• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Umfjallanir
Pálmi með þrennu í 3-0 heimasigri
Laugardagur, 17. maí 2008 13:22
Pálmi Rafn Pálmason stal senunni í Laugardalnum miðvikudagskvöldið síðastliðið þegar hann skoraði öll þrjú mörk Valsmanna í öruggum heimasigri á Grindvíkingum.  Sannarlega góð úrslit og okkar menn komnir á blað í deildinni.

Valsmenn gerðu eina breytingu á liðinu frá því á laugardaginn en Sigurbjörn kom inn fyrir Danna Hjalta.  Fyrri hálfleikur var frekar tíðindalítill.  Valsmenn stýrðu ferðinni en Grindvíkingar lágu tilbaka og voru nokkuð þéttir.  Hinsvegar voru þeir alveg bitlausir fram á við virtust treysta algjörlega á Scott Ramsay.  Valsvörnin réði léttilega við það og átti satt best að segja mjög náðugan dag.

 

Til tíðinda dró rétt fyrir leikhlé en þá skoraði Pálmi með laglegu skoti eftir sendingu frá Bjarna Ólafi.  Pálmi var svo aftur á ferðinni snemma í síðari hálfleik.  Valsmenn tóku aukaspyrnu á sínum vallarhelmingi, sendu fram þar sem Pálmi skallaði hann á Helga sem sendi hann strax á Pálma sem tók eina snertingu og skoraði svo með góðu skoti frá vítateigslínunni.  Sannarlega snaggaralegt mark og dæmi um hvað okkar menn geta verið hættulegir.

 

Áfram stýrðu heimamenn ferðinni og Grindvíkingar komust ekkert áfram.  Willum gerði breytingar á síðustu tíu mínútunum.  Albert Ingason, Rasmus Hansen og Baldur Þórólfsson komu inná sem varamenn og það var eftir sendingu frá þeim síðastnefnda sem Pálmi skoraði þriðja mark sitt í uppbótartíma

 

Greinilegt er að Pálmi er í hörkuformi.  Mikið var talað um fyrir mótið að hann ætti eftir að eiga flott tímabil og greinilegt að töluvert var til í þeirri umræðu.  Gaurinn hefur frábært nef fyrir markinu og er einfaldlega stórhættulegur.  Hann er mögulega okkar X-factor því það er svo mikilvægt að hafa framliggjandi miðjumann sem getur skorað mörk og tekið þannig athygli frá sóknarmönnunum.  Annað markið hans í kvöld var gott dæmi um það hversu hættulegur hann er og eitthvað sem öll liðin í deildinni þurfa að hafa áhyggjur af.


Fyrir okkur Valsmenn var leikurinn frábært meðal eftir vonbrigðin í Keflavík.  Vissulega eru Grindvíkingar nýliðar og ekki skeinuhættasta lið deildarinnar en þeir spiluðu varnarbolta og sem betur fer tókst Valsmönnum að brjóta niður múrinn hjá þeim og náði að taka þrjú stig í leik þar sem flestir af okkar mönnum sluppu vel frá.  Næst á dagskrá er Fylkir í Árbænum.  Við höfum átt misjöfnu gengi að fagna þar í gegnum árin en tókum þó þrjú stig þar í fyrra.  Meira um það síðar.


Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Mánudagur, 19. maí 2008 06:35
Nánar...
 
Bláa lóns ættbálkurinn snýr aftur
Höfundur: Tryggvi   
Þriðjudagur, 13. maí 2008 00:00
 Lengi vel var Grindavík lið sem virtist ekki geta fallið úr úrvalsdeildinni. Félagið bjargaði sér frá falli á síðasta leikdegi í fjölmörg skipti og eins og svo margir muna máttum við Valsarar þola aðfalla í fyrsta sinn á Grindavíkurvelli.
Mikið vatn hefur þó runnið tilsjávar síðan og segja má að sveiflurnar í gengi Grindavíkurliðsins hafi síst verið minni en hjá keppnisliðum Vals eftir daginn örlagaríka árið 1999.

