|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Langþráður sigur |
| Höfundur: Tryggvi Jónsson | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Þriðjudagur, 17. ágúst 2010 09:29 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() Haukur létti þungu fargi af Gulla Loksins tóku liðsmenn Vals þrjú stig frá knattspyrnuleik. Ekki nóg með það heldur hélst markið hreint annan leikinn í röð og geta Valsarar.is því hætt að út tuða sig um þann þátt í bili. Allt annar bragur hefur verið yfir vörn liðsins í síðustu tveimur leikjum og þó svo að spilið fram á við sé lítið til að hrópa húrra fyrir þá er auðvitað alltaf mikilvægt að treysta grunninn fyrst. Full oft í sumar hefur liðið verið að byrja leiki ágætlega en síðan fallið allur ketill í eld við að fá á sig mark. Leikur Fylkis og Vals einkenndist af mikilli stöðubaráttu og segja má að bæði lið hafi jafnað hvort annað út að því leytinu en fátt var um opin marktækifæri eða góða spilakafla. Báðir þjálfarar liðanna koma úr harðhausa bekknum í hinum fræga knattspyrnuskóla á Skipaskaga og eflaust hafa þeir félagar svipaðar skoðanir á því hvernig eigi að spila fótbolta.
Eftir afleitt gengi síðustu tvo mánuði þar sem liðið hefur hvorki verið þess megnugt að vinna leiki né að spila neitt sérstaklega vel var auðvitað fyrst og fremst mikilvægt að ná að kreista út sigurleik. Þrjú stig gegn Fylki þýða að Valur skilur sig endanlega frá hugsanlegum falldraug og nær að hanga í liðunum um miðja deildina. Næsti leikur er gegn KR klukkan 18.00 á mánudaginn. Vesturbæjar volæðið hefur náð nýjum hæðum eftir bikarúrslitin og spennandi verður að sjá með hvaða hætti liðin nálgast leikinn. Nánar að því síðar. Besservisserar (24)
![]()
L.M
said:
|
|
... Gulli fær hrós fyrir að fara bara í einfaldan ugly football og styrkja vörnina, þetta var nákvæmlega sem liðið þurfti á þessum tímapunkti. Liðið var líka ungt í gær, tveir annars flokks strákar inná, annars er þessi Íri ekki beint að heilla mig. |
|
... Ekki afskrifa Írann strax, þrátt fyrir að vera ekki sá fljótasti þá tekur hann vel á móti bolta, helur honum vel og skilar á samherja (átti að fá víti í gær). Einnig er hann að búa til ákveðna möguleika sem mun skila sér þegar leikmenn fara að þekkja betur inn á hans styrkleika |
|
... Ég er ánægður með Jón Vilhelm í síðustu leikjum. Hann virðist loksins vera tiltölulega meiðslalaus og farinn að gera eitthvað inni á vellinum. |
|
... Nú þarf þetta að byrja rúlla aftur hjá okkur. Við höfum tapað öllum leikjunum okkar við kr á Vodafonevellinum og þurfum að snú því við líka. Gott að sjá liðið halda hreinu og það byggist vonandi oná það. |
|
... Ég sá þennan leik og það mætti halda að Willum sé að stjórna þessu enþá hjá ykkur. |
|
... Sunny KEF Nei það er Gulli Jóns sem stjórnar núna. Willum gerði marga góða hluti hjá Val og á eflaust eftir að gera fína hluti hjá Keflavík. Með nýjum mönnum koma nýjar áherslur eins og t.d má sjá á aldri nokkra leikmanna Vals í leiknum í gær Greg Ross 23 ára Jón Vilhelm 24 ára Rúnar Már 20 ára Arnar Sveinn 19 ára Diarmuid O Carrol 23 ára Haukur Páll 23 ára Þórir Guðjón 19 ára |
|
... Já það eru flottir strákar þarna í liðinu ykkar bara eins og hjá okkur. Ég var meira að meina leikstílinn sem er nú bara svipaður og hjá Willum. |
|
... Sammála Björgvin, Jón Villhelm sýndi í gær að hann á fullt erindi þarna inn. Vonandi bara að hægt verði að halda hópnum fyrir næsta tímabil og bæta þá við 1-2 framherjum og einum varnarmanni. Eigum enn inni Matthías Guðmundsson td. |
|
... Klárlega miðja til að byggja á til framtíðar, með Hauk Pál og Rúnar bakvið Jón Vilhelm held ég að við séum með þriggja manna miðju sem á að vera ein sú besta á landinu næstu árin. Það eru góð tækifæri í Valsliðinu núna til að byggja upp sterkt lið og vonandi að menn beri gæfu til að mynda lið í kringum þann unga kjarna sem er í hópnum í dag. Hvernig er annars staðan á Matta? Er engin von á að púsla honum saman seinustu leiki mótsins? Það myndi lyfta leik liðsins á hærra plan að fá Matta einfaldlega í strikerinn og koma með hraða inn í liðið sem okkur hefur vantað síðan sá er við nefnum ekki á nafn yfirgaf liðið. |
|
... Liðið stóð sig vel í þessum leik og vann mikilvægan sigur. Svo var Rúnar ekki á miðjunni í leiknum heldur Haukur, Jeffs og Jón Vilhelm. Rúnar spilaði bakvörð. Ég vil samt alltaf sjá Hauk og Bjössa inná miðjunni. Þeir tveir hafa verið bestir hjá okkur í sumar og kannski Kjartan. Haukur ungur og virkilega spennandi og Bjössi með alla sína reynslu. Svo er hægt að nota Jón fyrir framan. Ég hélt að Bjössi væri orðinn of gamall fyrir þetta í upphafi móts en hann hefur svo sannarlega sínt að hann á nóg eftir. En hverjir verða hér á næsta ári. Útlendingarnir og þeir sem eru búnir á samning eru nokkuð margir. Sýnist það vera Gregg Martin Írinn Kjartan Bjössi Baldur A Jeffs Allt góðir leikmenn. Hverjum eigum við að halda? |
