• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Köttarar fláðir
Laugardagur, 20. september 2008 16:41
Betra er seint en aldrei og hér eru nokkur orð um Þróttara leikinn á fimmtudaginn.

Enn eitt haustveðrið tók á móti þeim fáu áhorfendum sem lögðu leið sína á Vodafonevöllinn á Hlíðarenda þegar Valur og Þróttur mættust. Fyrri hálfleikur var með daufasta móti og hvorugt lið neitt sérstaklega kappsamt. Valsmenn voru þó ívið sterkari án þess að ógna Þrótturum neitt að ráði. "Fer ekki að koma kaffi?" heyrðist gasprað í stúkunni en þegar litið var á vallarklukkuna voru ekki nema tæpar 20 mínútur búnar.

Það sem eftir lifði hálfleiks var af sama toga en brúinin lyftist þó á ýmsum þegar tilkynnt var í hátalarakerfinu að hálfleikssamsætið færi fram í Lollastúku. "Nú dýrari týpan!" hugsuðu almennir ársmiðahafar og ekki laust við að menn væru farnir að hlakka til bakkelsisins í VIP-boxinu. 

Hálfleikskaffið reyndist hins vegar hin mestu vonbrigði þegar til kom. Eina sem boðið var upp á voru tíu dropar og slakar kleinur en engar voru kökurnar, vínarbrauðin eða snúðarnir hvað þá kokteilar og pinnamatur. Við það bættist að ekki var þverfótandi fyrir Þrótturum sem tróðu sér í skjól innan um ársmiðahafa þegar þeir hefðu verið best geymdir í röð í sjoppunni.

Já hrokinn er fljótur að kvikna í manni þegar maður fær nasasjónina af hinu ljúfa lífi sem very-important-person. Jón Ólafsson Þróttari skaut frá sér aulabröndurum í allar áttir og Dóri Henson átti ekki í vandræðum með að koma upp brosi.  Óttar Felix hélt kúlinu og lét sér fátt um finnast.

Seinni hálfleikur byrjaði rólega en loks hrukku Valsmenn í gang eftir fimm mínútna leik. Guðmundur Steinn Hafsteinsson skoraði sitt fyrsta mark og stuttu síðar kom Helgi Sig Val í 2-0. Þróttarar slegnir út af laginu og Valsmenn gátu farið í sitt hefðbundna leikkerfi, þ.e. pakka í vörn og leyfa andstæðingunum að sprikla með boltann.  Þessi aðferð virkar oft ágætlega gegn minni spámönnum deildarinnar og þá sérstaklega þegar liðið kemst yfir.

Kallkerfiskauðinn á Hlíðarenda sá sig knúinn til að hnýta í áhorfendur sem lögðu á sig að mæta og fór að biðja um meir hvatningu en hlaut litlar undirtektir. Svona lagað virkar yfirleitt kjánalega og á í besta falli heima á yngriflokkamóti í handbolta.

Þróttarar eru með takmarkaðan mannskap sem hugsar fyrst og fremst um að berjast og stoppa andstæðinginn frá því að spila. Það hentar því Þrótti einstaklega illa að spila á móti liði eins og Val þar sem okkar menn hafa ákaflega lítinn áhuga á að halda boltanum en spila aftur á móti sterkan varnarleik. 

Talsverðir pústarar voru í leiknum og stundum var hálf erfitt að botna í þeim. Gestirnir voru oft pirraðir á Sigurbirni Hreiðarssyni sem átti góðan leik og lék sér að því að stöðva hugmyndalausan sóknarleik þeirra. Þróttarar leita mikið að Sigmundi Kristjánssyni en Bjössi átti ekki í vandræðum með að láta KR-inginn fyrrverandi líta illa út. 

Undir lok leiksins ætlaði allt um koll að keyra. Dómari leiksins, Magnús Þórisson, sem hafði vægast sagt átt hörmulegan dag missti alla stjórn á leikmönnum og litlu mátti muna að Bjarki Guðmundsson trúður Þróttar hefði lúbarið hann undir lokin. Þrátt fyrir fáráðlings háttinn í Bjarka uppskar hann einungis gult spjald og það var ekki fyrr en eftir leik að hann hlaut verðskuldað rautt spjald.

