• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Umfjallanir
Útúrkú í úthverfi
Höfundur: Valþór Druzin   
Föstudagur, 24. júlí 2009 13:35
Það er fátt hægt að segja um leik eins og þann sem fram fór í Grafarvoginum í gær, án þess að missa sig í bölmóð og pirring.
Það er þá kannski úr vegi að hefja þennan pistil á því að tiltaka það sem jákvætt var í leiknum, sem var annarsvegar það að kick and run fótboltinn sem Valsliðið hefur stundað uppá síðkastið er á hröðu undanhaldi fyrir mun skemmtilegri leikstíl þar sem menn eru mun betur staðsettir á vellinum og spila boltanum sín á milli, og svo hinsvegar að Halli varð vítaspyrnu (og frákast hennar).
"..skammarlegt að við tökum ekki frákastið" --Atli Sveinn
"Að tapa frákasti eftir víti er bara verulega dapurt, sorglegt bara" --Sigurbjörn Hreiðarsson
Þetta voru þeirra orð eftir leikinn á mánudaginn, en svo virtist sem þau væru gleymd og grafin í gær, og raunar alveg stórmerkilegt að lið, sem fær á sig mark úr frákasti vítaspyrnu í leiknum á undan, skuli ekki getað hundskast til þess að gyrða fyrir það einfalda atriði að andstæðingurinn nái frákasti aftur í þessum leik. Þessi orð Atla og Bjössa virtust m.a.s. svo svakalega vel gleymd að enginn Valsmaður gerði svo mikið sem tilraun til þess að sækja frákast vítaspyrnunnar sem Hlgi Sig klikkaði á. Það er kannski ekki rétt að dvelja of lengi við þetta, en þó eru þetta grundvallaratriði sem þarf barasta að vera í lagi og ekkert rugl.
Eftir að Valsmenn fengu á sig fyrra markið, virtust þeir þyngjast um c.a. 5 kíló á staðnum, og leikur liðsins sem fram að því hafði lofað ágætu, drabbaðist niður og allt bit fór úr honum.
Út úr sóknarvængspili liðsins kom ekkert í gær, nákvæmlega ekkert, og virtust vörn og markvörður Fjölnis, sem fyrir leikinn höfðu fengið á sig næstflest mörk allra liða í deildinni, lítið hafa fyrir að loka á sóknartilburði Valsmanna af köntunum.
Ef frá er talinn Stóribróðir, þá var miðjuspilið ekki gott í gær, þá sérstaklega eftir að fyrsta markið hafði dottið á Valsmenn. Bjössi og Bett, sem hvor um sig eru fínir leikmenn, eru bara ekki að fúnkera nógu vel saman, þvímiður. Bett er fremur hægur varnarsinnaður miðjumaður og fínn í djúpri stöðu en Bjössi sem er auðvitað local hero á Hlíðarenda, og skilað ótrúlega góðu starfi fyrir Val í gegnum tíðina, virðist þvímiður hafa tapað niður hraðanum sem hann áður hafði. Saman eru þeir ekki að vega hvorn annan nógu vel upp, reynsla Bjössa sem gæti mögulega nýst með sneggri miðjumanni er ekki að gera það með Baldri Bett. Baldur er sömuleiðis leikmaður sem þyrfti að hafa snöggan og skapandi miðjumann með sér til þess að þessar einföldu færslur sem hann leysir mjög vel, væru að nýtast Valsliðinu betur.
Uppi á toppi eru Valsmenn ennþá að kljást við sama hugmyndaleysið og áður, enda segir markatala liðsins allt um það, 15 skoruð mörk í 13 leikjum er vægast sagt slakur árangur. Aðeins eitt lið í deildinni sem hefur skorað færri mörk en Valsliðið; ÍBV, enda er það lið í fallsæti.
Það er kannski augljóst mörgum, en það er bara eitt grundvallaratriði sem þarf að uppfylla í hverjum fótboltaleik til þess að sigur náist, en það er að skora a.m.k. 1 mark. Það hefur Valsliðinu mistekist í 6 af 13 deildarleikjum sumarsins, sem er auðvitað vægast sagt ömurlegur árangur og ef einhversstaðar er hrópandi í eyðimörkinni þá er það þarna. Liðið er bara ekki að skora mörk og sóknarleikurinn álíka beitt og gömul trésleif.
