|
Höfundur: Ásgeir Tryggvason
|
|
Föstudagur, 03. júlí 2009 13:59 |
Valsarar voru mættir á Hlíðarenda í gær til að sjá fyrsta sannkallaða stórleik sumarsins. Þetta átti allavega að vera stórleikur en það fór svo að bara annað liðið átti stórleik en hitt liðið átti lélegan leik. Því miður var það FH sem átti stórleikinn og þeir grilluðu Valsmenn 5-0 í leik sem var eiginlega of ójafn.
Þorgrímur gerði nokkrar breytingar á liðinu sem var skellt í Garðabænum í síðustu viku. Steinþór kom inní vinstri bakvörðinn og Bjarni Ólafur var færður fram á vinstri kantinn. Jeffs og Bett var kippt út og inn komu Sigurbjörn og Einar Marteinsson. Svo kom Guðmundur Steinn inn fyrir Helga. Þessar breytingar skiluðu í raun engu því Valsliðið komst aldrei gang og þeir voru í eltingaleik nánast allan leikinn.
|
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 03. júlí 2009 14:04 |
|
Nánar...
|
|
|
Höfundur: Ásgeir Tryggvason
|
|
Föstudagur, 26. júní 2009 14:37 |
|
Valsarar voru mættir í Garðabæinn í gær til að horfa á sína menn keppa við Stjörnuna. Leikurinn hafði sum part á sér yfirskriftina “Baráttan um annað sætið” eða “Hver ætlar að hanga í FH”. Eftir leikinn er yfirskriftin fyrir Val “.....”. Ykkur er frjálst að fylla inn í með þeim lýsingarorðum sem þið eigið því ég kann ekki og þekki ekki lýsingarorð til að lýsa þeim lélegheitum sem voru þar í gangi að hálfu Vals.
|
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 11. ágúst 2009 09:23 |
|
Nánar...
|
|
Þéttir á velli og þéttir í lund |
|
Höfundur: Ásgeir Tryggvason
|
|
Þriðjudagur, 23. júní 2009 14:21 |
 Valsmenn spiluðu sinn besta hálfleik í sumar þegar lið ÍBV var skotið í kaf á upphafsmínútunum á Hlíðarenda í gærkvöldi. Stjörnuleikur hjá fyrrum Fjölnismönnunum þeim Pétri Georg Markan og Ólafi Páli Snorrasyni lagði grunninn að góðum sigri hjá Val sem er hægt og rólega að hífast upp stigatöfluna eftir dapra byrjun á Íslandsmótinu.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 12. ágúst 2009 11:08 |
|
Nánar...
|
|
Þriðjudagur, 16. júní 2009 12:22 |
 Ætli sófa Valsararnir hafi horft allan tímann? Valsarar voru mættir á Kópavogsvöll á mánudagskvöldið að sjá sína menn etja kappi við Breiðablik. Tölfræðin hefur ekki verið okkur í hag á heimavelli Blika síðustu árin en það virðist vera að snúast við og unnu Valsmenn útileik liðanna annað árið í röð. Skemmtanagildið var ekki upp á marga fiska en líkt og Willum Þór hefur talað um undanfarið þá er sígandi lukka best. Eða eitthvað svoleiðis.
|
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 16. júní 2009 12:50 |
|
Nánar...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 10 af 18 |