Lætin í hinum keflvíska trúð héldu áfram eftir að komið var í búningsklefa. Strunsaði hann meðal annars aftur fram á gang þegar hann frétti af réttmætri brottvísun sinni og virtist hreinlega ætla að lúskra á Magnúsi Þórissyni, sem er einmitt ættaður úr Sandgerði. Hvort þarna hafi verið um einhverjar fornar sakir milli Magnúsar og Bjarka skal ósagt látið en æsingurinn í þeim síðarnefnda var í það minnsta út úr öllu korti.

Hvað varðar Magnús þá hafði hann sig að fífli í dómarabúningnum í annað sinn í sumar á Hlíðarenda. Augljósar vítaspyrnur á bæði lið voru látnar eiga sig og rauða spjaldið á Rasmus Hansen hefði auðveldlega verið hægt að forðast ef Magnús hefði dæmt eins og vitiborinn maður á brot Þróttara stuttu áður. Tæklingin hjá Rasmus var að sama skapi glórulaus. Öruggt er þó að KSÍ mun ekki taka á þessari aulaframmistöðu fremur en öðrum hjá íslenskri dómarastétt í sumar. Það er þó ekki að furða að íslenskir dómarar séu margir hverjir á lágu plani þegar Kristinn Jakobsson er notaður sem viðmiðun fyrir afburðardómara hér á landi. 

Þrjú mikilvæg stig í baráttunni um UEFA sæti á næsta ári eru niðurstaðan úr leiknum. Enn er möguleiki á að ná FH en það yrði ágætis sárabót eftir brösótt sumar. Aðalatriðið er að ná í farmiðann til Evrópu úr því sem komið er en ljónin tvö sem sitja í veginum fyrir honum eru erkifjendur okkar í Fram og KR. Það verða því spennandi viðureignir á lokasprettinum þó engin sé titilbaráttan í ár. Willum fellur vonandi ekki í þá grunnu gröf að ætla sér að verja einhver sæti líkt og í lokaumferðunum 2005 og 2006. Það þarf að SÆKJA þessi sex stig sem eftir eru.

Digg    Facebook   
Besservisserar (13)add comment

jonsig said:

...
Sælir

Varðandi meint brot hjá Halldóri á Guðmundi .. Ástæðan fyrir því að dæmt er á Guðmund er sú að Halldór fer fyrstur upp í boltann en Guðmundur keyrir undir hann sem verður til þess að Halldor missir jafnvægið í loftinu .. Til þess að reyna að ná jafnvæginu aftur fara hendurnar ósjálfrátt út með þeim afleiðingum að Guðmundur fær þær í andlitið .. Þess vegna var dæmt á Guðmund, en hitt var svo bara pjura óheppni sem skapaðist á þvi sem undan var gengið .. Þakka ykkur völsurum fyrir leikinn og óska ykkur heilla á móti KR næstu helgi ..

kv
jonsig
10:52 | 22 september | 2008

doddi said:

...
Sælir,

Ég vil nú taka undir með síðasta manni. Ég man ekki eftir að Halldór hafi farið í slæma tæklingu í sumar og menn ættu að fara varlega að ætla honum einhverja fólsku í þessu skallaeinvígi sínu. Vissulega fór hann með olnbogann í andlit mótherjans en ég sá ekki betur en að hann hefði misst jafnvægið í einvíginu og þá slengt út höndunum. Viðurkenni það fúslega að ég er ekki hlutlaus en svona sá ég þetta. Annars góður baráttuleikur hjá mínum mönnum og sanngjarn sigur!
11:16 | 22 september | 2008

Ási Sveinss said:

...
Hei Villimenn!!! Veit ekki betur en að það séi rautt spjald! Ekki reyna að afsaka þetta því að þessi maður á ekki heima á fótboltavelli frekar en Tyson! Verð að ávíta þig Tryggvi fyrir að minnast ekki á leikræna tilburði Joseph Tillen trekk í trekk í leiknum. Veit ekki betur en að uppsöfnuð brot hjá honum hefði nú dugað í nokkur rauð, hvað þá þegar að hann slær í Steinþór.

Framarar eru villimenn og það verður fínt að losna við þá út í sveit þar sem að þeir geta rotað hvorn annann!!!!!
13:13 | 22 september | 2008

jr said:

...
Aðal vandamál Valsara í sumar er það sem þessi ,,Asi Sveinss" lýsir svo vel !