Bitleysið í sókninni er að einhverju leyti því að kenna að miðjuspil Vals hefur verið slakt og frekar hægt.
Það er svo auðvelt að færa fyrir því rök að þegar bitleysið er svona mikið framá við, þá þarf vörnin að puða tvöfalt meira fyrir vikið, enda virðast andstæðingar Vals hafa verið lítið hræddir við að halda sig bara á vallarhelmingi Vals í sumar, enda lítillar refsingar að vænta á móti.
Það verður þó að segjast að varnarmenn Vals ullu verulegum vonbrigðum í gær, þá sérstaklega þau mistök Bjarna Ólafs að fylgja ekki sóknarmanni Fjölnis eftir alla leið niður að endalínu í fyrra markinu. Bjarni Ólafur hefur raunar ekki verið svipur hjá sjón í sumar, m.v. hversu öflugur hann er í raun og veru. Valsarar.is vona að Bjarni nái að stíga uppúr þeim öldudal sem hann hefur verið í og sýni sitt rétta andlit, hann getur miklu betur og veit það sjálfur.
Eins hefði Halli, sem valsarar.is hafa mært mikið hingað til, átt að gera betur í fyrra markinu, svona skot á aldrei að leka inn hjá klassa markverði.
Reynir Leóss átti að auki ekki góðan dag, var á hælunum og alls ekki nógu meðvitaður til þess að geta spilað rangstöðutaktík, ef það var þá pælingin í dag.
Nú er hinsvegar leikið nokkuð þétt í deildinni, og það ætti að vera jákvætt fyrir lið sem er að reyna að byggja upp nýtt spil, auk þess sem ákveðinn gálgafrestur gefst þá á bikarleikinn gegn KR. Keflvíkingar koma í heimsókn á mánudaginn og ef ekki á að stefna í stórslys í þeim leik, er eins gott að leikmenn gyrði sig í brók og þjappi sér saman.
Það er alveg klárt mál, að sofandaháttur og andvaraleysi eins og var í gangi í úthverfinu í gær gengur ekki gegn neinu liði í deildinni og leikmannahópur Vals á að vera betri en þetta. Það er einfaldlega óþolandi að tapa svona illa fyrir liði í fallbaráttu, liði sem er ekki betra en Fjölnisliðið er.
Upp með helv*** sokkana, fjandakornið!
Það er fátt hægt að segja um leik eins og þann sem fram fór í Grafarvoginum í gær, án þess að missa sig í bölmóð og pirring.
Það er þá kannski úr vegi að hefja þennan pistil á því að tiltaka það sem jákvætt var í leiknum, sem var annarsvegar það að kick and run fótboltinn sem Valsliðið hefur stundað uppá síðkastið er á hröðu undanhaldi fyrir mun skemmtilegri leikstíl þar sem menn eru mun betur staðsettir á vellinum og spila boltanum sín á milli, og svo hinsvegar að Halli varð vítaspyrnu (og frákast hennar).

"..skammarlegt að við tökum ekki frákastið" --Atli Sveinn
"Að tapa frákasti eftir víti er bara verulega dapurt, sorglegt bara" --Sigurbjörn
Þetta voru þeirra orð eftir Fylkisleikinn á mánudaginn, en svo virtist sem þau væru gleymd og grafin í gær, og raunar alveg stórmerkilegt að lið, sem fær á sig mark úr frákasti vítaspyrnu í leiknum á undan, skuli ekki getað hundskast til þess að gyrða fyrir það einfalda atriði að andstæðingurinn nái frákasti aftur í þessum leik. Þessi orð Atla og Bjössa virtust m.a.s. svo svakalega vel gleymd að enginn Valsmaður gerði svo mikið sem tilraun til þess að sækja frákast vítaspyrnunnar sem Hlgi Sig klikkaði á. Það er kannski ekki rétt að dvelja of lengi við þetta, en þó eru þetta grundvallaratriði sem þarf barasta að vera í lagi og ekkert rugl.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Föstudagur, 24. júlí 2009 13:57
Nánar...
