• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Reykspólað yfir Valsliðið
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Fimmtudagur, 05. ágúst 2010 01:18

 

legend_burn_out
Græni Mustanginn skildi Valsmenn eftir í reykskýi

5-0 tap gegn Breiðabliki eru eftirköst verslunarmannahelgarinnar fyrir Valsara. Þetta er einn af þessum leikjum sem þarf ekki að segja frá í löngu máli því markataflan segir í raun allt sem segja þarf. 

Undanfarin misseri hafa undirsátar Gunnlaugs Jónssonar sýnt á sér ýmis veikleikamerki. Þegar Valur mætti besta sóknarliði landsins var ljóst að ýtt yrði á allar veikustu hliðar á hinu brotthætta burðarvirki sem Valsliðið er. Þegar á reyndi var ekki að sökum að spyrja, húsið á sandinum féll og 5-0 niðurlæging lokaúrslit. Hafi einhver efast um að þetta tímabil sé um margt líkt því síðasta þá hlýtur þessi leikur að hafa tekið af allan vafa um það.

Að loknum 14 leikjum er liðið með 18 stig eða einu minna heldur en eftir 14 umferðir á síðasta tímabili. Þar við bætist að liðið hefur fengið á sig mark í hverjum einasta leik í sumar og alls 20 deildarleikjum í röð. Á síðasta ári var allt að ganga af göflunum en nú þykir þessi staða vera lítt óeðlileg. Hvort það hafi með einhverjar uppbyggingar hugmyndir að gera er vafamál því erfitt er að koma auga á einhverja nýja vinkla sem geta nýst á komandi árum. 

spanking

Valsmenn voru ágætir framan af en eins og svo oft á þessu Íslandsmóti hægði á liðinu fram að hálfleik og menn gleymdu sér í varnarvinnunni þegar Jökull Elísarbetarson komst á auðan sjó og skoraði laglegt mark. Valur átti sín færi fram að því en líkt og venja er orðin í sumar fóru þau til spillis. Í seinni hálfleik má liðið eiga það að sýnd var viss viðleitni til að laga sinn hlut en um leið og annað mark Blika kom var ljóst að mótspyrnunni var lokið. Meistaraefnin úr Kópavogi gengu á lagið og reykspóluðu yfir flata Valsmenn sem hafa brotlent algjörlega eftir fimm leikja sigurgöngu í deild og bikar í maí og júní. 

Rassskelling af hendi Breiðabliks var ekki neitt sem kom verulega á óvart og helstu tipparar landsins hafa eflaust ekki velkst í vafa um hvaða merki átti að setja á leikinn fyrir fram. Valur fékk auðvitað slæma útreið gegn Fram á dögunum í bikarkeppninni og eins töluðu fjölmiðlar um hvað liðið brotnaði saman við að fá jöfnunarmark á sig gegn ÍBV á dögunum. Liðinu virðist skorta það andlega og líkamlega þrek sem þarf til í alltof mörgum leikjum. Óhjákvæmilega er kominn tími á að ræða þátt þjálfarans, hvaða braut hann er að feta með liðið og hvort reynsluleysi hans sé ekki að koma í bakið á mönnum. Nánar að því síðar.

Digg    Facebook   
Besservisserar (17)add comment

Bjössi said:

...
Við erum bara lélegir, þannig er það bara. Engin liðsheild og slakur varnarleikur skilar því sem þetta lið á inni. Svo horfum við upp á hreinsun í hópnum í vetur og svo verður keypt alveg villt og galið um vorið í nafni uppbyggingar.

Þetta er bara rugl og vitleysa.
10:00 | 05 ágúst | 2010

Valsmaður said:

...
Valsarar.is!

