• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Meisturunum pakkað saman!
Föstudagur, 17. október 2008 08:09

Aron Kristjánsson tók leikhlé eftir 171 sekúndu til að reyna að forðast að leikurinn færi úr böndunum.  Tilraunin mistókst.  Valsmenn hreinlega keyrðu yfir Hauka í fyrri hálfleik, pökkuðu þeim saman, snýttu þeim eða hvernig sem á að orða það.  Þeir leiddu 21-8 í hálfleik og enduðu með því að vinna 35-23.  Sigurinn hefði getað orðið stærri en Valsmenn slökuðu á undir restina.


 


Staðan var 3-0 fyrir Val þegar Aron tók leikhléið og var það aðeins byrjunin á þeirri upprúllun Vals á Haukum sem fyrri hálfleikurinn var.  Haukar náðu að halda þessu í 7-4 en þá skildu leiðir þegar Valur smellti sex mörkum í röð á gestina til að leiða 13-4.  Haukar svöruðu með tveimur mörkum og staðan 13-6.  Valsmenn vildu ekki meira af því og bættu í.  Þeir enduðu með því að leiða 21-8 í hálfleik, hálfleikur sem var bara sýnikennsla í handbolta að hætti Valsmanna.


 

Seinni hálfleikur rann upp og strax var ljóst að Valur ætlaði ekki að slaka á.  Þeir juku við forskotið til að byrja með og léku við hvern sinn fingur.  Á meðan ríkti algjört ráðaleysi í Haukaliðinu og Aron Kristjánsson átti auðsýnilega erfitt með að trúa því sem var að gerast.  Á meðan stýrði Óskar Bjarni sínum mönnum meistaralega af hliðarlínunni og gat leyft sér þann munað að spila á öllum leikmönnum.  Síðustu tíu mínútur leiksins voru í reynd bara æfingamínútur.  Haukar náðu aðeins að klóra í bakkann en komust aldrei undir tíu mörkin og lokatölur 35-23 í Vodafonehöllinni. 

 


Valsliðið lítur svakalega vel út núna.  Þeir tóku Fram sannfærandi um daginn, gerðu jafntefli við FH um helgina og tóku svo Haukana í nefið í gær.  Förum aðeins í gegnum liðið.  Óli hefur að mestu átt markið í byrjun móts.  Hann hefur varið vel og gerði það í gær einnig.  Hann náði meira að segja að skora eitt mark í gær, yfir allan völlinn, yfir Birki Ívar.  Á bekknum í gær var


Pálmar sem er ekki síðri markvörður.  Hann kom inná í gær og tók tvö víti, ekki amalegt það.  Vörnin fyrir framan hjálpar líka markmönnunum.  Fúsi er kominn heim aftur og hreinlega eitt skrímsli þarna í miðri vörninni.  Hann er gríðarlegt stórt púsl og setur vörnina í nýja vídd.  Í fyrri hálfleik í gær áttu Haukarnir í vandræðum með að komast í færi, hvað þá að skora.  Fúsi er auðvitað ekki einn þarna.  Hann hefur Ingvar með sér og Elvar einnig.  Svo er að koma upp nýr tankur í Orra Frey Gíslasyni.  Hann kom inn af bekknum í gær og er stórefnilegur, bæði í vörn og sókn.  Fyrir framan þessa kappa er Baldvin sem er alltaf að trufla sóknarmennina.  Hann er svo aðalhraðaupphlaupskallinn ásamt Arnóri Gunnarssyni. 

 


Í sókninni er svo nóg að vopnum.  Elvar var flottur þar í gær, hefur frábæra skottækni og þarf ekki mikinn tíma eða pláss til að ná skoti.  Svo er Sigfús Sigfússon þarna og Siggi Eggerts getur sprengt þetta upp líka.  Hornamennirnir eru svo mjög solid.  Ingvar tekur línuna, Orri getur það líka og svo eigum við Fúsa sem möguleika þar.  En hann er samt langdýrmætastur í vörninni og því frábært að halda honum ferskum fyrir það.


 

Kannski áttu Haukarnir slæman dag í gær og það hafi spilað inní.  Samt verður það ekki tekið af Valsstrákunum okkar að þeir áttu frábæran dag.  Þeir spiluðu fyrir hvern annan og leikgleðin var mikil.  Einnig var gaman að sjá að þeir slökuðu ekki á þegar þeir náðu smá forskoti, heldur keyrðu þeir yfir Haukana og kláruðu leikinn strax. Ég hvet alla til að mæta á leikina í Vodafonehöllinni, og útileikina líka, því það er frábær skemmtun að horfa á strákana spila í þessari flottu höll.  Þetta lið á eftir að fara langt í vetur og um að gera að vera með frá byrjun.

 

 

 

Digg    Facebook   
Besservisserar (0)add comment

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy