|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Slegnir í gólfið |
| Mánudagur, 22. september 2008 01:25 | ||
|
Í enn eitt skiptið í sumar þarf að skrifa um tapleik Vals og nú gegn Fram af öllum liðum. Klúður á dauðafærum, slök varnarvinna, fólskulegt olnbogaskot, týndir boltastrákar, ásamt "rúnku-signali" frá Þorvaldi Örlygssyni var meðal efnis í einum af síðustu austurbæjarslögunum áður en Fram hverfur
upp í Grarfarholt.
Fyrsta mark leiksins átti Fram og kom það á 8. mínútu en þá höfðu þeir þegar skapað sér tvö hættuleg færi og meðal annars átt skot í slá. Valsmenn virkuðu hálf sofandi og Ívar Björnsson nýtti sér það þegar hann var á auðum sjó inn í vítateig Vals þrátt fyrir fjölda rauðklæddra leikmanna alls staðar í kring.
Valur lentur undir og slíkt hefur ekki kunnað góðri lukku að stýra hingað til. Valsliðið vaknaði af værum blundi og má svo sem eiga það að það reyndi að sækja það sem eftir lifði hálfleiks. Liðið leit þokkalega út en var ekkert að sundurspila Fram frekar en önnur lið það sem af er tímabili. Umdeilt atvik átti sér stað um miðjan hálfleikinn þegar Guðmundur Steinn Hafsteinsson þurfti að fara af leikvelli eftir olnbogaskot frá leikmanni Fram sem hafði stuttu á undan hlotið gult spjald. Furðulegt nokk þá var dæmd aukaspyrna á Guðmund Stein sem lá óvígur eftir.
Heilmikil reykistefna hófst meðal leikmanna á vellinum eftir þetta og skiptust þjálfarar liðanna einnig á glósum. Eitthvað var Þorvaldi Örlygssyni laus höndin og gaf hann Willumi merki um að “kippa í” við mikla furðu Valsþjálfarans. Sannarlega snautlegt af hinum alla jafna dagfarsprúða norðlending og fyrrum lærling Brians Clough.
Það sem pirraði Willum hins vegar meira en handapat Þorvalds var skortur á boltasækjum hjá verðandi Grafarholtsliðinu. Enginn var fjórði dómarinn til að bæta úr hallærinu og í staðinn þurfti ‘W’ að tuða í línuverðinum milli þess sem hann sinnti djobbinu sjálfur. Menn hljóta að spyrja hvort að félag sem ekki hefur þetta í lagi sé hreinlega stætt á því að fá leyfi frá KSÍ til að spila í úrvalsdeild. Hvað þá að fá að spila á þjóðarleikvangnum. Eða hvað þá heldur að fá gefins aðstöðu í Grafarholti í skiptum fyrir land sem þeir eiga ekki einn hektara á. En það er svo sem efni í aðra grein eða lærða ritgerð.
Annað athyglisvert atvik átti sér stað í síðari hálfleik þegar þeir Auðun Helgason og Helgi Sigurðsson þörfnuðust aðhlynningar eftir samstuð. Þegar sjúkraþjálfarar liðanna skokkuðu af velli sást ekki betur en að þeir væru að hnakkrífast og svo virtist sem svampmaður Framliðsins hefði einnig sent Willumi tóninn þegar hann trítlaði framhjá varamannaskýli Vals. Hvað mönnum fór á milli er ómögulegt að segja til um en greinilega er grunnt á því góða milli liðanna, nú sem endranær.
Seinna mark Fram kom stax í upphafi síðari hálfleiks. Valsvörnin var gjörsamlega týnd og Sam Tillen Framari komst óvænt einn inn fyrir. Kjartan Sturluson virtist eiga að geta varið skotið en einhvern veginn lak boltinn framhjá honum og í markið. Í enn eitt skiptið á síðustu misserum leit Kjartan illa út og það er hreinlega spurning hvort öll sú neikvæða umræða sem hefur fylgt landsliðsvali hans sé að hafa áhrif á frammistöðurnar.
Baldur Aðalsteinsson minnkaði muninn um miðjan síðari hálfleik og eftir það hljóp aukið líf í sóknarleikinn. Hafþór Ægir komst næst því að jafna þegar hann fékk færi einn gegn Hannesi Halldórssyni en tókst ekki að nýta það. Sigurbjörn komst einnig í upplagða stöðu stuttu síðar en náði ekki almennilegu skoti. Krafturinn úr sóknarleiknum fjaraði síðan út á lokamínútunum, Framarar gerðu það skynsama í stöðunni, spiluðu upp í hornfána, töfðu út uppbótartímann og fóru sáttir af velli með sín þrjú stig.
Baldur Ingimar sýndi og sannaði mikilvægi sitt fyrir liðið í þessum leik og sjálfsagt er fjarvera hans í sumar stór ástæða fyrir slöku gengi á tímabilinu. Uppgangstími Vals síðustu ár hefur að mestu leyti haldist í hendur við sóknarleikinn sem hefur ekki síst verið borinn uppi af honum, frelsaranum og síðan skæðum framherja.
Helgi Sigurðsson lék einmitt það hlutverk lista vel í fyrra en gegn Fram olli hann vonbrigðum líkt og í svo mörgum leikjum í ár. Meiðsli hafa vissulega spilað inn í hans frammistöðu en engu að síður er dapurt að sjá þennan reynda leikmann láta grípa sig í rangstöðugildru andstæðinganna trekk í trekk. Helsti styrkleiki Helga er auðvitað inn í vítateig mótherjans en eins og Valur hefur spilað í ár þá hafa mínúturnar á þeim hluta vallarins verið ansi takmarkaðar.
Þrátt fyrir allt er Helgi búinn að skora níu mörk í deildinni en samt hefur vantað alla ógnun í leik hans líkt og var einkennandi í fyrra þar sem hann var andandi ofan í hálsmálið á varnarmönnum, vinnandi návígi og gekk vel að halda boltanum meðan liðið færði sig framar. Einnig var samvinna hans og Gumma Ben afbragðs góð en í ár hafa þeir einfaldlega ekki náð að smella saman frekar en restin af liðinu.
Tímabilið hjá Val hefur ekki verið samkvæmt væntingum líkt og svo oft hefur verið rætt um hér á http://valsarar.is. Eftir frábært undirbúningstímabil var full ástæða til bjartsýni en vandræðagangur í upphafi móts, getuleysi gegn lökustu liðum deildarinnar, yfirspilun af sterkari liðum, sala á lykilmönnum að ógleymdum botnlausum meiðslalista eru helstu ástæðurnar fyrir stöðu liðsins fyrir lokaumferðina.
Það sem er samt ótrúlegast er að enn er tækifæri á að ná 3. sæti og örlögin eru að stórum hluta í okkar höndum. Sigur gegn KR þýðir að við eigum góðan möguleika á UEFA sæti og svo framarlega sem Keflvíkingar verða ekki orðnir meistarar þá ættu þeir að vera æstir í sigur gegn Frömurum. Við það bætist að KR spilar bikarúrslitaleik um aðra helgi en oftar en ekki leika slík lið á hálfum hraða.
Að þessu gefnu er full ástæða til að mæta í gargandi bjartsýniskasti á Hlíðarenda í lokaumferðinni líkt og menn gerðu fyrir leikinn gegn Keflavík í fyrstu umferð. Sællar minningar. Besservisserar (4)
![]()
Hákon
said:
|
|
... Hverjir hafa staðið sig í sumar og hverjir ekki? Hvar þarf að styrkja liðið fyrir næsta tímabil. Það er eitthvað að og því verður að kippa í lið sem fyrst. |