• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Málning þornar á endanum
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Mánudagur, 09. ágúst 2010 13:31
Framlag Vals til Gleðigöngu Hinsegin daga var 90 mínútna leiðinda hátíð. Eða svo segja menn. Greinilegt var að Gulli Jóns er farinn að horfa niður fyrir sig á töflunni frekar en upp á við því tap gegn Grindavík hefði þýtt að gestirnir hefðu verið aðeins þremur stigum á eftir Val. 0-0 jafntefli og langrþráð hreint mark leit dagsins ljós og greinilegt var á viðtölum eftir leik að þungu fargi var létt af Valsliðinu hvað það varðaði.
Eftir velheppnaða ferð norður í land var fulltrúi Valsara.is mættur á heimaleik gegn Grindavík. Eitthvað settu umferðartafir strik í ferðaáætlun síðuskrifara þannig að fyrri hálfleikur gekk úr skaftinu og mátti þakka fyrir að ná síðustu 40 mínútum leiksins. Sessunautur minn á Vodafonevellinum fulllvissaði mig um að ekkert stórmerkilegt hefði átt sér stað fram að því og síðar um kvöldið staðfestu Pepsi mörkin með Magga Gylfa og félögum það.
Gulli Jóns var furðu líflegur á línunni miðað við oft áður í sumar og hver veit nema að pressan sé farin að ná til hans. Liðið virtist hugsa mest megnis um að tapa ekki leiknum og tók litlar áhættur fram á við. Reyndar virðist liðinu orðið lífsins ómögulegt að sækja enda losuðu menn sig við einu sóknarmenn félagsins í félagaskiptaglugganum. Síðasta korterið var nánast eign Grindvíkinga sem voru óheppnir að læða ekki inn marki enda sýndu þeir mun meiri sigurvilja og fengu hættulegri færi.
Valsarar.is hafa verið duglegir að benda á markahrinu Valsliðsins síðastliðið ár. Núna loksins komu helstu fjölmiðlamógúlar landsins auga á þessa skelfilegu tölfræði en Valsarar.is taka ekkert aukalega fyrir að vekja athygli á þessu. Liðið batt enda á 20 leikja hrinu í deildinni þar sem það fékk á sig mark og ef bikarleikir eru taldir með þá eru þeir orðnir fimm í röð. Þessir leikir skarast á innbyrðis við deildarleikja hrinuna svo menn skulu forðast að telja þetta sem 25 leiki í röð heldur eru þetta 20 leikir í deild og fimm í bikar. Glósaðu þetta blaðamaður.
Næsti leikur Vals er gegn Fylki á mánudaginn eftir viku. Eini virkilega góði leikur Vals kom einmitt gegn Árbæjarliðinu og kannski menn endurtaki þá gleði. Nánar að því

síðar.

malning



Framlag Vals til Gleðigöngu Hinsegin daga var 90 mínútna leiðinda hátíð. Eða svo segja menn. Ljóst var að Gulli Jóns er farinn að horfa niður fyrir sig á töflunni frekar en upp á við því tap gegn Grindavík hefði þýtt að gestirnir hefðu verið aðeins þremur stigum á eftir Val. 0-0 jafntefli og langrþráð hreint mark leit dagsins ljós og greinilegt var á viðtölum eftir leik að þungu fargi var létt af Valsliðinu hvað það varðaði.

Eftir velheppnaða ferð norður í land var fulltrúi Valsara.is mættur á heimaleik gegn Grindavík. Eitthvað settu umferðartafir strik í ferðaáætlun síðuskrifara þannig að fyrri hálfleikur gekk úr skaftinu og mátti þakka fyrir að ná síðustu 40 mínútum leiksins. Sessunautur minn á Vodafonevellinum fulllvissaði mig um að ekkert stórmerkilegt hefði átt sér stað fram að því og síðar um kvöldið staðfestu Pepsi mörkin með Magga Gylfa og félögum það að mestu.

Gulli Jóns var furðu líflegur á línunni miðað við oft áður í sumar og hver veit nema að pressan sé farin að ná til hans. Liðið virtist hugsa mest megnis um að tapa ekki leiknum og tók litlar áhættur fram á við. Reyndar virðist liðinu orðið lífsins ómögulegt að sækja enda losuðu menn sig við einu sóknarmenn félagsins í félagaskiptaglugganum. Síðasta korterið var nánast eign Grindvíkinga sem voru óheppnir að læða ekki inn marki enda sýndu þeir meiri sigurvilja og fengu hættulegri færi.


naestakynslod
Núverandi uppbyggingar áform gætu tekið tíma

Valsarar.is hafa verið duglegir að benda á markahrinu Valsliðsins síðastliðið ár. Núna loksins komu helstu fjölmiðlamógúlar landsins auga á þessa skelfilegu tölfræði en Valsarar.is taka ekkert aukalega fyrir að vekja athygli á þessu. Liðið batt enda á 20 leikja hrinu í deildinni þar sem það fékk á sig mark og ef bikarleikir eru taldir með þá eru þeir orðnir fimm í röð. Þessir leikir skarast á innbyrðis við deildarleikja hrinuna svo menn skulu forðast að telja þetta sem 25 leiki í röð heldur eru þetta 20 leikir í deild og fimm í bikar. Glósaðu þetta blaðamaður.

Annars er lítið um þennan leik að segja en svo virðist sem að menn óttist að stigasöfnun í ágúst og september geti reynds erfið. Næsti leikur í uppbyggingarferli Vals er gegn Fylki á mánudaginn eftir viku. Eini virkilega góði leikur Vals á þessu Íslandsmóti kom einmitt gegn Árbæjarliðinu og kannski að menn endurtaki þá gleði. Nánar að því síðar.

Digg    Facebook   
Besservisserar (33)add comment

MK said:

...
Við þurfum að rífa upp stemmninguna Valsmenn. Ekki hægt að öll stúkan sé með þennan bölmóð sem ræður ríkjum hér. Ræðum síðan breytingar sem þarf að gera eftir tímabilið.
23:21 | 09 ágúst | 2010 | url

Ási Sveinss said:

...
Komnir á kreik sterkir orðrómar um að Valur séi að leita að nýjum þjálfara (sem mér persónulega þætti ekki sniðugt). Menn vilja kannski kenna þessari síðu um það líka....
23:41 | 09 ágúst | 2010

Gary Player said:

...
Hættum þessu reka kjaftæði hjá Val. Gulli er flottur karakter og lærir af þessu tímabili og kemur síðan sterkur til baka ef hann fær tíma. Þetta er efnilegur þjálfari sem ætlar að ná langt, það veit ég fyrir víst. Ef Gulli verður rekinn erum við í sömu sporum og í fyrra og þurfum að leita að nýjum þjálfara sem enginn veit hvað getur og það viljum við ekki. Slakið nú aðeins á sem eruð með þessa síðu og leyfið fólki að fá smá vinnufrið.
00:29 | 10 ágúst | 2010

Valli said:

...
Það væri algjörlega fatalt að reka Gulla, hann verður að fá tíma til að keyra sitt prógramm. Það væri
01:40 | 10 ágúst | 2010 | url

Ási Sveinss said:

...
Það er nákvæmlega það sem ég er að segja. Það væri mjög slæmt ef rétt reynist að stjórnin séi farin að líta í kringum sig eftir nýjum þjálfara.
08:59 | 10 ágúst | 2010

Bjössi said:

...
Er ekki spurning um að fara skoða þessa stjórn áður en þjálfara og leikmannamál verða kollvörpuð eina ferðina enn?
10:15 | 10 ágúst | 2010

Sig.B said:

...
Slaka aðeins á Ási og Bjössi, hvar hefur það komið fram að stjórnin sé að skipta um þjálfara? Ekki fara nú að búa til kjaftasögur. Veit ekki betur en að stjórnir okkar félags - fótbolti, handbolti, körfubolti og aðalstjórn séu í þessu af lífi og sál. Leyfið nú mönnum sem eru að sinna þessum störfum að vinna sína vinnu í friði fyrir svona bulli.
10:27 | 10 ágúst | 2010 | url

Friðjón Friðjónsson said:

...
Það er rangt að stjórn sé að svipast eftir þjálfara.
Gulli er með samning og að öllu óbreyttu verður staðið við þann samning.

Þetta veit ég, því ég sit í þessari annars ágætu stjórn.
11:02 | 10 ágúst | 2010

Bjössi said:

...
Gott mál!
11:07 | 10 ágúst | 2010

Ási Sveinss said:

...
Gott að heyra. Það væri samt kannski ráð að koma því svona almennt á framfæri þar sem að ég er búinn að heyra frá 3 mismunandi aðilum sem eru í og í kringum pepsi deildina að Valur séi að huga að þjálfaramálum sínum.