 
Óli Þórðar, vinir og skyldmenni í heimsókn
Höfundur: Valþór Druzin   
Þriðjudagur, 21. júlí 2009 18:34
Leikmenn Fylkis mættu í gær á Hlíðarenda með Ólaf Þórðar á Hliðarlínunni og móðurbróður hans inná vellinum, og afrakstruinn varð sennilega einn allra
leiðinlegasti leikur sumarsins, svo ekki sé meira sagt. Það voru e-n veginn allir alveg sultuslakir innanvallar sem á áhorfendabekkjum, fyrir utan nokkra stuðningsmenn Fylkis sem stoppuðu sennilega við á Blásteini fyrir leik.
Hápunktar fyrri hálfleiksins voru þeir að Bjössi fékk verðlaun fyrir að hafa náð þeim markverða árangri að verða leikjahæsti leikmaður Vals frá upphafi ( og hlýtur að launum þrefalt húrrahróp frá þeim sem þetta skrifar), og að Reynir Leóss fékk boltann í punginn.
Seinni hálfleikurinn var örlítið hressari og þóttust Valsarar.is sjá að augljóst uppbyggingarstarf á spilamennsku liðsins er hafið. Það er farið að örla fyrir því að Valsliðið sé byrjað að spila boltanum í stað kýlinginna sem einkennandi hafa verið fyrir liðið fyrripart móts, en eftir að hafa horft á þennan leik virðist nokkuð ljóst að liðið sárvantar skapandi miðjumenn sem geta stjórnað spili og tengt betur milli varnar og sóknar. Nú þegar Arnar Gunnlaugs (a.k.a. Stóribróðir) er kominn í Valsbúningin, þá væri nú heldur betur ekki ónýtt að sjá hann á miðjunni ásamt Marel Baldvins þegar sá kappi stígur uppúr meiðslum. Það ætti með réttu að geta reynst ein öflugasta sóknarmiðja deildarinnar.
Talandi um stórabróður, þá var svo sannarlega ekki að sjá að Arnar væri elsti maður vallarins, enda virkaði hann í þrusuformi, og var oftar en ekki fyrsti maður til að taka varnarhlaupin til baka, og það er spurning hvort að yngri leikmenn Vals sjá sér ekki hvatningu í því að reyna að stinga kallinn af.
Þess má geta að sumir leikmanna Vals voru rétt að hefja grunnskólagöngu, og sumir jafnvel ekki byrjaðir á leikskóla, þegar Stóribróðir var að hefja sinn atvinnumannsferil. Arnar fær a.m.k. þumalinn upp, og vel það, frá undirruðum.
Annars var maður nokkuð hissa á því að sjá að Markan ekki í byrjunarliði eftir að hann hafði átt fantagóðan leik gegn KR, og verður að segjast að sprettirnir sem hann getur tekið veita sóknarlínu Vals alveg aðra vídd.
Annars fór sem fór, og algjörlega grátlegt og í raun óafsakanlegt af varnarmönnum Vals að hafa ekki haft rænu á því að koma í veg fyrir að Fylkismenn næðu frákasti vítaspyrnunnar sem Halli varði. Svonalagað á bara ekkert að sjást, og er aukinheldur algjör vanvirðing við störf markmannsins.
Halli þarf reyndar að kyngja því að þessi vítaspyrnugjöf var ansi klaufaleg, en hann náði þó að bæta fyrir hana. Markið hlýtur að skrifast á varnarmennina sem hefðu átt að gera betur.
Eins og áður segir, þá var leikurinn alls ekki e-r eyðimerkurganga og eitthvað virðist vera að birta yfir leikstíl Valsliðsins, og er vonandi að leiðinn liggi uppávið.
Það þarf líka að telja stuðningsmönnum það til tekna að skila fínni mætingu, þó að menn hefðu verið full slakir í settinu, og undirritaður alls ekkert undanskilinn.
