• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Þremur stigum landað
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Þriðjudagur, 01. júní 2010 14:48
sun_falcon2
Orange klúbburinn réð ekki við fálka klúbbinn

Langþráður heimasigur varð loks að veruleika á Hlíðarenda þegar Fylkir mætti í heimsókn. Valsarar voru sannarlega búnir að bíða lengi eftir þessum sigri sem var jafnframt stærsti sigur liðsins frá því að Vodafonevöllurinn var vígður. 5-2 voru lokatölurnar sem voru einmitt þær sömu og í leik Vals og Fylkis 1996. Eins gott fyrir gestina að ekki séu falin jarðteign í þeim tölum en það ár féll Fylkir síðast. En hvað sem því líður voru Árbæingar ekki eins og þeir eiga að sér að vera í öftustu víglínu. Valsliðið náði að galopna vörn þeirra nokkuð oft og áttu menn í minnstu vandræðum með að stinga sér á milli varnarmanna og finna lausa menn inn á miðjum vítateig. Varla hefur verið leiðinlegt að vera fluga á vegg í búningsklefa Óla Þórðar eftir leik en sennilega eru fáir sem venjast því jafn illa að tapa og Skagatrukkurinn.

Nokkuð jafnræði var með liðunum fyrstu mínútur leiksins en Valsmenn byrjuðu líkt og síðustu leikjum að setja ákveðna pressu á andstæðinga sína. Eftir rétt tæpar 11. mínútur leit fyrsta mark leiksins dagsins ljós. Martin Pedersen tók aukaspyrnu á miðjum vallarhelming sem Danni Köning fann endann á átti fastan skalla í markið. Reyndar virtist boltinn hafa viðkomu í öðrum leikmann á leiðinni inn en danski markvarðahrellirinn er vel að því kominn að fá það skráð á sig. Segja má að gestirnir hafi tekið sig saman í andlitinu við þetta mark en þeir hófu að sækja af miklum móð eftir markið. Valsmenn voru í mestu vandræðum með kantspil Fylkismanna sem komust full auðveldlega upp að endamörkum í nokkur skipti og aðeins virtist tímaspursmál hvenær vörn Vals myndi bresta.


danni

Marka Köning

Þegar um hálftími var liðinn af leiktímanum slapp einn Fylkismaðurinn inn fyrir, lék á Kjartan Sturlu sem sýndi af hverju hann er betri í beita höndunum heldur en fótunum þegar hann skutlar sér. Vítaspyrna óumflýjanleg en menn göntuðust með að nærvera Kristins Jakobssonar sem fjórða dómara hefði þessi áhrif. Líklega hefur umræða um rauð spjöld á markmenn undanfarið hjálpað Kjartani að hanga inn á en varnarmaður Vals var þó kominn á marklínuna. Albert Brynjar Ingason fyrrum Valsmaður steig á punktinn en Kjartan gerði vel að verja frá pilti. Frákastið fór því miður beint fyrir fætur Árbæingsins sem kláraði færið gegn fjölskyldufélaginu. Valsmenn komnir með mark á sig eins og í öllum hinum leikjum mótsins en líkt og gegn Grindavík á dögunum lögðu menn ekki árar í bát.

Tæpum fimm mínútum eftir jöfnunarmark Fylkis fékk Valur aukaspyrnu á miðjum vallarhelming og líkt og í opnunarmarkinu tók Pedersen hana. Í þetta skipti fann Daninn kollinn á Hauki Páli sem skoraði þar sitt fyrsta mark fyrir Val. Menn sannarlega sáttir enda hafa föstu leikatriðin verið eins og heit kartefla í höndum Valsliðsins það sem af er móts. Segja má að Valsarar hafi verið óheppnir að bæta ekki við þriðja markinu fyrir leikhlé. Í fyrra skiptið þegar Arnar Sveinn komst á auðan sjó en fékk á sig dæmda ósanngjarna rangstöðu. Í síðara skiptið fékk Köning síðan frían skalla inn í vítateig en Fjalar Þorgeirsson varði glæsilega krafmikla kollspyrnuna. 2-1 í hálfleik og flestir sáttir þrátt fyrir að þriðja markið hefði verið vel þegið.

oranges

Vörn gestanna var í algjörri klessu

Síðari hálfleikur hófst með látum og margir vallargestir enn að koma sér fyrir þegar Baldur Ingimar kom Val í 3-1. Fylkismenn æfir og mátti heyra ýmis ógreinileg öskur koma frá varamannaskýli þeirra. Þrátt fyrir brekkuna framundan gáfust gestirnir síður en svo upp og héldu boltanum vel innan liðsins og pressuðu duglega.

