• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Pálmi með þrennu í 3-0 heimasigri
Laugardagur, 17. maí 2008 13:22
Pálmi Rafn Pálmason stal senunni í Laugardalnum miðvikudagskvöldið síðastliðið þegar hann skoraði öll þrjú mörk Valsmanna í öruggum heimasigri á Grindvíkingum.  Sannarlega góð úrslit og okkar menn komnir á blað í deildinni.

Valsmenn gerðu eina breytingu á liðinu frá því á laugardaginn en Sigurbjörn kom inn fyrir Danna Hjalta.  Fyrri hálfleikur var frekar tíðindalítill.  Valsmenn stýrðu ferðinni en Grindvíkingar lágu tilbaka og voru nokkuð þéttir.  Hinsvegar voru þeir alveg bitlausir fram á við virtust treysta algjörlega á Scott Ramsay.  Valsvörnin réði léttilega við það og átti satt best að segja mjög náðugan dag.

 

Til tíðinda dró rétt fyrir leikhlé en þá skoraði Pálmi með laglegu skoti eftir sendingu frá Bjarna Ólafi.  Pálmi var svo aftur á ferðinni snemma í síðari hálfleik.  Valsmenn tóku aukaspyrnu á sínum vallarhelmingi, sendu fram þar sem Pálmi skallaði hann á Helga sem sendi hann strax á Pálma sem tók eina snertingu og skoraði svo með góðu skoti frá vítateigslínunni.  Sannarlega snaggaralegt mark og dæmi um hvað okkar menn geta verið hættulegir.

 

Áfram stýrðu heimamenn ferðinni og Grindvíkingar komust ekkert áfram.  Willum gerði breytingar á síðustu tíu mínútunum.  Albert Ingason, Rasmus Hansen og Baldur Þórólfsson komu inná sem varamenn og það var eftir sendingu frá þeim síðastnefnda sem Pálmi skoraði þriðja mark sitt í uppbótartíma

 

Greinilegt er að Pálmi er í hörkuformi.  Mikið var talað um fyrir mótið að hann ætti eftir að eiga flott tímabil og greinilegt að töluvert var til í þeirri umræðu.  Gaurinn hefur frábært nef fyrir markinu og er einfaldlega stórhættulegur.  Hann er mögulega okkar X-factor því það er svo mikilvægt að hafa framliggjandi miðjumann sem getur skorað mörk og tekið þannig athygli frá sóknarmönnunum.  Annað markið hans í kvöld var gott dæmi um það hversu hættulegur hann er og eitthvað sem öll liðin í deildinni þurfa að hafa áhyggjur af.


Fyrir okkur Valsmenn var leikurinn frábært meðal eftir vonbrigðin í Keflavík.  Vissulega eru Grindvíkingar nýliðar og ekki skeinuhættasta lið deildarinnar en þeir spiluðu varnarbolta og sem betur fer tókst Valsmönnum að brjóta niður múrinn hjá þeim og náði að taka þrjú stig í leik þar sem flestir af okkar mönnum sluppu vel frá.  Næst á dagskrá er Fylkir í Árbænum.  Við höfum átt misjöfnu gengi að fagna þar í gegnum árin en tókum þó þrjú stig þar í fyrra.  Meira um það síðar.



Digg    Facebook   
Besservisserar (7)add comment

Ósáttur.is said:

...
Óheppileg grein í ljósi úrslita. Passa uppá hrokkann ;-)
23:40 | 19 maí | 2008

Maggi said:

...
Fáránlegur pistill, illa tímasettur og ósanngjarn. Og þú gleymdir að minnast á Evrópusætið sem Fylkir vann sér inn í fyrra.

Sjálfur held ég hvorki með Val né Fylki en svona hlutlaust séð - flott skita.
11:54 | 20 maí | 2008

Mottan said:

...
Sé ekki hvar er verið að skíta yfir ein né neinn....
12:16 | 20 maí | 2008

Maggi said:

...
Sagði ekki að neinn hefði skitið yfir neinn nema hugsanlega greinarhöfundur á sig.
13:00 | 20 maí | 2008

Fótboltaáhugamaður said:

...
Það er kannski ekki skitið yfir neinn en svona nett verið að gera lítið úr Leifi þjálfara Fylkis, þó ekki sé nema með myndinni.
14:20 | 20 maí | 2008

Tryggvi said:

...
Það er nú meira verið að velta því upp hvort að Leifur sé á þunnum ís sérstaklega í samanburði við forvera sína. Myndin hæfði fyrirsögninni, held að allir hugsandi menn hljóti að fatta það.
14:56 | 20 maí | 2008 | url

Stuðningsmaður Fylkis said:

...
Í guðanna bænum félagar, verið ekki að stressa ykkur á þessu. Þetta er fín grein, skemmtileg pæling og sniðug mynd af honum Leifi okkar. Um að gera að skrifa sem flestar greinar um sem flesta og gera sem mest úr fótboltanum á Íslandi!

Bestu kveðjur úr Árbæ
15:41 | 20 maí | 2008

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Mánudagur, 19. maí 2008 06:35