Næst er það Fjölnir, strax ekki á morgun heldur hinn, og þá verður spennandi að sjá hvort hópurinn stígi ekki uppúr þessum leiðindum sem einkenndu leikinn í gær, og maður vill helst gleyma sem fyrst.
Málning þornarLeikmenn Fylkis mættu í gær á Hlíðarenda með Óla Þórðar á hliðarlínunni og móðurbróður hans inná vellinum, og afrakstruinn varð sennilega einn allra leiðinlegasti leikur sumarsins, svo ekki sé meira sagt. Það voru e-n veginn allir alveg sultuslakir innanvallar sem á áhorfendabekkjum, fyrir utan nokkra stuðningsmenn Fylkis sem stoppuðu sennilega við á Blásteini fyrir leik.

Hápunktar fyrri hálfleiksins voru þeir að Bjössi fékk verðlaun fyrir að hafa náð þeim markverða árangri að verða leikjahæsti leikmaður Vals frá upphafi ( og hlýtur að launum þrefalt húrrahróp frá þeim sem þetta skrifar), og að Reynir Leóss fékk boltann í punginn.

Seinni hálfleikurinn var örlítið hressari og þóttust Valsarar.is sjá að augljóst uppbyggingarstarf á spilamennsku liðsins er hafið. Það er farið að örla fyrir því að
Arnar
Valsliðið sé byrjað að spila boltanum í stað kýlinginna sem einkennandi hafa verið fyrir liðið fyrripart móts, en eftir að hafa horft á þennan leik virðist nokkuð ljóst að liðið sárvantar skapandi miðjumenn sem geta stjórnað spili og tengt betur milli varnar og sóknar. Nú þegar Arnar Gunnlaugs (a.k.a. Stóribróðir) er kominn í Valsbúningin, þá væri nú heldur betur ekki ónýtt að sjá hann á miðjunni ásamt Marel Baldvins þegar sá kappi stígur uppúr meiðslum. Það ætti með réttu að geta reynst ein öflugasta sóknarmiðja deildarinnar.
Talandi um stórabróður, þá var svo sannarlega ekki að sjá að Arnar væri elsti maður vallarins, enda virkaði hann í þrusuformi, og var oftar en ekki fyrsti maður til að taka varnarhlaupin til baka, ogþað er spurning hvort að yngri leikmenn Vals sjá sér ekki hvatningu í því að reyna að stinga kallinn af.
Þess má geta að sumir leikmanna Vals voru rétt að hefja grunnskólagöngu, og sumir jafnvel ekki byrjaðir á leikskóla, þegar Stóribróðir var að hefja sinn atvinnumannsferil. Arnar fær a.m.k. þumalinn upp, og vel það, frá undirruðum.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 21. júlí 2009 19:17
Nánar...
 
Frægðarför í Frostaskjól
Höfundur: Valþór Druzin   
Mánudagur, 13. júlí 2009 20:27
Frægðarför í Frostaskjól.
Valsarar.is kunna sífellt betur við sig í Vesturbæ Reykjavíkur (þrátt fyrir að það sé skítapleis, með einni búð og JL-Húsi), enda hefur Valsliðið ekki tapað þar leik síðan 2005, og tvisvar unnið þar bikarleiki á þessu sama tímabili.
Á laugardaginn var hefðinni fram haldið þegar að því er virtist glænýtt Valslið spilaði á móti kr í Frostaskjólinu og hafði betur eins og svo oft áður.
Atli Eðvalds setti liðið upp fremur hefðbundið, hafði þó Habbó í byrjunarliðinu sem reyndar átti eftir að haltra útaf strax í byrjun fyrri hálfleiks, ásamt Marel Baldvins og þá fór nú um margan valsarann. Sá ótti átti hinsvegar eftir að reynast þarflaus, enda var leikurinn sá skemmtilegasti sem sést hefur í Pefsí deildinni í sumar, og rúsínan í pylsuendanum var auðvitað sú staðreynd að sigur skyldi vinnast á erkifjendunum í vesturbæ.
Það er að bera í bakkafullan lækinn að fara efnislega yfir atriði í leiknum, en það verður að segja vestubæjingum til hróss að þeir eru að tefla fram sennilega skemmtilegasta kr-liði sem undirritaður hefur séð í mörg ár, og á Logi 5aur heiður skilið fyrir það. Augljóst er að sóknarspilinu hjá þeim hefur farið mikið fram með tilkomu Hr.Benediktssonar. Eins var áberandi að sjá að kr-ingarnir spiluðu talsvert þannig að Bjarni Guðjóns var að krossa boltanum frá miðju, eða aftan við hana, yfir á sóknarmann á hinum kantinum og byggja sóknarspilið þannig upp. Það var verulega skemmtilegt á að horfa og sennilega atriði sem þyrfti að gæta að varðandi það að gefa Bjarna ekki of mikinn tíma með boltann í næstu 2 leikjum liðanna í sumar.
Hvað varðar Valsliðið þá má eiginlega segja að það hafi verið soldið eins og díselvél, voru ekki nógu snöggir í gang, en eftir c.a. 20 mínútur þá var liðið loksins orðið gríðarskemmtilegt á að horfa, og þá sérlega eftir að Markan var kominn í hlaupagírinn. Það má eiginlega segja að Markan hafi sett tóninn fyrir aðra leikmenn Vals í seinnihluta fyrri hálfleiks með ákaflega snyrtilegri tæklingu á sóknarmanni kr-inga, hirðandi af honum boltann og skiljandi enga inneign eftir, en þangað til höfðu Valsmenn verið full góðir við kr-ingana og leyft þeim að hanga á boltanum von úr viti. Markan fékk a.m.k. 3 prik í kladdann fyrir þetta múf, og svo önnur 7 fyrir markið og frammistöðuna í leiknum öllum.
Halli markvörður átti líkan góðan dag, eins og svo oft áður, og áður en sumarið er úti er nokkuð ljóst að á milli stanga Vals mun standa sterkasti markvörður deildarinnar. Halli er gríðarlega öruggur í staðsetningum, úthlaupum og útspörkum og virðist alveg laus við þann leiða sið margra markmanna að vera s.k. kameruskutlarar. Það er að auki alveg kristaltært að hjartað er á hárréttum stað í drengnum, stóð sína pligt eins og hetja eftir gúmorren-inn frá Hr.Benediktssyni.
Viktor tók svo af allan vafa um hvort hann eigi heima í byrjunarliði Vals, var sífellt ógnandi ásamt Helga og virkuðu þeir flottir saman, unglingurinn og ellismellurinn. Mark Viktors úr þröngu færi var líka sérstaklega glæsilegt og ekki margir í íslensku deildinni sem hefðu getað sett hann í hlaupinu úr þessum vinkli. Þumallinn upp fyrir það.
Að öðru leyti var holningin á Valsliðinu allt önnur en í síðustu deildarleikjum, en vörnin þarf augljóslega meiri tíma til að spila sig saman, menn að læra inná hvorn annan og slíkt. Það er þó alltaf jákvætt að menn séu að spila í sínum 'natural' stöðum, og þetta vonandi smellur endanlega saman í næsta leik.
Fyrir rest er nú ekki úr vegi að gefa stuðningsmönnum klapp á bakið fyrir gott mót í vesturbænum, en laugardagurinn var sá langlíflegast í sumar meðal stuðningsmanna Vals. Nú er bara að vona að hópurinn sem hafði sig hvað mest í frammi á laugardaginn haldi uppteknum hætti, planti sér ofarlega í stúkuna á Hlíðarenda svo allir heyri, og botnkeyri stuðninginn. Ég lofa a.m.k. að ég mun taka undir, það er á hreinu.
Rokk og ról, áfram Valur!
JL HúsiðValsarar.is kunna sífellt betur við sig í Vesturbæ Reykjavíkur (þrátt fyrir að það sé skítapleis, með einni búð og JL-Húsi [líkt og segir í vísunni góðu]), enda hefur Valsliðið ekki tapað þar leik síðan 2005, og tvisvar unnið þar bikarleiki á þessu sama tímabili.

Á laugardaginn var hefðinni fram haldið þegar að því er virtist glænýtt Valslið spilaði á móti kr í Frostaskjólinu og hafði betur eins og svo oft áður.
Atli Eðvalds setti liðið upp fremur hefðbundið, hafði þó Habbó í byrjunarliðinu sem reyndar átti eftir að haltra útaf strax í byrjun fyrri hálfleiks, ásamt Marel Baldvins og þá fór nú um margan valsarann. Sá ótti átti hinsvegar eftir að reynast þarflaus, enda var leikurinn sá skemmtilegasti sem sést hefur í Pefsí deildinni í sumar, og rúsínan í pylsuendanum var auðvitað sú staðreynd að sigur skyldi vinnast á erkifjendunum í vesturbæ.
Til viðbótar kom sú skemmtilega staðreynd í ljós að hið s.k.Rauða Ljón þeirra vesturbæinga er í raun stuðningsmaður Vals, og sýndi sýna sönnu liti fyrir framan stuðningsmenn Vals á kr-leiknum. Ef einhver lesandi slysaðist til að ná af þessu mynd, má hann gjarnan senda okkur hana á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , annahvort með emaili eða sem mms-skeyti. 

Það er að bera í bakkafullan lækinn að fara efnislega yfir atriði í leiknum, en það verður að segja vestubæjingum til hróss að þeir eru að tefla fram sennilega skemmtilegasta kr-liði sem undirritaður hefur séð í mörg ár, og á Logi 5aur heiður skilið fyrir það. Augljóst er að sóknarspilinu hjá þeim hefur farið mikið fram með tilkomu Hr.Benediktssonar. Eins var áberandi að sjá að kr-ingarnir spiluðu talsvert þannig að Bjarni Guðjóns var að krossa boltanum frá miðju, eða aftan við hana, yfir á sóknarmann á hinum kantinum og byggja sóknarspilið þannig upp. Það var verulega skemmtilegt á að horfa og sennilega atriði sem huga þyrfti að í næstu 2 leikjum liðanna í sumar, þ.e. að gefa Bjarna ekki of mikinn tíma á boltanum, jafnvel svona aftarlega á vellinum.
 

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Mánudagur, 13. júlí 2009 20:45
Nánar...
 
'Það hafðist!' og aðrar pælingar
Höfundur: www.valsarar.is   
Þriðjudagur, 07. júlí 2009 18:35
Bikarleikir eru skrýtnar skepnur.
Leikir sem fyrifram ættu varla að geta orðið spennandi, skemmtilegir eða jafnir verða merkilega oft akkúrat það, og það sanna mýmörg dæmi.
Leikurinn á Hlíðarenda í gær er engin undantekning, en sprækir KA menn með Dean Martin í broddi fylkingar náðu heldur betur að halda í við Valsmenn á Vodafonevellinum í 16 liða úrslitum bikarsins, en þó var það svo sannarlega ekki auðvelt að sjá hvort liðið er í úrvalsdeild og hvort var í þeirri fyrstu.
Gangur leiksins er flestum kunnur sem sáu leikinn eða lásu lýsingarnar ; 
Valsarar skoruðu, KA menn jöfnuðu, Valsarar skoruðu aftur, KA menn jöfnuðu aftur, Valsmenn óðu í færum, KA menn áttu glimrandi hjólhestaspyrnu sem Halli markvörður varði glæsilega, Valsmenn héldu áfram að vaða í færum (og misnota þau), KA menn börðust oog Valsmenn óðu ennþá í færum þangað til Bjössi "bestivinur" smellti honum í netið og kláraði dæmið fyrir Val eins og svo oft áður.
Annars höfum við lítið um leikinn í gær að segja per se, það var mjög gott að ná sigri gegn KA mönnum sem lof og prís skilið fyrir mætinguna og að standa vel uppí hárinu á Valsmönnum. KA menn geta því alveg vera stoltir af sínum árangri. 
