• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Síðasti naglinn
Höfundur: Valsarar.is   
Sunnudagur, 27. september 2009 17:54

takefuss


Það er ekki mörgu við að bæta við lýsingu á leiknum í gær sem ekki er hægt að copy / paste-a úr öðrum leiklýsingum í sumar. Í þetta skipti fékk Björgólfur Takefusa að leika lausum hala innan um lánlaust lið Vals og niðulæging tímabilsins hreinlega algjör. Frammistaða Takefusa var eins og að horfa á Jackie Chan mynd með aðeins þybbnari gaur í aðalhlutverki. Björgólfur tók Valsliðið og gjörsamlega buffaði það án þess að þurfa svitna mikið. Fimm mörk frá einum og sama gæjanum og í raun hefði þau vel getað verið fleiri.

Valsmenn virtust aðeins ætla að bíta frá sér í seinni hálfleik en Þóroddur Hjaltalín ákvað að eyðileggja þá möguleika með því að gefa Guðmundi Stein tvö gul spjöld fyrir nákvæmlega engar sakir. Það er með ólíkinum hvað dómgæslu fer hrakandi á Íslandi og er Þóroddur gott dæmi um vita vonlausan dómara. Hvernig maðurinn gat refsað Guðmundi með rauðu spjald fyrir tvö smá bort en ekki gefið markverði KR rautt spjald þegar hann tók Marel Baldvinsson niður í fyrri hálfleik er ekki hægt að útskýra nema með því að segja að hann er hreinlega ekki með starf sitt á hreinu. KR-ingar högnuðust klárlega á brotinu sem er einmitt það sem á ekki að gerast. Valsmenn virtust einnig gera tilkall til þriðju vítaspyrnunnar þegar boltinn virtist fara í upprétta hönd varnarmanns KR en slíku var ekki til að skipta. 

Hvað sem öðru líður þá voru leikmenn Vals rassskelltir í gær í 11 sinn í deildinni í sumar. Félagið var stórtækt á leikmannamarkaðnum fyrir tímabilð en uppskeran er ein sú skammarlegasta í sögu þess. Getum við þakkað fyrir að fjölgun í deildinni á síðasta ári þýddi að liðið var ekki í fallslag í lokaumferðinni. Aðeins Þróttur og ÍBV náðu ekki að sigra Val í sumar og segir það heilmikla sögu.  

Frekara hraun um ný afstaðið tímabil er væntanlegt á næstu dögum.

Digg    Facebook   
Besservisserar (3)add comment

Trifon said:

...
Það var ömurlegt að horfa uppá þennan leik, sérstaklega fyrri hálfleikinn. Gáfum mörk og skelfileg frammistaðae einstakra leikmanna. Innkastið hjá Jeffs var lélegt á 5.flokks standard, og Kjartan var stálheppinn að gefa ekki Björgúlfi 6.markið þegar hann sparkaði beint í hann úr útsparki. Maður hreinlega veit ekki hvort þetta geti versnað..
20:12 | 27 september | 2009

Hlíðarbúi said:

...
En við verðum eflaust betri næsta sumar þegar komnir verða nýr þjálfari og nýir leikmenn.
23:03 | 27 september | 2009

Valþór said:

...
Mér hefur aldrei verið jafn sama um Valur - KR leik frá upphafi, bjóst aldrei við neinu af Valsliðinu fyrir þennan leik.
Maður prísar sig bara sælan fyrir að tapið var ekki stærra
01:33 | 28 september | 2009 | url

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Sunnudagur, 27. september 2009 21:07