Vitiði hvort það verði gefin út bók um 100 ára sögu Vals á næsta ári?
13:39 | 05 ágúst | 2010

Tryggvi Jóns said:

...
Mér skilst að það standi til.
13:54 | 05 ágúst | 2010 | url

Ási said:

...
Er ekki verið að taka saman efni á þessari stundu?
14:38 | 05 ágúst | 2010

Grímur Atlason said:

...
Það væri gaman að fá upplýsingar um stefnu stjórnar knattspyrnudeildar og hvernig hún starfar. Eru haldnir reglulegir fundir? Eru teknar sameiginlegar ákvarðanir eða er þetta meira og minna sólóverkefni formanns og varaformanns? Hvers vegna er hlaupið til og keyptur maður á miðju tímabili - viku eftir að annar fór vegna skorts á mínútum? Sýnir þessi stjórn flaggskipi Vals (kvennaliðinu) einhvern áhuga?

Þetta lítur út fyrir að vera hreint og klárt rugl frá A-Ö. Þetta er dæmi um panikstjórnun - sem er vont þegar stöðugleika og stjálfstraust skortir. Við eigum sögu Valsmenn um að hafa rekið knattspyurnudeild karla með sama hætti. Ungir menn hurfu frá okkur og uppistaðan í liðinu voru útbrunnir karlar sem gátu lítið. Nú er kominn tími á algjöra úthreinsun.
15:07 | 05 ágúst | 2010

Ási said:

...
Það væri kannski bara kominn tími á uppbyggingu....
16:29 | 05 ágúst | 2010

tóti said:

...
Hvaða útbrunnu karla ertu að tala um sem gátu lítið Grímur?
16:31 | 05 ágúst | 2010

A.S said:

...
Við skulum ekki missa okkur í neikvæðninni, Valur er í góða færi að byggja upp sterkt lið með ungum leikmönnum. Haraldur Björns, Einar Marteins, Stefán Eggerts, Haukur Páll, Rúnar Már, Þórir G, Arnar Sveinn, Guðmundur Steinn. Hér eru 8 leikmenn sem eru í kringum Valsliðið í dag. Fyrir utan Harald sem ég held að hljóti að verða aðalmarkmaður næsta sumar eftir þetta lán hjá Þrótt. Þetta er nokkuð mikið af ungum leikmönnum og auk þessara 8 leikmanna eru sterkir leikmenn í 2 flokk. Því er Valur í fínu færi að byggjau upp þrusu lið og Gulli hefur sýnt það á Selfossi að hann vinnur vel með ungum leikmönnum.

Við erum ekki að fara falla og því hlýtur bara vera markmiðið að nota þessa drengi meira, leikmaður eins og Rúnar á að byrja alla leiki núna og ég held að hann verði bókað einn besti miðjumaðurinn næsta tímabils. Einnig á Guðmundur Steinn bara að fá að klára þessa strikera stöðu og Írinn að vera backup fyrir hann bara. Einnig vil ég sjá meira af Þóri hinum rauðhærða enda með hraða og vinstri fót sem sárlega vantar í liðið. Svo getur ekki sakað að hafa Einar Marteins í vörninni restina af tímabilinu.

Ef Gulli myndi gera þetta held ég að hann yrði með fullt traust allra stuðningsmanna. Ólíkt oft áður er nóg af efnivið í kringum meistaraflokk Vals og við verðum bara að nota tækifærið sem núna býðst og keyra vel á honum.
17:38 | 05 ágúst | 2010

Valsmaður said:

...
Virkilega góðar spurningar hjá Grími.

Væri gaman að henda inn einhvers konar spurningalista til knattspyrnudeildarinnar, þar sem stuðningsmenn gætu spurt málefnanlegra spurninga um það sem þeim brennur á vörum.

Það má að sjálfsögðu ekki vera þannig að stuðningsmenn Vals líður eins og þeir séu fjarlægir félaginu!

Annars koma alltaf skítaleikir á hverju einasta sumri og þarafleiðandi held ég að það sé gott fyrir alla að anda aðeins með nefinu áður en það er dritað smilies/smiley.gif
17:40 | 05 ágúst | 2010

Grímur Atlason said:

...
Tvennt. Í fyrsta lagi ætlaði ekki að meiða neinn með athugasemd minni hér að ofan. Hafi ég gert það biðst ég afsökunar á því. Í öðru lagi þá virðast menn hafa miskilið þessi ummæli mín hér: "Við eigum sögu Valsmenn um að hafa rekið knattspyurnudeild karla með sama hætti. Ungir menn hurfu frá okkur og uppistaðan í liðinu voru útbrunnir karlar sem gátu lítið." Þetta er ekki liðið í dag heldur saga félagsins á köflum t.d. árin 1989-1992. Við komum út úr því stórskuldugt félag og afar slakan árangur um árabil. Þegar vélin höktir hættir mönnum til að versla ógætilega - það má ekki endurtaka sig!
08:48 | 06 ágúst | 2010

Rauður said:

...
Sammála Grími, þó að Valur eigi eitthvað af fjármunum um þessar mundir er ekki verjandi að sólunda þeim í endalaus kaup. Það er ekki sjálfbært og getur sett okkur fljótt aftur á þann reit, fjárhagslega, sem við vorum á hérna fyrir 10 árum eða svo, þegar menn voru í fúlustu alvöru að ræða sameiningu við Fjölni til að redda fjárhagnum.
11:59 | 06 ágúst | 2010 | url

Sigurbjörn said:

...
Sammála Grími já, ha ha góður þessi. Í guðana bænum hættið þessu niðurrifi og styðjið ykkar félag í stað þess að rífa niður. Grímur er út um allt land að boða nýja siðvæðingu, ég held að hann ætti að byrja á sjáfum sér i þeim efnum svo ekki sé nú fastar kveðið- Varðandi sameiningar hugmynd hér um árið við Fjölni þá var það af allt öðrum toga en að bjarga Val úr fjárhagsklemmu, reyndu nú að hafa staðreyndir réttar.
Áfram Val í blíðu og stríðu - látið ekki kappið bera fegurðina ofurliði.
15:59 | 09 ágúst | 2010 | url

Valli said:

...
Ég bara næ því ekki hvernig það getur flokkast undir niðurrif að hafa áhyggjur af félaginu sínu og lýsa þeim áhyggjum upphátt
16:07 | 09 ágúst | 2010 | url

Sigurbjörn said:

...
Áhyggjur? Eru þetta áhyggjur eða niðurrif?

"Við erum bara lélegir, þannig er það bara. Engin liðsheild og slakur varnarleikur skilar því sem þetta lið á inni. Svo horfum við upp á hreinsun í hópnum í vetur og svo verður keypt alveg villt og galið um vorið í nafni uppbyggingar.,,
"Þetta lítur út fyrir að vera hreint og klárt rugl frá A-Ö. Þetta er dæmi um panikstjórnun - sem er vont þegar stöðugleika og stjálfstraust skortir. Við eigum sögu Valsmenn um að hafa rekið knattspyurnudeild karla með sama hætti. Ungir menn hurfu frá okkur og uppistaðan í liðinu voru útbrunnir karlar sem gátu lítið. Nú er kominn tími á algjöra úthreinsun,,

"Við eigum sögu Valsmenn um að hafa rekið knattspyurnudeild karla með sama hætti. Ungir menn hurfu frá okkur og uppistaðan í liðinu voru útbrunnir karlar sem gátu lítið."

ja hérna ég segi nú ekki meir...........Valli minn hafðu bara áhyggjur áfam, fyrir mér eru þetta ekki áhyggjur heldur neiðvæðni og niðurrif en sumir þrífast best í því ekki satt?
16:23 | 09 ágúst | 2010 | url

HB said:

...
Það er eðlilegt að menn velti fyrir sér stöðu liðsins og hvað sé í gangi. Lélegur árangur kallar á umfjöllun sem er ekki einhver lofræða. Vert þú bara í góðum fíling ef þú ert ánægður með þetta Sigurbjörn.
17:46 | 09 ágúst | 2010

Sigurbjörn said:

...
Ertu ekki aðeins of ýktur HB? Eðlilegasti hlutur í heimi að fjalla um Val og uppbyggileg, málefnalegan og réttlátan hátt, gagnrýni á fullan rétt á sér. Það er munur á lofræðu og sanngirni rétt eins og það er munur á neikvæðni,niðurrifi og gagnrýni.
18:29 | 09 ágúst | 2010 | url

HB said:

...
Margur heldur mig sig.
18:46 | 09 ágúst | 2010

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 05. ágúst 2010 14:10