• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Korter í mót
Höfundur: Tryggvi   
Laugardagur, 10. maí 2008 12:59
Það er ekki seinna vænna fyrir Valsara að ríða á vaðið þetta árið. Íslandsmótið handan við hornið þar sem við höfum titil að verja í fyrsta sinn í 20 ár. Árið 1988 urðu Framarar hlutskarpastir þegar þeir settu stigamet í efstudeild sem aðeins Akurnesingum tókst að jafna en engum að bæta. Með fjölgun liða í efstudeild er ljóst að það met mun standa um ókomin ár líkt og met Vals frá 1978 þegar liðið vann 17 leiki og gerði eitt jafntefli.  

Það er því töluvert ólíkara landslagið sem bíður okkar þetta sumarið heldur en gerði við síðustu titilvörn. Skagamenn þykja líklegir til afreka í sumar enda með margreynda landsliðsmenn innanborðs í bland við marga af efnilegustu leikmönnum landsins að ógleymdum sjálfum Gaua Kóng í brúnni.  

Framarar hins vegar hafa lítið haft sig frammi á 100 ára afmæli sínu fyrir utan að flytja starfsemi sína langt út fyrir þau mörk sem talist geta til Reykjavíkur. Það er viss eftirsjá að horfa á eftir nágrönnum okkar úr Safamýri og Austurbæ til næstum 100 ára. Gera má ráð fyrir að þeir sigli lygnan sjó um miðja deild og vonist eftir að bikarævintýri hleypi smá lífi í afmælisárið. Þeir bláu þykjast sjá meiri uppgangsmöguleika fyrir félagið í Grafarholtinu en menn hljóta að spyrja sig hvers vegna þeir fluttu sig aldrei í Laugardalinn sem Þróttarar hafa lagt undir sig.  Það er mikið framfaraspor hjá Þrótti að flytja sig af Laugardalsvallar-ógeðinu og yfir á Valbjarnarvöll sem er mun áhorfendavænni fyrir íslenska deildarleiki en minnisvarði Eggerts Magnússonar. Þróttarar hafa reynt að fara þetta á gleðinni þegar þeir hafa heimsótt efstudeildina en hingað til hefur það ekki verið nóg til að halda þeim meðal hinna bestu. Hópurinn í ár lofar þó góðu og verða Þróttarar líklega erfiðari viðureignar en margir kynnu að halda. 

Hinir nýliðarnir í Fjölni og Grindavík geta varla talist líklegir til afreka. Grindvíkingar eru enn minnugir þess að fyrir fáeinum árum var þeim spáð Íslandsmeistaratitli af foráðamönnum félaganna og þeim er eflaust mikið í mun að halda sér á meðal þeirra bestu á nýjan leik. 

Fjölnir kom vissulega á óvart í fyrra með því að komast í bikarúrslitin en þeir gætu þurft að glíma við “grænjaxla-heilkennið” sem einkennir mörg félög sem komast í efstudeild í fyrsta sinn. 

Það heilkenni þekkja Fylkismenn líklega manna best enda þurfti félagið fjórar tilraunir til að festa sig í sessi sem úrvalsdeildarlið.  Fylkir hefur bætt við sig fjölda sterkra leikmanna síðustu tímabil en samt virðast hlutirnir ekki vera að smella saman hjá Leifi Garðarssyni. Í raun var Leifur stálheppinn að falla ekki á sínu fyrsta tímabili með félagið en honum tókst síðan að rífa það upp í miðja deild í fyrra. Í ár hljóta kröfurnar að vera meiri í Árbænum þó fáir virðist búast við þeim í alvarlega toppbaráttu. 

Í Kópavogi má finna tvö krúttleg félög. HK menn uppnefna sjálfa sig “Stórveldið” og leikmenn liðsins hafa haldið því fram að hjartað skipi stóran sess í leik liðsins. Hversu mikið er að marka þetta tvennt er álitamál. 

Í hinum hluta bæjarins eru svo hinir bikarlausu Blikar. Kvennaknattspyrnan hefur löngum verið helsti styrkur þeirra og ef þeir titlar eru taldir þá má halda því fram að hér sé um að ræða eitt af sigursælustu knattspyrnufélögum landsins. Hingað til hefur það þó verið vandamál fyrir Breiðablik að fá aðra til að taka sig alvarlega. Kannski fer það að breytast.

Liðin sem flest allir reikna með í toppbaráttuna ásamt okkur Valsmönnum eru augljóslega FH og KR. 

Fjandvinir okkar úr Vesturbænum fór á enn eitt eyðslufylleríið fyrir þetta tímabilið en peningarnir sem farið hafa í vonlausa leikmenn vestur frá síðustu árin hefðu getað farið langleiðina með að leysa vandamál Þriðja heimsins. Hvað um það, knattspyrnan hefur sinn forgang og fyrir þetta tímabil punguðu KR-ingar út fáheyrðum upphæðum fyrir þá Jónas Guðna Sævarsson úr Keflavík og Guðjón Baldvinsson úr Stjörnunni. 

