|
Þriðjudagur, 02. júní 2009 10:43 |
|
Valsarar voru mættir á Hlíðarenda í kvöld til að sjá sína menn taka á móti Þrótturum. Fyrir leikinn voru Valsmenn með sjö stig en Þróttarar með tvö. Leikurinn var síðasti leikurinn í hraðmótinu, eins og fyrstu umferðir Íslandsmótsins eru oft kallaðar, áður en landsleikjahléið skellur á og mikilvægt að fara inní það með sigri.
Þróttarar lagðir
Valsmenn stilltu upp óbreyttu liði frá síðustu umferð og það voru þeir sem áttu fyrsta færi leiksins. Guðmundur Steinn átti þá skot í hliðarnetið eftir að hafa komist inní teiginn. Næstu mínútur voru nokkuð rólegar og leikurinn jafn. Þróttarar vildu fá meira en ekki neitt þegar Morten Smidt féll við þegar hann var að sleppa í gegn. Atli Sveinn og Guðmundur Meté höfðu þá misst hann inn fyrir sig og Valsmenn voru heppnir að ekkert var dæmd þar því það hefði mögulega þýtt rautt spjald á Meté. Heimamenn sluppu hins vegar ekki eins vel tíu mínútum síðar þegar Þróttur fékk víti sem Dennis Danry skoraði úr. Vítið var að mínu mati steypa.
Valsmenn létu þetta ekki slá sig útaf laginu og svöruðu fyrir sig strax. Eftir þunga pressu átti Jeffs skalla sem var varin og Ólafur Páll náði frákastinu og skoraði og jafnaði 1-1. Á þessum tíma var Helgi Sigurðsson kominn inn fyrir Guðmund Stein og hann lét mikið til sín taka. Fyrst átti hann að fá víti þegar honum var hrint í teignum en dómarinn og línuvörðurinn lokuðu augunum fyrir því. Fljótlega eftir þetta náði Helgi að nýta sér mistök aftasta varnarmanns Þróttara og náði boltanum af honum. Helgi virtist svo vera togaður niður af varnarmanninum og dómarinn dæmdi þar aukaspyrnu og gaf Þróttaranum rautt spjald. Gestirnir orðnir tíu og staðan í hálfleik 1-1.
Í seinni hálfleik var ljóst að Þróttarar ætluðu að pakka í vörn og freista þess að halda jöfnu. Völdin voru því öll í höndum Valsmanna og undir þeim komið að skapa sér færi. Ólafur Páll átti þrumuskot sem var varið í slá eftir 15.mínútna leik í seinni hálfleik. Sigurbjörn Hreiðarsson átti svo skot sem kom við varnarmann og endaði í marknetinu, 2-1 fyrir Val og þeir áttu sigurinn nokkuð vísan þarna. Viktor Unnar átti ágæta innkomu af bekknum og hann skoraði mark sem var dæmd af vegna rangstöðu sem virtist ekki vera til staðar. Viktor átti svo annan góðan sprett en markmaður Þróttar varði þokkalegt skot Viktors úr teignum. Í lokin reyndu Þróttarar að fjölmenna fram og skapa pressu en þeir náðu aldrei að ógna að neinu ráði og Valsmenn lönduðu sanngjörnum 2-1 sigri.
Valsmenn eru með sigrinum komnir með tíu stig og búnir að landa tveimur sigrum í röð núna. Þeir voru klárlega sterkari aðilinn í leiknum en hafa ber í huga að Þróttarar voru einum færri stóran hluta leiksins. Valsmenn hefðu mátt vera meira afgerandi eftir að þeir urðu einum fleiri og sýnt meira hugmyndaauðgi fram á við. Aðalatriðið er þó að það hafðist að landa þremur stigum og koma sér þannig í efri hluta deildarinnar. Nú er komið að landsleikjahléi en að því loknu hefst baráttan að nýju og næst er það Breiðablik á útivelli 15. júní. Meira um það síðar.
 |
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 02. júní 2009 10:43 |