|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Skrifað í skýin |
| Höfundur: Tryggvi Jónsson | ||
| Miðvikudagur, 19. maí 2010 14:30 | ||
|
Ekki fer þessi leikur við ÍBV í sögubækurnar fyrir aðrar sakir en þær að eldgosið í Eyjafjallajökli var þess valdandi að hann fór fram á Hlíðarenda en ekki Hásteinsvelli. Fyrri hálfleikur var samt með þokkalegasta sniði. Rautt spjald, vítaspyrna í súgnn, tvö mörk og Eyjamenn náðu að jafna manni færri. Það var engu líkara en að Valsmönnum væri ekki ætlað að sigra Eftir að einn eyjapeyjinn hafði gert sig sekan um að verja boltann með hendi á marklínu var ekki um annað að ræða fyrir Magnús Þórisson en að dæma víti og gefa rautt spjald. Heimir Hallgrímsson þjálfari ÍBV kvartaði yfir þessu en hann veður reyk með þessum ummælum. Ef menn eiga að fá að græða á brotum þá er alveg eins hægt notast við reglubók Alþjóða handknattleikssambandsins. Haukur Páll steig á punktinn og svo virtist sem Danni Köning væri ekki alveg sáttur en Daninn hafði "fiskað" vítið. Albert Sævarsson sá við miðjubuffinu og varði boltann af öryggi. Valsmenn lögðust þó ekki í kör og pressuðu stíft á Eyjamenn sem voru enn að stokka upp lið sitt eftir brottreksturinn. Segja má að Haukur hafi bætt upp fyrir vítaspyrnuna skömmu síðar þegar hann komst á auðan sjó inn í vítateignum og renndi honum á Atla Svein sem skoraði af stuttu færi. 1-0 og stúkugestir farnir að gera ráð fyrir að Valur myndi reykspóla yfir Eyjamenn. Vestmanneyjingar með Tryggva Guðmundsson góðvin Valsara í fararbroddi voru þó ekki á því að láta skilja sig eftir í rykmökki. Valsvörnin gerði sig seka um hroðaleg mistök þegar sending frá Martin Pedersen fór á milli Reynis og Kjartans og beint í fætur Úkraínumanns í liði Eyjamanna. Sá þakkaði pent fyrir sig og var í litlum vandræðum með að skora. Vandræðalegt mark að hálfu Vals og eftir þetta var sem ákveðinn neista vantaði til að kveikja í liðinu á nýjan leik. Líklega hafa flestir gert ráð fyrir að vörn gestanna myndi gefa sig á endanum en Eyjamenn héldu út og fóru með stig af hólmi þrátt fyrir að vera með laskað lið. Vel gert hjá þeim og ljóst að það er nokkrir leikmenn þar innanborðs sem geta gert öðrum liðum lífið leitt í sumar. Það sem sat í mönnum að leik loknum var helst það að hafa ekki nýtt liðsmuninn gegn liði sem er ekki hærra skrifað en ÍBV. Á móti kemur að Valur var alls ekki með neina yfirburði á vellinum þrátt fyrir liðsmuninn, sem var nóg til að æra óstöðuga stuðningsmenn liðsins. Sama má eflaust segja um leikmenn og þjálfara en flest viðtöl eftir leikinn voru á sama veg. Hvað varðar öftustu línu Valslliðsins virðist hún líta vel út að mestu og heilt yfir eru menn vel skipulagðir. Mörkin sem við höfum fengið á okkur eru öll þess eðlis að auðvelt á að vera koma í veg fyrir þau og vonandi skrifast þau á einhvern vorbrag Þegar kemur að því að halda uppi stífum sóknarleik þarf liðið að vera þolinmóðara og eins vantaði upp á meiri ógn frá hornspyrnum liðsins. Valur fékk um 15 slíkar á meðan Eyjamenn fengu eina og þær má útfæra mun markvissar en sást á mánudaginn. Reynir Leósson þurfti að yfirgefa leikvöllin en hann virtis kenna sér meins í nára. Inn á kom Glen Ross og Pedersen var færður í miðvörðinn. Það reyndi svo sem lítið á þessar hrókeringar enda lágu Vestmanneyjingar meira og minna í vörn fyrir utan einstaka skyndisóknir en ekki er ljóst hvort Reynir snúi aftur í tíma fyrir Blika leikinn. Þrátt fyrir að ekki hafi tekist að ryðja niður tjaldborg Eyjamanna í vítateig sínum var ýmislegt jákvætt sem má taka frá þessum leik. Miðjuspilið er allt annað frá því á síðasta tímabili og samstarfið hjá Hauki Pál, Ian Jeffs og Rúnari lofar góðu. Baldur Aðalsteins hefur spilað framarlega á vinstrikanti en það er ákveðinn söknuður af fyrirgjöfunum hans frá hægri enda fáir sem krossa betur en Húsvíkingurinn knái. Af bekknum komu síðan Skagamennirnir Jón Vilhelm og Hafþór Ægir en hvorugur náði að valda neinum usla hjá vörn gestanna sem voru þéttir og skipulagðir. Miðað fyrstu tvo leikina má segja að Valsliðið virðist vera ágætt í að brjóta niður sóknarleik andstæðinganna en gengur verr að liggja á boltanum í lengri tíma. Blikarnir úr Smáranum mæta á Hlíðarenda á fimmtudagskvöld. Byrjunin hjá þeim hefur ekki verið samkvæmt þessum dæmigerðu sex stiga væntingum sem öll lið gera til fyrstu tveggja umferðanna. Eftir bikarsigur í fyrra eru margir á því að tími Breiðabliks sé að renna upp en líklega vantar þó nokkur púsl upp á verðuga meistarakandídata. Ágætis mæting var á Hlíðarenda á mánudaginn miðað við skamman fyrirvara eða um 1000 manns en fáir fylgdu gestaliðinu af augljósum ástæðum. Vonandi fjölmenna áhorfendur beggja liða á fimmtudaginn en ætla má að töpuð stig geti þýtt ávísun á miðjumoð. Nánar að því síðar. Besservisserar (1)
![]()
mauli
said:
|
|
... Myndarleg umfjöllun á myndarlegri síðu! Leikurinn í kvöld fer 4-3 fyrir Val í leik fyrri parts sumarsins. |