Grindavíkurliðið, með sitt 2500 manna bæjarfélag á bakvið sig, stillti upp einu sterkasta liði deildarinnar á árunum 2001-2003 með menn innanborðs eins og Sinisa Kecik, Grétar Ólaf Hjartarsson, Ólaf Örn Bjarnason að ógleymdum Lee Sharpe. Á sama tíma spiluðu leikmennn hjá Val eins og Hjalti Þór Vignisson (nú bæjarstjóri á Höfn), Benedikt Bóas Hinriksson (nú blaðamaður á DV) og Thomas Maale (sem síðast spurðist til hjá dönsku C-deildarliði) svo einhverjir séu nefndir.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 26. maí 2010 16:45
Nánar...
 
Eftir fyrsta leik
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Sunnudagur, 11. maí 2008 15:58
Það er alltaf sérstök tilfinning þegar nýtt tímabil gengur í garð.  Langri átta mánaða bið loks lokið og menn spenntir að sjá hvernig liðið sitt kemur undan vetri.  Fyrir Valsara var ennþá  meiri spenna því í fyrsta skipti í 20 ár hefja Valsmenn mótið sem Meistarar og er það í senn skemmtileg og sérstök tilfinning eftir mörg upp og niður tímabil.  Þetta árið er fyrsti leikur okkar manna í Keflavík þar sem Valur hefur átt góðu gengi að fagna undanfarin ár.  
Valsarar ákváðu að taka daginn snemma og klukkan var rétt rúmlega tvö þegar valsarar.is mættu á Paddys í Keflavík.  Þar tók á móti okkur hin hressa Puma-sveit með Joey Drummer í aðalhlutverki.  Á meðan Keflvíkingar æfðu nokkra söngva ræddu Valsarar um komandi leik og komandi Íslandsmót.  Fleiri stuðningsmenn bættust í hópinn og um þrjúleytið var farið í íþróttahúsið þar sem Landsbankinn var með létt hóf með léttum veitingum.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 13. maí 2008 10:27
Nánar...
 
Korter í mót
Höfundur: Tryggvi   
Laugardagur, 10. maí 2008 12:59
Það er ekki seinna vænna fyrir Valsara að ríða á vaðið þetta árið. Íslandsmótið handan við hornið þar sem við höfum titil að verja í fyrsta sinn í 20 ár. Árið 1988 urðu Framarar hlutskarpastir þegar þeir settu stigamet í efstudeild sem aðeins Akurnesingum tókst að jafna en engum að bæta. Með fjölgun liða í efstudeild er ljóst að það met mun standa um ókomin ár líkt og met Vals frá 1978 þegar liðið vann 17 leiki og gerði eitt jafntefli.  

Það er því töluvert ólíkara landslagið sem bíður okkar þetta sumarið heldur en gerði við síðustu titilvörn. Skagamenn þykja líklegir til afreka í sumar enda með margreynda landsliðsmenn innanborðs í bland við marga af efnilegustu leikmönnum landsins að ógleymdum sjálfum Gaua Kóng í brúnni.  

Framarar hins vegar hafa lítið haft sig frammi á 100 ára afmæli sínu fyrir utan að flytja starfsemi sína langt út fyrir þau mörk sem talist geta til Reykjavíkur. Það er viss eftirsjá að horfa á eftir nágrönnum okkar úr Safamýri og Austurbæ til næstum 100 ára. Gera má ráð fyrir að þeir sigli lygnan sjó um miðja deild og vonist eftir að bikarævintýri hleypi smá lífi í afmælisárið. Þeir bláu þykjast sjá meiri uppgangsmöguleika fyrir félagið í Grafarholtinu en menn hljóta að spyrja sig hvers vegna þeir fluttu sig aldrei í Laugardalinn sem Þróttarar hafa lagt undir sig. 

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 11. ágúst 2009 09:23
Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 Næsta > Síðasta >>

Síða 18 af 18