Valsarar eru ekki að gera neitt inni á vellinum , en þeir hatast í andstæðingunum á svona spjallrásum !

Það er inni á vellinum sem þú verður að sýna andstæðingunum hvað þú getur, þá verða úrslitin þér í hag !

Það var það sem betra liði gerði í þessum leik !
15:01 | 22 september | 2008

Fannar said:

...
Asi Sveinss
losna við þá út í sveit

þessi sveit er frammtíð Rvk-ur. í þessa átt mun rvk stækka.
og þá Fjölgar villimönnunum svo þú skalt fara passa þig smilies/smiley.gif hehe..
15:58 | 22 september | 2008

Ási Sveinss said:

...
Ég passa mig =)
16:26 | 22 september | 2008

Doddi said:

...
Óskaplega er það nú aumt að mega ekki tjá sig öðruvísi en að vera kallaður villimaður. Ég vona að stemningin sé betri á Hlíðarenda heldur en hjá þér Ási!
17:20 | 22 september | 2008

Ási Sveinss said:

...
Kallinn minn, þú ert að afsaka það að númer 16 hjá fram tók Steina gersamlega úr umferð! Einn í andlitið og sendi Steina upp á spítala...
17:24 | 22 september | 2008

jonsig said:

...
Asi minn þú þarf að gera greinarmun á því sem er viljandi gert og því sem gerist óviljandi .. Það var ekki leikmanni nr 16 að kenna að Valsar komu illa stemmdir í þennan leik, það var ekki honum að kenna að Helgi Sig meiddist í upphafi móts né að Valur hefur verið að spila undir getu í sumar .. Óhöpp gerast því miður i þessari íþrótt og Þeir sem taka þátt í henni vita að þetta getur alltaf gerst .. Þýðir ekkert að sitja og grenja yfir því Guðmundur kemur bara sterkari til baka enda eru þetta sem betur fer ekki meiðsl sem geta haft varanaleg áhrif á getu hans sem fótboltamanns eins og td krossbönd, háisn osfrv ..
21:18 | 22 september | 2008

Tryggvi said:

...
Eftir að hafa séð þetta olnbogaskot aftur má segja að þarna sé tæplega um viljaverk að ræða líkt og gerðist hjá einum Framara gegn FH á dögunum. Þegar menn hoppa upp með olnbogann í skalla bolta er samt alltaf viss hætta á ferðum en þetta er eins og með svo mörg vafaatriði á tímabilinu, stundum er flautað og stundum ekki. Það eina sem má bóka er að það er ekki nokkuð samræmi milli dómara eða hvað þá hjá þeim sjálfum. Framarar voru fastari fyrir en Valsarar og tóku því þessi þrjú stig nokkuð sanngjarnt þó okkar menn hefðu vel getað stolið stigi.

ps. Spurning til Framara; hvað er orðið um ykkar ágæta spjallborð?
22:52 | 22 september | 2008 | url

Fannar said:

...
Sæll Tryggvi
gaman að þú skyldir spyrja um Spjallborð okkar Framara.
það er verið að setja upp nýja heimasíðu og spjallborðið virkaði bara ekki með henni, svo það er verið að setja upp nýtt spjallborð.
og vonandi að það komi inn sem fyrst.
01:12 | 23 september | 2008

Ási Sveinss said:

...
Kenni ekki neinum nema leikmönnunum um slæmt gengi...
01:29 | 23 september | 2008

Halli said:

...
eru menn að missa sig !!!!!!!!!!

Það eru ekki til heiðalegri leikmenn en hann Halldór Hermann Jónsson á þessu landi... Þetta var fyrsta gula spjaldið hans í sumar og þú Ási Sveins kallar hann villimann og hann eigi ekki heima á fótboltavelli ???? Held að Valsarar eigi að taka baráttu hans til fyrirmyndar, alltaf tilbúinn að fórna sér fyrir liðið, einu mennirnir sem "reyna það" hjá VAL eru Bjarni Ólafur og Sigurbjörn Hreiðars.
Vandamál Vals er framherja- og markmannshallæri.
Vonandi taka þeir þessa KR-inga á laugardaginn.

Áfram VALUR ...!!!!!!!
22:51 | 25 september | 2008

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Mánudagur, 22. september 2008 09:17