Gulli á að sjálfsögðu að fá sinn tíma til að setja sitt mark á Hlíðarenda.
11:31 | 10 ágúst | 2010

Ási Sveinss said:

...
Gætir þú samt sagt okkur Friðjón hvernig Valur er búinn að koma sér í þá stöðu að verða framherjalausir og þurfa að grípa inn leikmann sem ósköp lítið er vitað um? Hvað gerðist? Voru þetta mistök eða var Stjórnin búin að sjá eittvað af þessu fyrir og nokkurn veginn með þetta á hreinu?
11:34 | 10 ágúst | 2010

Friðjón Friðjónsson said:

...
Ási
Það er ákv. verkaskipting í stjórninni, þannig að ég er ekki 100% inn í hvernig þessi mál atvikuðust. Ég kom inn í stjórnina í vor og er enn að læra hvernig hlutirnir snúa.

En stjórnin hefur gert allt í sínu valdi til að uppfylla óskir Gunnlaugs og ég veit ekki til þess að hann hafi óskað eftir einhverjum leikmanni og það ekki verið uppfyllt eða amk. reynt eftir fremsta megni. Einnig hafa þeir sem sjá um leikmannamálin vakið athygli GJ á leikmönnum sem boðst hafa og þeir þá skoðað málin í sameiningu.

Það er ekki einhver ein ástæða fyrir því að þessi staða er komin upp en úr því sem komið er þá verðum við að vinna með það og læra af því.
13:03 | 10 ágúst | 2010

Friðjón Friðjónsson said:

...
Varðandi þessa 3 mismunandi aðila sem héldu því fram að Valur væri á höttunum eftir nýjum þjálfara. Þá er það ekkert skrítið að svoleiðis sögusagnir fara af stað eftir 5-0 tap og 7 leiki án sigurs. En í upphafi sumars gerðu menn sér grein fyrir að við myndum líklega ekki vera í toppbaráttunni í ár.

Við og Fram vorum á toppnum eftir 7. umferð og núna eru liðin í 7. og 8. sæti. En við erum bara 4 stigum á eftir IBK í 4. sæti. Því fer fjarri að tímabilið sé búið.
13:15 | 10 ágúst | 2010

HB said:

...
Ég fór að telja þessa leiki. Í 10 leikjum í deildar- og bikarkeppni er bara leikurinn við Víking sem Valur vann. Það var framlenging. Markatalan er 11-20. Það þolir enginn þjálfari svona kafla án þess að kjaftasögur fari af stað.
15:47 | 10 ágúst | 2010

Einar Bjarni said:

...
Vandamál númer 1, 2 og 3 hjá okkur er léleg stemning. Það virðist vera leiðinleg stemning í liðinu og það er frekar glötuð stemning á pöllunum. Það sem við þurfum að gera er að setja rakettu í rassgatið á Stuðurum (má ekki athuga með nýtt nafn?) og ég efast ekki um að það mun smitast yfir í liðið.

Fyrir næsta heimaleik, sem er stórleikur gegn KR, mæli ég með því að við gerum alls herjar átak í stuðningsmannamálum. Engin neikvæðni, bara að peppa menn upp. Höfum stúkuna eldrauða og ég var jafnvel að spá í hvort ég ætti ekki að reyna að redda eins og 5 stórum Valsfánum. Svo þarf einhver að stíga af skarið og leiða stemninguna á leikjum. Það hefur ekki verið saminn söngur á pöllunum í 2-3 ár og þeir sem eru til eru sjaldan sungnir.
16:45 | 10 ágúst | 2010

Valli said:

...
@Einar
Unnið er að því að gera fjósið á Hlíðarenda að stuðningsmannaathvarfi, og það væri sniðugt að blása lífi í stuðningsmannakjarnann í leiðinni.
Spurning hverjir af lesendum myndu mæta á léttan fund í Fjósinu að spjalla saman, skoða aðstöðuna og brainstorma. Það er kaldur í kælinum...
17:12 | 10 ágúst | 2010 | url

Ási Sveinss said:

...
Ég mæti!
18:46 | 10 ágúst | 2010

Valsmaður said:

...
Finnst virkilega frábært að maður úr stjórninni komi hingað inn og svari spurningum lesenda!