|
... Já miðjan stóð sig ágætlega og munar miklu þegar vörnin heldur. Matti fór í aðgerð á liðþófa skilst mér og ekki hægt að reikna með honum fyrr en í síðustu umferðunum og þá varla meira en í einhverjar mínútur í einu. |
|
... Persónulega finnst mér mikilvægt að Rúnar spili á miðjunni sem er hans staða og er hann lykilmaður þar upp á framtíðina. Það er ekki mikið í húfi úr því sem komið er á þessu tímabili og því sakar ekki að láta Rúnar keyra sig áfram með Hauki Pál á miðjunni. Bjössi er auðvitað ávallt góður og á að mínu mati að geta sinnt hlutverki í liðinu sem góður stuðningur við miðjumenn eins og Jón Áka, Hauk og Rúnar sem eru framtíðarhryggur liðsins. Væri gott að halda Bjössa, einnig væri gott að halda Baldri og Jeffs en þó á sanngjörnum launum. Martin Pedersen er auðvitað hörku leikmaður en ég á svona frekar von á því að hann fari aftur til Danmörku. Kjartann er búinn að vera nokkuð góður í ár en finnst líklegt að þetta sé hans seinasta tíma. Núna er að koma að tími á Halla Björns að stíga skrefið, hann þarf samt að bæta nokkra hluti fyrir næsta sumar til að verða solid markmaður í efstu deild. Írinn og Greg fara býst ég við. Svo fyrir mína parta vil ég sjá ungan Íslenskan framherja hjá Val næsta sumar, hefði þótt tilvalið að sjá Albert Inga en sé það nú ekki gerast aftur. |
|
... Gleymum ekki Guðmundi Stein á miðjunni. Ég hélt að Jeffs væri með samning til 2012 en samkvæmt KSÍ.is hefur hann verið styttur og rennur út í haust. Baldur er eiginlega sá eini á þessum lista sem ég yrði verulega svekktur með að missa. Það væri alveg skiljanlegt ef hinir hyrfu á braut. Halli er auðvitað ungur en hann þarf á reynslunni og vonandi ber okkur gæfa til að sýna honum tilskylda þolinmæði. Það er alltaf spennandi að sjá unga leikmenn ná að taka næsta skrefið á ferlinum. |
|
... Hverskonar Valsari ert þú að sjá ekki eftir herra Val Gæti ekki séð hann í öðrum klúbbi á móti okkur. |
|
... Ég hef eignilega ekki deilt þessari ofboðslegu hrifningu af Bjössa sem er útbreidd meðal margra Valsara. En ef Bjössi færi þá þætti mér líklegt að hann snéri sér að þjálfun frekar en að spila með öðru liði. Ég held að hann myndi heldur aldrei fúnkera almennilega sem leikmaður í öðru liði. |
|
... Held það séi nokkuð ljóst að Bjössi fari í þjálfun ef hann fer frá Val. Það er líka alveg ljóst að Sigurbjörn Hreiðarsson fer í sögubækurnar sem einn ástsælasti leikmaður Vals enda gert gríðarlega mikið fyrir félagið. Karakterinn skín í gegn hjá þessum manni enda hefði verið skelfilegt ef hann hefði farið til Breiðabliks á sínum tíma þegar að reynt var að losa sig við hann. Maðurinn á fullt inni hjá félaginu! |
|
... Já ég held að það sé rétt að hann er einn af þessum stóru í Val i sögunni. Frábær allhliða leikmaður sem hefur nánast alltaf spilað vel fyrir Val hvort sem það er mótlælti eða velgengni þá er hann alltaf góður. Mér hefur ef eitthvað er fundist hann vanmetinn. En ég held að það helgist oft af því að menn rýna ekki í leikinn nógu vel. Menn hafa reyndar alltaf rétt á að hafa sína skoðun. Eins og einn sem sagði við mig um daginn að Liverpool ætti að losa sig við Gerrard því hann væri mjög ofmetinn leikmaður og allt snérist um hann, og þetta var poolari. En svona er þetta og gaman af þessu bara. |
|
... Bjössi hefur þroskast líka vel sem leikmaður, hann þekkir sín takmörk og í dag nýtist hann vel sem þessi leikmaður sem situr djúpt á miðjunni og heldur spili nokkuð vel þar. það hafa komið slæm tímabil hjá honum fyrir nokkrum árum þar sem hann kannski var ekki alminnilega búinn að finna sig sem leikmann. En hann hefur sýnt mjög góða tryggð við Val og gegnir mikilvægu hlutverki innan liðsins, verður vonandi Val innan handar í framtíðinni sem þjálfari eða einhvað annað. |
|
... Fer ekki að styttast í upphitunina fyrir kr leikinn? Mér finnst sá klúbbur eiga skilið amk 3 daga upphitun með veglegum pistlum. Af nógu er að taka af skítnum þar |
|
... Bæði ég og Valli erum staddir utan Elliðaáa svo það gefst lítill tími í skrif. Ef einhver vill hnoða saman í pistil og birta má senda mér póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. |
|
... Geiri: Var Viktor ekki búinn að snoða sig? Hann er kannski búinn að fatta að einbeita sér að fótbolta en ekki djamminu og gelinu. Flott hjá honum. |