Þegar nýr þjálfari er svona nýtekinn við liðinu er maður eiginlega spenntari fyrir að pæla í hvað sé í kortunum hjá Val núna á allra næstu misserum, því að jafnvel þó að Atli hafi bara verið búinn að vera með Valsliðið c.a. kortér, þá mátti alveg sjá að hann er augljóslega með aðeins aðrar hugmyndir um liðsuppstillinguna en forveri hans. 
Frá NoBrainerum eins og að hafa Bjarna Ólaf í bakverðinum, yfir í það að stilla Reyni Leós upp í stöðu sem hann í alvöru ræður vel við, fékk valsara til þess að fyllast vonarneista fyrir næstu leiki. Eins var sú hugdetta að nota Jeffsey í hægri bakvarðastöðunni í retróspekt alveg prýðistgóð, því Ian Jeffs hefur alla burði til þess að verða fínn bakvörður, er í öllu falli mun betur til þess falinn heldur en Reynir sem hefur þvímiður neyðst til að spila útúr stöðu í sumar sem hefur háð honum mjög.
Miðjan leit lítið eitt betur út í gær en annars í sumar, en það má vel vera að það skrifist á að KA menn sóttu aðallega upp kantinn, Dean Martin meginn. Það þarf alveg klárt ennþá að laga ýmislegt í miðjuspilinu og augljóst að Bjössi er ekki kominn í sitt besta form þó að hann hafi auðvitað skilað sínu.
Valsarar.is myndu semsagt vilja fá að sjá smá nýbreytni í miðjuspilinu og sókninni, t.d. sjá Marel ofarlega á miðjunni með Bjössa fyrir neðan sig og svo Helga og Viktor uppi á toppi og Grafarvogsbræður á sitt hvorum kantinum. Marel er algjör yfirburðarmaður í að byggja upp sóknarspil og fengi betra tóm til þess á miðjunni, og með hraðan sóknarmann til að bakka upp þann gamla ref sem Helgi hefur að geyma, gæti myndast ansi öflug sóknarlína með góðum stuðningi af köntunum. Sérstaklega væru valsarar til í að sjá Viktor byrja oftar, enda hefur hann sýnt að hann er hættulegur þegar hann fær tækfærið, og skortir ekkert nema smá leikæfingu.
En, þetta eru auðvitað bara fabúléringar og mönnum frjálst að setja sitt útá þær eftir behag.
Næst verður ferðinni heitið vestur yfir læk og spilað við kr, sem hafa plummað sig ótrúlega vel það sem af er sumri m.v. að hafa misst sinn stærsta styrktaraðila, og þá meinum við auðvitað Icesave, part of Landsbanki, Reykjavik...
Meira um þann leik síðar
Deano
Bikarleikir eru skrýtnar skepnur.
 
Leikir sem fyrifram ættu varla að geta orðið spennandi, skemmtilegir eða jafnir verða merkilega oft akkúrat það, og það sanna mýmörg dæmi.
Leikurinn á Hlíðarenda í gær er engin undantekning, en sprækir KA menn með Dean Martin í broddi fylkingar náðu heldur betur að halda í við Valsmenn á Vodafonevellinum í 16 liða úrslitumbikarsins, en þó var það svo sannarlega ekki auðvelt að sjá hvort liðið er í úrvalsdeild og hvort var í þeirri fyrstu.
Gangur leiksins er flestum kunnur sem sáu leikinn eða lásu lýsingarnar, en var í (mjög) grófum dráttum þessi
 
Valsarar skoruðu
KA menn jöfnuðu 
Valsarar skoruðu aftur
KA menn jöfnuðu aftur
Valsmenn óðu í færum 
KA menn áttu glimrandi hjólhestaspyrnu sem Halli markvörður varði glæsilega
Valsmenn héldu áfram að vaða í færum (og misnota þau)
KA menn börðust oog Valsmenn óðu ennþá í færum þangað til Bjössi "bestivinur" smellti honum í netið og kláraði dæmið fyrir Val eins og svo oft áður.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 07. júlí 2009 18:52
Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 9 af 18