Nú langar mig að grípa gæsina og spyrja þig út í þetta uppbyggingarstarf sem menn tala mikið um. Þýðir það að verið sé að breyta yngri flokka starfinu eitthvað eða er stefnan að gefa fleiri Völsurum tækifæri í meistaraflokki?
20:19 | 10 ágúst | 2010

Ási Sveinss said:

...
Var ekki þriðji flokkurinn til að mynda tekinn inn á það sem kallast afrekssvið og þeir sem að skara fram úr þar er hjálpað að komast lengra. James Bett var líka ráðinn til að veita þessu auka aðhald. Er það ekki nokkurn veginn svoleiðis?
23:39 | 10 ágúst | 2010

Friðjón Friðjónsson said:

...
þetta er flottur vefur og þarfur.

Varðandi uppbyggingarstarfið þá er það já hugsað eins og Ási segir frá. Með því að samþætta betur þriðja, annan og meistaraflokk í afrekssviði vonumst við til að geta unnið betur með strákunum og stelpunum.

Svo er líka til afrekshópur innan sviðsins sem gefur þeim bestu enn betra tækifæri á að þjálfa sig til afreka. En það á að vera mikill agi á hópnum og menn geta misst sæti í honum með slakri ástundun eða kæruleysi.

Ási fylgist greinilega mjög vel með.

Við viljum fá alla efnilega krakka allsstaðar af landinu til félagsins. Valur á að vera fyrsti valkostur allra efnilegra leikmanna sem þyrstir í frábæra aðstöðu og stuðning. Þannig byggjum við upp flottar kynslóðir og gullaldalið.
01:21 | 11 ágúst | 2010

red said:

...
Hvernig væri að taka smá fund í Fjósinu og fá einhverja úr stjórn og jafnvel Gulla til að mæta...fara yfir málin og hreinsa andrúmsloftið á pöllunum? Helst fyrir KR-leikinn og mæta svo vitlausir í þann leik. Höfum ekki enn unnið þá á Vodafonevellinum.....
14:43 | 11 ágúst | 2010

Friðjón Friðjónsson said:

...
Red.
Það væri mjög sniðugt að halda peppfund í Fjósinu fyrir KR leikinn þar sem hægt væri að ræða málin.

Mér dettur í hug eftir ca. viku þar sem það er erfitt að fá þjálfarann á leikdegi eða amk rétt fyrir leik.

Þá er líka hægt að plana eitthvað fyrir KR leikinn ef menn vilja gera eitthvað spes.

Börkur er til í að mæta og við biðjum Gulla um að koma. Eins má myndu fleiri stjórnarmenn koma.

Við skulum boða til fundar en það ræðst dálítið af því hvenær Börkur og Gulli geta mætt.
15:39 | 11 ágúst | 2010

L.M said:

...
Einnig væri gaman að vita hví James Bett sé ekki að þjálfa 2 flokk eins og til stóð ?

Sé að 2 flokkur er ekki að standa sig að ráði þó að sterkir leikmenn séu þar á ferð, Valur á efnivið og við þurfum að keyra á honum á næstu árum í bland við sterka leikmenn.
17:35 | 11 ágúst | 2010

nimbo said:

...
Var að horfa á Ísland - Germany U21, getur einhver útskýrt fyrir mér af hverju í andskotanum er Halli ekki aðalmarkmaður hjá Val?
18:06 | 11 ágúst | 2010

Valli said:

...
Nákvæmlega, Halla heim og það strax!
00:34 | 12 ágúst | 2010 | url

Walter Zenga said:

...
Halli er með lánssamning hjá Þrótti út tímabilið sem er ágætt fyrir báða aðila víst Gulli vildi ekki nota hann. Það verður enginn markmaður betri á að sitja á bekknum. En ég skil ekki af hverju Gulli valdi Kjartan frekar víst hann ætlaði að byggja upp nýtt lið. Held að þetta sé samt síðasta árið hjá Kjartani í Val sem er búinn að vera góður fyrir félagið.
10:31 | 12 ágúst | 2010

nimbo said:

...
UPPBYGGING!!!!!!
14:47 | 12 ágúst | 2010

Trifon said:

...
Menn mega nú ekki alveg missa sig í neikvæðinni hérna. Mér sýnist það vera fínasta ákvörðun að leyfa Halla að spreyta sig í Þrótti og nota Kjartan. Að mínu mati hefur Kjartan átt eitt sitt besta tímabil og er fínn markvörður. Það hefði verið mun meiri áhætta að tefla fram Halla og ef þetta gengur upp þá verður hann klár í slaginn næsta vor. Við skulum nú ekki niðurrífa allt sem gert er, það er ekki allt ómögulegt þessa dagana. Svo vona ég að við fáum upphitun hérna fyrir bikarúrslitaleikinn á sunnudag þegar við mætum þeim úr silfurskeiðinni.
20:38 | 12 ágúst | 2010

