|
Mánudagur, 01. september 2008 20:26 |
|
Valsarar voru mættir á Hlíðarenda í gær til að sjá sína menn taka á móti Skagamönnum. Það var vitað mál fyrir leikinn að til að halda í einhverjar titilvonir dygði Valsmönnum ekkert annað en sigur. Einnig voru menn að vonast eftir að lenda ekki í annarri HK-martröð með því að tapa stigum til kjallaraliðs.
Flautað var til leiks og Skagamenn tóku völdin strax. Þeir skoruðu strax á 3. mínútu þegar Arnar Gunnlaugs vippaði boltanum í markið eftir mikið skvaldur. Skaginn hélt áfram að sækja og gekk vel að spila sig í færi. Tvíburarnir voru að dreifa boltanum vel og Þórður Guðjóns og Björn Bergmann voru einnig hættulegir. Gulu kallarnir hefðu getað verið búnir að bæta við mörkum þegar Valsmenn létu svo loks til sín taka. Þá átti Bjarni Ólafur ágætis skot sem fór framhjá. Gummi Ben átti svo fína tilraun skömmu síðar en hann skaut yfir. 1-0 í hálfleik og Valsmenn ekki að spila vel.
Allt annað var að sjá til Valsliðsins í seinni hálfleik. Habbó kom inná fyrir Rasmus Hansen og nú fóru Valsmenn loksins að setja pressu á gestina. Barry Smith fékk dauðafæri á fjærstöng snemma í hálfleiknum sem var varið og litlu síðar fékk Baldur Aðalsteinsson frábært færi sem var einnig varið. Flott byrjun en að nýta ekki þessi færi átti eftir að reynast okkur dýrt. Skagamenn þjöppuðu sig betur saman í vörninni og færin voru fá eftir þetta. Valsmenn vildu fá víti 20 mínútum fyrir leikslok þegar Helgi virtist togaður niður en dómari leiksins sá ekki ástæðu til að dæma á það. Valsmenn héldu áfram á pressa á þetta en allt kom fyrir ekki og tapið því staðreynd.
Það varð Valsmönnum að falli í gær að byrja ekki leikinn strax og hann var flautaður á og leyfa þannig Skagamönnum að taka völdin. Menn verða að mæta tilbúnir frá byrjun og taka stjórnina en ekki að bíða eftir því að hitt liðið gerir það. Þar að auki er ekki mikill sprengikraftur í Valsliðinu þessa dagana og liðið á erfitt með að vinna leiki þegar það á annað borð lendir undir. Það hefur verið að koma í ljós á síðustu vikum hversu mikið liðið saknar Pálma og Birkis. Annar var markaskorari og playmaker og hinn með sprengjuefni í bunkum á kantinum. Þessi blóðtaka er því að reynast okkur dýr.
Annað mál sem flestir hafa tekið eftir er hversu illa okkur hefur gengið á móti “lakari” liðunum í deildinni. Tölfræðin lýgur ekki og segir okkur að gegn þremur neðstu liðunum í töflunni hefur liðið fengið þrjú stig á móti Fylki, ekkert á móti HK og eitt stig á móti Skaganum. Fjögur stig af átján sem sagt. Óraunhæft væri að biðja um öll þessi stig en meistaralið verður að gera betur en þetta.
Nú eru fjórar umferðir eftir að sumrinu Valur er í þriðja sæti deildarinnar en vonir manna um að verja titilinn eru farnar. Samt sem áður verða menn að halda áfram og byggja upp fyrir framtíðina. Liðið getur leikandi haldið þessu þriðja sæti og það er þrátt fyrir allt ekki slæmur árangur. Framundan eru leikir á móti FH, Þrótti, Fram og KR. Allt hörkuleikir sem gætu orðið mjög skemmtilegir. Til þess að svo verði þarf þó að koma meiri gleði í spilamennskuna og betri stemmning í stúkuna og reyna að láta þetta vinna saman. Vonum að það gangi eftir.
 |