Það virtist ætla að bera árangur þegar knötturinn virtist vera nánast kominn inn í markið en Atli Sveinn náði á ótrúlegan hátt að bjarga. Boltinn barst út á Glenn Ross sem skóflaði honum fram og þar náði Danni Köning að flikka tuðrunni á Arnar Svein. Arnar náði góðu starti og stakk sér upp kantinn og Köning stefndi með honum upp í vítateig. Varnarmenn Fylkis virtust ekki hafa hugmynd um hver ætti hvaða hlutverk og Arnar Sveinn átti fyrirgjöf beint úr Beckham handbókinni á kollinn á Köning sem veitti Fylki algjört rothögg.

Leikmenn Fylkis hafa eflaust haft lítinn áhuga á að verða helstu skotspónar Óla Þórðar að undanskildum Andresi Má Jóhannessyni sem lét reka sig af velli fyrir háðsglósur til línuvarðar. Frekar ódýr brottvísun en gulu spjöldin í leiknum voru einnig fyrir litlar sakir á meðan aðrar hættulegar tæklingar voru látnar lítt átaldar. Það er vonandi að lærisveinar trukkabílstjórans fari nú ekki að stórslasa menn í sumar með ákafa sínum. Ian Jeffs sem kom inn á fyrir markaskorara síðasta leiks, Jón Vilhelm Ákason, rak síðan smiðshöggið á sigurinn þegar hann skallaði fyrirgjöf frá téðum Arnari. Pape Mamadou Faye klóraði í bakkann fræga en að öðru leyti var Fylkisliðinu kaffært.

fylkis2

Stuðningsmenn Fylkis voru varla upplitsdjarfir að leik loknum

Ef menn geta svekkt sig á einhverju eftir jafn öruggan sigur á hátt skrifuðu liði Fylkis þá er það helst að mörkin hefðu auðveldlega getað orðið fleiri, sérstaklega eftir að gestirnir urðu manni færri. Vörn Fylkismanna var meira og minna út á þekju. Kannski er helst hægt að skrifa það á markagræðgi einstakra leikmanna á lokamínútunum þegar þeir tóku heldur skot en að senda boltann í upplögðum færum. Danni Köning var sjóðandi heitur og hefði auðveldlega getað skorað fleiri en Fjalar gerði einnig vel að verja gegn honum. Sóknarmenn þrífast á sjálfstrausti og samherjarnir hefðu mátt hjálpa Köning meira við að ná þrennunni en það er þó ekkert til að erfa við neinn enda var sigurinn löngu orðinn öruggur.

Þokkaleg stemmning var Vals megin í stúkunni í gær en eitthvað fór lítið fyrir stuðningsmönnum Fylkis sem hafa yfirleitt verið öflugir. Samkvæmt áhorfendatölum í Mogganum voru um 1100 manns mættir en eitthvað var þó af lausum sætum í hinni 1200 manna stúku. Einar Örn Daníelsson dæmdi leikinn og þarf ekki að svara til saka fyrir nein afglöp af sinn hálfu og flestir voru eflaust fegnir að Kristinn Jakobsson var í hlutverki eftirlitsmanns, sem hann sinnti með sóma vel að merkja.

Næsti leikur liðsins er í bikarkeppninni gegn Aftureldingu úr Mosfellsbæ á fimmtudagin klukkan 19.15 á Vodafonevellinum. Mikið uppbyggingarstarf bíður forkólfa Aftureldingar en félagið er sem stendur í 10. sæti í 2. deild. Nánar að þeim leik síðar.

Digg    Facebook   
Besservisserar (0)add comment

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 01. júní 2010 15:38