Valsmaður said:

...
Afskaplega kjánalegt þegar lið frá litla Íslandi eru farin að haga sér á leikmannamarkaðnum eins og stórlið á Spáni. Hala endalaust inn af leikmönnum. Menn eiga að ala upp sína menn. Sjáið Jón Guðna Fjóluson sem er að skoða aðstæður hjá PSV. Í staðinn fyrir að kaupa einhvern gamlan ref á miðjuna sem spilaði einu sinni tvo A-landsleiki og hirðir einungis um peninga; þá er ungur, efnilegur drengur látinn spila og eftir tvö ár með meistaraflokki er aðeins tímaspursmál hvenær seðlarnir spreða inn í félagið vegna væntanlegrar sölu hans. Nú spyr ég, hvort er gáfulegra?

Ég hef einnig aldrei skilið af hverju Freyr Alexandersson er ekki kominn yfir í karladeildina í félaginu! Hæfileikaríkur þjálfari sem gæti vel verið þjálfari í Pepsideild karla.
11:43 | 15 ágúst | 2010

kristinn said:

...
Eitt af aðalsmerkjum Vals á undanförnum árum hefur verið að selja leikmenn sem fara í atvinnumensku erlendis og má þar nefna t.d Ara Frey Skúlason, Birki Sævarsson, Pálma Rafn og nú síðast Bjarni Ólafur.

Arnar og Tóti, ungir efnilegir valsmenn spila nú með meistaraflokki félagsins. Fyrir klúbb eins og Val er ekki nog að treysta á unglingastarfið, það þarf líka að finna unga efnilega í öðrum liðum eins og t.d Fram gerði í tilfelli Jóns Guðna sem gekk til liðs við þá 2004.

Það er margt gott í gangi. Ungur þjálfari, slatti af ungum leikmönnum, ekki tapað nema 4 leikjum í deildinni.

Hættum neikvæði og styðum við liðið

Áfram Valur



22:40 | 15 ágúst | 2010

Valsari89 said:

...
Er þetta eitthvað aðalsmerki hjá Val sem er hægt að stóla á eða heppni frekar kannski? Valur er ekki búið að spila út mörgum úr 2. flokk síðustu árin og mér sýnast peningarnir fyrir þessa stráka sem þú nefnir allir búnir fara í menn sem ekki er hægt að selja aftur. Væri flott ef væri búið að endurfjárfesta í öðrum "seljanlegum" leikmönnum en ekki Reyni Leós, Marel Baldvins, tvíburunum, tonni af dönum og búnka í viðbót af álíka slöppum mönnum.
01:03 | 16 ágúst | 2010

Valsmaður said:

...
kristinn: Þetta er auðvitað rétt hjá þér, þ.e. að Valsmenn eiga nokkra leikmenn sem ólust upp hjá félaginu og fóru síðar í atvinnumennsku. Ég tel samt sem áður að það er hægt að vinna betur með þá leikmenn sem eru í félaginu, eins og Valsari89 ýjar að.

Tökum sem dæmi þegar Sigurbjörn Hreiðarsson leggur skóna á hilluna, sem væntanlega gerist í bráð. Hvað gerir Valur þá? Kaupir Valur leikmann í hans stað eða leyfa þeir leikmanni úr 2. flokki eins og Magnúsi, fæddum 1991, að fá tækifæri til að spila. Ég get lofað ykkur því að ef Magnús fengi tvö tímabil með meistaraflokki þar sem hann myndi spila slatta, að þá yrði til úrvalsleikmaður.
10:19 | 16 ágúst | 2010

tóti said:

...
Já auðvitað á að nota heimamenn að mestu leiti ef það er hægt. En stundum er það ekki hægt einfaldlega. Hjá sumum klúbbum getur svona uppbygging gengið þar sem krafan á árangur er ekki eins mikil og hjá Val. En það er ekki mikil þolinmæði hjá Val.
Það verður athyglisvert að sjá hvað Sigurbjörn gerir einmitt. Mér sýnist hann nú eiga eitthvað eftir miðað við frammistöðuna í sumar. En ég hlakka ekki til þegar hann hættir enda verið órjúfanlegur hluti af Val og staðið sig frábærlega fyrir klúbbinn. Það kemur enginn í hans stað.
11:45 | 16 ágúst | 2010

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Mánudagur, 09. ágúst 2010 13:51