• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Slátrun
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Þriðjudagur, 24. ágúst 2010 12:30

 

rambo08

Enn einn skellurinn leit dagsins ljós hjá Val á Vodafonevellinum þegar KR-ingar komu í heimsókn á sinn eftirlætis útivöll. Aðeins Haukar hafa náð að taka stig af KR á nýja vellinum en Valur hefur tapað öllum sínum fjórum leikjum gegn KR og það sannfærandi í hvert einasta skipti. Engin breyting varð á því í gær og 1-4 tap hefði hæglega getað orðið mun stærra ef KR-ingar hefðu ekki slakað á klónni eftir að hafa náð öruggri forystu. 

Eftir bærilegan fyrri hálfleik þar sem Valsmenn fengu þó nokkur færi til komast yfir kom að slæma kaflanum í seinni hálfleik hjá liði Gunnlaugs Jónssonar og þá var ekki að sökum að spyrja. Leikmenn Vals litu út eins og fallbyssufóðrið í nýjustu Stallone myndinni og áttu ekkert í Vesturbæinga.

Í fyrri leik liðanna tókst Valsmönnum að stöðva allt flæði í leik KR-inga en í gær var málum öfugt farið. Vængmenn KR sprengdu upp Valsvörnina hvað eftir annað og ljóst er að Rúnar Már Sigurjónsson verður líklega aldrei góður bakvörður þótt hann sé efni í prýðilegan miðjumann. Eins verður aðallega að setja spurningamerki við liðsval þjálfarans sem ákvað að nota Martin Petersen sem miðvörð fremur en bakvörð gegn liði sem er með sprækustu kantmenn deildarinnar.

cardinal-spanked

Hinu megin átti Stefán í miklum vandræðum með Óskar Örn og hefði Arnar Sveinn mátt vera vakandi fyrir að hjálpa til í varnarvinnunni. Arnar sýnir oft lipra spretti en er enn frekar óheflaður og þarf greinilega meiri tíma til að verða að þeim öfluga leikmanni sem efni standa til. Ekki er úr vegi að spyrja sig hvort ekki megi nota Arnar Svein í framlínunni fremur en formlausan Íra og hafa Baldur Aðalsteinsson í sinni náttúrulegu stöðu á hægri kantinum.

Lítið hefur komið út úr Húsvíkingnum á vinstri helmingi vallarins en kannski á að láta hann spila þar þangað til að það virkar. Ljóst er að sóknarleikurinn er engu minni höfuðverkur en varnarleikurinn en einnig er það einkennandi fyrir Valsliðið hvað menn missa trú á verkefninu við að lenda marki undir. Kannski ekki að furða þegar sóknin er jafn bitlítil en Valsliðið þarf yfirleitt að hafa mikið fyrir hverju marki sem það skorar. 

Það er jafn leiðinlegt að tapa fyrir KR og það er gaman að vinna það en mestu vonbrigðin er þau að hversu lítið erkifjendurnir virtust hafa fyrir sigrinum eftir fyrsta markið. Líkt og í öðrum tapleikjum Vals í sumar var liðið ágætlega inn í leiknum þar til að það lenti undir. Þessi úrslit koma ekki  mikið á óvart miðað við það sem á undan er gengið  á Íslandsmótinu en þegar andstæðingar Vals finna veiku blettina á liðinu þarf ekki að spyrja að leikslokum. Því miður hefur þjálfarinn ekki náð að stoppa í götin enn sem komið er og hreinlega farin að verða spurning hvort honum vinnist tími til þess. 

Næsti leikur Vals fer fram á Selfossi klukkan 18 á mánudegi. Nánar að því síðar.

Digg    Facebook   
Besservisserar (7)add comment

Viva Valur said:

...
Þetta var skelfilegur leikur. Við sjáum varla meira af Gulla Jóns í Val. Hver ætli næsta töfralausn knattspyrnudeildar verði?
18:04 | 26 ágúst | 2010

Bjössi said:

...
Ætli honum verði ekki leyft að klára seasonið. Svo verður Gaui Þórðar kominn í brúnna kortéri eftir mót.
17:53 | 27 ágúst | 2010

Valsarinn said:

...
Á ekkert að fjalla um það sem er í gangi hjá klúbbnum?
16:52 | 28 ágúst | 2010 | url

Tryggvi Jóns said:

...
Þetta er svo mikil sápa að það er ómögulegt að greina byrjunina frá endanum. Gunnlaugur verður varla áfram eftir þetta fíaskó sem bætist ofan á slakan árangur hans í þjálfara hlutverkinu.
11:00 | 29 ágúst | 2010 | url

asdf said:

...
koma valur drasl reykjavikur klúðrum færum og töpum öllum leikjum. þetta er svo sorglegur klúbbur að þið ættuð einfaldlega að leggja hann niður. þegar stuðningsmenn tala um að kvennaliðið í fotbolta sé flaggskip félagsins þá eru víða brotalamir í félaginu. goðar stundir
13:52 | 29 ágúst | 2010

Tryggvi Jóns said:

...
Ég skil ekki alveg þessa rökleiðslu hjá þér asdf. Það að Valur skuli vera með eitt mesta yfirburða lið í sögu íslenskrar kvennaknattspyrnu segir einfaldlega að það sé verið að gera heilmikið rétt og varla tilefni til að leggja félagið niður. En hugsunarháttur fólks er greinilega misjafn.
14:20 | 29 ágúst | 2010 | url

V said:

...
Þetta er KRingur sem er að læðast hér inn og ætlar að bera á borð þetta ferlega ómálefnalega KR tjatt.
Hann áttar sig ekki á því að flaggskip KR er körfuboltinn sem er í sjálfu sér allt í lagi. Ekki er það kallaboltinn þar.
Stelpurnar okkar eru auðvitað frábærar og þarf ekki að draga neitt úr því þó að ekki gangi sem best hjá karlaliðinu núna.
En Valur stendur þetta af sér eins og allt annað sem á klúbbnum dynur.
Nú er það bara leikurinn við Selfoss sem skiptir máli og vonandi gerast góðir hlutir þar.
14:24 | 29 ágúst | 2010

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 24. ágúst 2010 16:44