Vera kann að menn hafi toppað félagskiptagjald Helga Sigurðssonar með þessum kaupum en í Frostaskjóli eru menn sérstaklega viðkvæmir fyrir allri umræðu peningastimpilinn. Ekki má heldur gleyma fyrrum Valsmanninum Grétari Sigfinni Sigurðssyni sem snéri aftur til uppeldisstöðvanna en hann þarf að sanna sig á nýjan leik eftir dapurt tímabil með Víking á síðasta ári. 

FH-ingar hafa ekki gert sömu stórkaup og síðustu ár. Höskuldur Eiríksson kom úr Víking en félagið sleppti gullnu tækifæri til að fá Barry Smith til liðs við sig fyrr á þessu ári, miðað við fréttir á fótbolta.net. Heimir Guðjónsson er í fyrsta sinn við stjórnvölin og tekur við liði sem er við það að ganga í gegnum breytingaskeið. Helstu máttarstólpar liðsins eru við það að komast á aldur en ungir og efnilegir leikmenn bíða ólmir eftir stóra tækifærinu. Annað hvort er þetta tilvalin blanda til að halda bæði ungnum og öldnum við efnið eða þá að hjólin gætu komið undan FH maskínunni sem á tímabili virtist ætla að verða óstöðvandi. 

Loks eru það gestgjafar okkar í fyrstu umferðinni, Keflvíkingar. Suðurnesjamenn hafa oft á tíðum verið í ógnar góðu formi í fyrstu leikjum mótsins en síðan hefur oftar en ekki fjarað undan þeim. Á síðasta tímabili hrundi botninn hreinlega úr liðinu eftir leikinn sögufræga á Akranesi en fram að því voru þeir í bullandi toppbaráttu. Liðið hefur misst máttarstólpanna af miðjunni og hafa farið sér engu óðslega á leikmannamarkaðnum. Líkt og Framarar þá eru Keflvíkingar líklegir til að svamla um miðja deild í rólegheitunum en lendi liðið í erfiðri byrjun gæti framhaldið orðið óþægilegt. 

Fyrir okkur Valsmenn er spennandi tímabil sem bíður. Liðið er ógnarsterkt á pappírnum og breiddin, sérstaklega í öftustu línu, er sú besta sem völ er á. Steinþór Gíslason snýr aftur og Bjarni Ólafur er nú með okkur frá byrjun. Einnig er virkilega gaman að sjá Albert Ingason ganga til liðs við félagið og vonandi að hann geti gert eitthvað í líkingu við það sem aðrir fjölskyldumeðlimir hafa gert fyrir Val. Það er mjög dapurt að missa Dennis Bo í meiðsli en ef Helgi Sigurðsson verður álíka beittur og í fyrra er að litlu að kvíða.

Digg    Facebook   
Besservisserar (8)add comment

Guðmundur H Ármannsson said:

...
Síðan er flott hjá ykkur,til hamingju Valsarar.Ég reyni að fylkjat með ykkur í sumar,ég er búinn að fylkjast lengi með ykkur eða síðan Sigurður Dagsson var hjá ykkur í markinu,hann var sá besti að mínu mati sem hefur staðið í marki.
14:35 | 10 maí | 2008

palli said:

...
Ekkert skrifað um leikinn við Keflavík?
11:17 | 11 maí | 2008

blabla said:

...
þið eruð fifl
11:44 | 11 maí | 2008

Gísli said:

...
Ég tek undir með Palla, en það er auðvitað skiljanlegt, menn eru í sárum og skilja ekki hvernig þetta gat gerst, að tapa fyrir liði sem nánast dæmt til að vera í botnbaráttu.
11:45 | 11 maí | 2008

Bjarni said:

...
Langar að fá umfjöllun um leikinn í Keflavík smilies/smiley.gif

Hvernig var þetta með kókflöskuna og svona, áfram með þessa "flottu" síðu smilies/cheesy.gif
12:40 | 11 maí | 2008

Kefari said:

...
"Tapa fyrir liði sem nánast dæmt til að vera í botnbaráttu" Sorry vinur en ef við flengjum ykkur með FIMM mörkum gegn þremur ættuð þið þá ekki að vera í botnbaráttu..? Nei ég bara smyr...
12:46 | 11 maí | 2008

Ásgeir B said:

...
Flottsíða hjá ykkur Valsarar . Leiðinlegt að þið skylduð tapa fyrir Kef sá hluta af leiknum og gat ekki séð að Kef eigi eftir að verða í neðrihlutanum sýndist þeir vera með ágætis lið.Vona að ykkur eigi eftir að ganga vel sérstaklega þar sem að það eru tveir Víkingar í liðinu Danni og Helgi.
13:44 | 11 maí | 2008

bleble said:

...
blabla hittir naglann á höfuðið.
14:10 | 11 maí | 2008

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 11. ágúst 2009 09:23