnst gaman að láta plata sig
Gunnar Már skoraði síðan úr spyrnunni en það hafa eflaust verið Kjartani vonbrigði að gera ekki betur enda var hann kominn í rétt horn og spyrnan virkaði ekkert alltof örugg. Hvorugt liðið lagði allt í sölurnar til að ná í öll þrjú stigin en Ólafur Páll Snorrason var næst því að skora en brást bogalistin eins og svo oft áður þegar hann kemst í hættulega stöðu. Leikmenn Vals voru flestir að standa fyrir sínu og gaman að sjá liðið vera orðið þess fært að sækja hratt á andstæðinga sína að nýju. Haukur Páll Sigurðsson stimplaði sig heldur betur vel inn í liðið en hann virðist mikið leiðtogaefni sem gefur ekki þumlung eftir, skilar boltanum vel til samherja og er duglegur að hvetja menn áfram. Það er vert að gefa þessum pilti gaum í sumar. Kristinn Jakobsson verður seint talinn í uppáhaldi hjá Völsurum og hann náði sér í enn einn mínusinn í kladdanum okkar. Það er með hálfgerðum ólíkindum hversu oft við fáum á okkur dóm hjá Kristni sem orkar tvímælis á meðan við virðumst aldrei njóta vafans þegar hlutirnir gerast í vítateig andstæðinganna. Auðvitað er lítið mál að afgreiða þetta sem hvert annað væl eins og oft vill gerast í íslenskri umræðuhefð en þetta verður vægast sagt ergilegra með hverju skiptinu hjá honum. Vonandi var þetta síðasta vafasama vítið sem Kristinn dæmir á okkur og þá geta allir unað sáttir.
Nýjir vendir sópa best
Fyrstu einkennin á handbragði Gunnlaugs Jónssonar er sterk og góð liðsheild þar sem menn ætla að berjast fyrir hvorn annan. Það er ekki hægt að segja að neinn stjörnufans sé yfir liðinu enda áttu margir leikmenn sitt versta tímabil á ferlinum í fyrra og flestir nýliðarnir lítt þekktar stærðir í íslensku deildinni. Þetta er auðvitað ekkert samansafn af tombólu leikmönnum heldur en fyrsti leikur Íslandsmótsins gefur í það minnsta góð fyrirheit og vonandi getum við Valsmenn byggt ofan á þetta innan vallar sem utan. Stemmningin í stúkunni var prýðileg, um 1800 manns mættir í fullsetna stúku og gott betur. Þó nokkrir komu í grill við Fjósið og það verður vonandi enn meira stuð þar þegar þær áætlanir sem upp eru um nýtingu hússins komast í framkvæmd. Nánar að því síðar. Besservisserar (5)
![]()
p-sæm
said:
|
|
... Einmitt, eitt það besta við þetta kvöld var mætingin. Frábært að sjá alla þessa Valsmenn mæta og styðja sitt lið. En það er náttúrulega annað sem gæti hafa spilað inní þetta t.d.: Veðrið: frábært veður Andstæðingurinn: Alltaf besta mætingin þegar við mætum sterkari liðunum og svo var þetta náttúrulega okkar fyrsti heimaleikur í deildinni í ár en ég vona að mætingin verði áfram svona í allt sumar. Áfram Valur |
|
... Flottur pistill eins og alltaf hjá ykkur. Við eigum eftir að eiga fínt sumar með vanmetið, en þó sterkt lið. Hefði verið næs að taka öll stigin, en svona er boltinn og Kiddi Jak. |
|
... Skemmst ber að minnast þegar að Davíð Þór Viðarsson gerði tilraun til að enda knattspyrnuferil Dennis Bo Mortensen þegar að hann hoppaði með sólann í hnéð á honum og reif krossbandið hjá honum. Þarna tók Davíð sig til, eins og hann hefur gert áður, með grófri líkamsárás sem á enga snertingu við knattspyrnu og KRistinn Jakobsson sem var heppinn að verða ekki fyrir árásinni þar sem að hann var svo ofaní atvikinu gaf Davíð gult spjald fyrir vikið. Klárt dæmi um eitthvað sem hefði verðskuldað langt bann. |
|
... 'Asi Sveinss , er ekki nog komid med Kidda Jakobss domara, hann getur bara batnad og til umhugsunar fyrir thig afthvi ad hann er thitt adal ahugamal tha dæmdi hann EKKI leikinn thegar Dennis meiddist heldur Magnus Keflvikingur, verum malefnalegir og vid skulum hætta ad rifast ut af domgæslu og hvetja frekar menn til ad gera betur eins og vid gerum med okkar lid. Afram Valur |
|
... Man ekki betur en að Magnús hafi tognað eða eitthvað í þá áttina og Kristinn tekið hans stað... |