• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Slæmur dagur
Höfundur: Ásgeir Tryggvason   
Föstudagur, 03. júlí 2009 13:59
Rassskellur

Valsarar voru mættir á Hlíðarenda í gær til að sjá fyrsta sannkallaða stórleik sumarsins.  Þetta átti allavega að vera stórleikur en það fór svo að bara annað liðið átti stórleik en hitt liðið átti lélegan leik.  Því miður var það FH sem átti stórleikinn og þeir grilluðu Valsmenn 5-0 í leik sem var eiginlega of ójafn.

 

Þorgrímur gerði nokkrar breytingar á liðinu sem var skellt í Garðabænum í síðustu viku.  Steinþór kom inní vinstri bakvörðinn og Bjarni Ólafur var færður fram á vinstri kantinn.  Jeffs og Bett var kippt út og inn komu Sigurbjörn og Einar Marteinsson.  Svo kom Guðmundur Steinn inn fyrir Helga.  Þessar breytingar skiluðu í raun engu því Valsliðið komst aldrei gang og þeir voru í eltingaleik nánast allan leikinn.

 

Ég ætla ekki að fara rekja gang mál eitthvað sérstaklega hér eða taka liðið eitthvað í sundur eins og ég gerði eftir Stjörnuleikinn.  Þeir sem sáu leikinn í gær sáu tvö lið sem eru á mjög ólíkum stöðum í tilverunni.  FH-liðið er léttleikandi og sókndjarft lið sem er jafnframt þétt og menn fastir fyrir.  Liðið er rútínerað og menn vita hvar næsti maður er.  Valsliðið er nánast andstaðan við þetta eins og er.

 

Það verður að segjast að tímasetningin á leiknum í gær var slæm fyrir Val.  Þessa dagana eru að eiga sér stað miklar hræringar innan knattspyrnudeildar Vals.  Willum er nýfarinn og ekki er vitað hver tekur við.  Við slíkar aðstæður er erfitt að fara inní leiki og hvað þá að mæta FH þegar þeir eru í formi.  Það kom svo bara í ljós að þeir eru nokkrum númerum of stórir fyrir Val þessa dagana.

 

Það er mikilvægt að það skapist ró um þessa þjálfarastöðu sem fyrst og að góð niðurstaða fáist í það mál því næg eru verkefnin fyrir nýjan þjálfara.  Framundan eru leikir sem skipta miklu máli, bikarleikur á móti KA og deildarleikur á móti KR.  Í þessum leikjum fær Valur tækifæri til að sýna sitt rétta andlit, eða að bjarga andlitinu, fer eftir því hvernig á það er litið.

Digg    Facebook   
Besservisserar (0)add comment

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Föstudagur, 03. júlí 2009 14:04