|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Slappt jafntefli |
| Þriðjudagur, 26. maí 2009 11:12 | ||||
|
Valsmenn öttu kappi við Grindvíkinga á Hlíðarenda í 4. umferðinni í kvöld og fyrirfram var nokkur pressa á báðum liðum. Valsmenn höfðu farið frekar illa af stað í deildinni og fengið einungis þrjú stig í þremur leikjum en það var ekki alveg að standast væntingar allra sem tengjast Val. Grindvíkingar voru hins vegar stigalausir eftir þrjár umferðir og komnir með nýjan þjálfara. Byrjunarlið Vals var á þann veg að Kjartan var í markinu og Steinþór, Reynir, Atli Sveinn og Bjarni Ólafur í markinu. Á miðjunni höfðu verið gerðar breytingar frá Keflavíkurleiknum. Sigurbjörn kom aftur inn og stillti sér upp með Ian Jeffs á miðri miðjunni. Baldur Aðalsteinsson tók hægri kantinn og Ólafur Páll þann vinstri. Frammi voru sem fyrr tankarnir Marel Baldvinsson og Helgi Sigurðsson. Á fyrstu mínútum leiksins var ljóst hvernig leikurinn átti eftir að þróast. Grindvíkingar ætluðu að liggja til baka, reyna að hafa vörnina þétta og treysta á skyndisóknir. Þannig var leikurinn Valsmanna að stjórna. Lítið var um markverð atvik framan af en eftir rúmlega 15 mínútna leik dró til tíðinda. Grindvíkingar fengu aukaspyrnu og hver annar en Scott Ramsey steig upp og spyrnti að marki. Áhorfendur vissu svo ekki meir fyrr en þeir sáu boltann liggja í marknetinu. Með þessa óskabyrjun gátu Grindvíkingar enn frekar treyst á að liggja tilbaka og sótt svo hratt upp. Ástandið batnaði ekki eftir þetta því skömmu síðar fékk Reynir höfuðhögg sem skildi hann eftir ringlaðan og neyddist hann til að yfirgefa völlinn og Guðmundur Mete kom inná í staðinn. ![]() Áfram voru Valsmenn meira með boltann en ekkert gekk að koma sér í færi og Grindvíkingar voru í skyndisóknapakka. Úr einni slíkri fengu þeir algjört dauðafæri þegar Ondo framherjinn þeirra slapp í gegn en skaut framhjá. Valsmenn sluppu með skrekkinn þarna en eftir þetta fóru þeir að koma sér í einhver færi. Fyrst átti Helgi ágætan skalla sem var varinn og svo undir lok hálfleiksins átti Jeffs skalla framhjá úr dauðafæri. 1-0 fyrir gestina í hálfleik og maður var hálf súr í hálfleik. Valsmenn gerðu breytingu í hálfleik en Guðmundur Steinn kom þá inn fyrir Baldur Ingimar. Grindvíkingar byrjuðu betur og fengu gott færi en Kjartan varði ágætlega skalla eftir horn. Eftir þetta var leikurinn að mestu eign Valsmanna. Gestirnir duttu aftar og aftar og Valsmenn fengu allan völlinn til að spila með. Inní boxinu myndaðist svo mikill pakki og heimamenn náðu ekki að búa sér til almennileg færi lengi vel. Þeir áttu þó nokkrar ágætar tilraunir, Marel, Ólafur Páll og Guðmundur Steinn áttu allir skot úr sæmilegum færum en alltaf fór boltinn framhjá. Þegar átta mínútur voru eftir náðu Valsmenn svo að jafna metin. Atli Sveinn kýldi þá boltann inní teig og þar náði Guðmundur Steinn að skalla boltann fyrir markið þar sem Marel kom svo og kastaði sér á boltann og skallaði í netið. Marel lét svo aftur til sín taka í teignum skömmu síðar þegar hann skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf. Menn voru farnir að fagna en sáu svo að línuvörðurinn var með flaggið og hafði einhvern veginn séð rangstöðu út úr þessu. Eftir þetta liðu mínúturnar og leikurinn endaði með 1-1 jafntefli. ![]() Úrslitin í kvöld þýða að Valur er með fjögur stig eftir jafnmargar umferðir og er í neðri hluta deildarinnar. Það er einfaldlega langt frá því að vera ásættanlegt staða. Í leiknum í kvöld sást greinilega að Kjartan markvörður er ekki alveg að finna fjölina sína þessa dagana og markið verður að skrifast alfarið á hann. Óöryggi einkennir einnig vörnina og samspilið á milli varnar og markmanns er eftir því. Ef það næst ekki að laga þessa hluti fyrir næstu leiki er ljóst að sumarið á eftir að verða erfitt. Í ofanálag fannst mér vera lítil stemmning í liðinu í leiknum og heila dæmið virkaði frekar þreytt á mig. Það skrifast kannski á þjálfarann að ná ekki að byggja upp betri stemmningu en ábyrgð leikmanna er líka mikil. Menn hafa líka talað um liðið sé svo mikið breytt frá síðasta tímabili og eitthvað er til í því. Það nær þó bara visst langt og þegar byrjunarliðið í gær er skoðað sést að liðið er nú ekki alveg jafn “nýtt” og hefur verið látið af með. Kjartan er í markinu eins og áður. Í vörninni er Reynir Leósson eini nýi maðurinn. Bjarni, Steinþór og Atli eiga að þekkja kerfið út og inn. Á miðjunni voru Sigurbjörn og Baldur Aðalsteinsson sem eru búnir að vera þarna lengi en Jeffs og Ólafur Páll koma nýir inn þar. Frammi er svo Helgi sem allir þekkja og Marel er nýr. Svo er það staðreynd að nýju leikmennirnir, og flestir þeirra sem voru fyrir, eru mjög reynslumiklir og ættu að hafa séð eitt og annað á ferlinum. Afsaknir um að liðið þurfi að slípa sig saman og spilast í form halda því ekki mikið lengur. Auk þess eru þó nokkrir í hópnum sem eru fyrrverandi atvinnumenn og maður hefði haldið að það væri kostur sem myndi skila sér betur. Willum Þór Þórsson verður síðan að geta tekið gagnrýni fjölmiðlamanna á faglegri hátt. Vissulega geta menn verið illa fyrir kallaðir eftir dapra leiki en svara með hálfgerðu tómlæti líkt og í viðtalinu við Gaupa í gær gefur sögusögnum um að ekki sé allt með felldu í búningsklefanum byr undir báða vængi. Á jákvæðari nótum þá verður að hrósa Guðmundi Steini sérstaklega fyrir leikinn gegn Grindavík. Hann kom inná í hálfleik og var stórhættulegur auk þess að leggja upp markið. Hann var klárlega hættulegasti miðjumaðurinn og hann getur sprengt upp varnir. Vonandi er Guðmundur búinn að spila sig inní byrjunarliðið með þessari frammistöðu. Svo er Marel virkilega sterkur uppá toppnum, góður í skallaeinvígjum, frekar leikinn og setti náttúrulega gott mark þarna. Framundan hjá Val er útileikur á móti Fram. Þeir eru einnig með fjögur stig og það þarf ekki að taka það fram hvað sá leikur er mikilvægur. Meira um það síðar. Besservisserar (2)
![]()
Guðfaðirinn
said:
|
|
... En fjölmiðlar landsins eru ekki vettvangur til þess að vera tjá sig um óænægju sína.... Ég skil hann fullkomnlega , væri furðulegt að vera bara sáttur við þetta...... En að vera tjá sig við göltinn á fotbolta.net og Henrý Burger skil ég ekki.... Þetta er ekki leiðin að reyna komast í liðið hjá Willum... Menn sem hata Val eins og Gölturinn,net og Burgerinn gera í því að reyna fá menn til að vera ónægðir hjá félaginu og búa til spennu... skil bara ekki í Markan að vera tjá sig um þessa hluti við þá félaga... Þetta er mál sem á að leysa innanbúðar hjá okkur Valsmönnum |
|
... Sammála síðasta ræðumanni, algerlega óviðunandi að það er ekki kominn júní og maðurinn er strax farinn að væla í fjölmiðlum. Ef hann er ósáttur á hann bara að leggja harðar að sér - engan veginn tímabært að væla eftir fjóra leiki. |