Valur stillti upp sama liði og á móti Fjölni nema að Rasmus Hansen var í byrjunarliðinu fyrir Baldur Bett sem var í banni. Leikurinn var í járnum framan af og mjög opin heilt yfir. HK-ingar sýndu oft lipurt spil fram á við en gekk illa að komast í afgerandi færi. Allt annað var uppá teningnum hjá Valsmönnum. Þar var lítið um stutt spil en betur gekk þó að komast í færi. Helgi átti góðan skalla eftir 10 mínútna leik sem Gunnleifur varði vel.
Hann kom þó ekki veg fyrir mark Birkis skömmu síðar. Eftir pressu Valsmanna var Birkir Már á undan Gunnleifi í boltann og tókst að koma honum yfir línuna. Eftir þetta sóttu heimamenn heldur meira en sem fyrr skilaði fínt spil sér ekki í neinum alvöru færum. Valsmenn áttu svo síðustu spretti hálfleiksins. Pálmi Rafn átti skot rétt framhjá eftir ágætis skyndisókn og seinna átti hann skalla sem Gunnleifur varði mjög vel.
Leikurinn var áfram í járnum í seinni hálfleik og lítið var um færi framan af. Valsmenn höfðu þó ástæðu til að kætast á 50.mínútu þegar Baldur Ingimar Aðalsteinsson kom inná. Baldur alltaf í uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Vals og var honum vel fagnað. Verra var hins vegar að Birkir Már fór meiddur af velli.
Inná vellinum héngu Valsmenn á forskotinu þar til 20 mínútur voru eftir en þá jafnaði HK eftir horn. Eftir þetta færðist hasar í leikinn. Iddi Alkhag skoraði nokkrum mínútum síðar og kom heimamönnum yfir þegar hann var á undan Kjartani í boltann og skoraði í autt markið. Helgi Sigurðsson náði svo að jafna úr víti mínútu síðar og vonir um sigur kviknuðu á nýjan leik. Þær voru hins vegar kæfðar strax með tveimur mörkum frá Iddi á lokamínútunum þar sem Valsmenn sýndu slæman varnarleik. 4-2 tap staðreynd og til að gera vont verra þurfti Baldur Ingimar að fara meiddur af velli undir lok leiksins.
Nú þegar fimm umferðir eru liðnar af móti er ljóst að það er margt sem þarf að laga. Spilið er ekki nógu gott og þá vantar sérstaklega uppá stutta spilið. Menn virðast hreinlega vera ragir við að halda boltanum og í ofanálag eru sendingarnar margar ónákvæmar sem setja viðtakendurnar í bobba. Þetta er að valda miklum vandræðum þegar varnarmennirnir eru að taka oft á tíðum á móti erfiðum sendingum og enda svo með að kýla boltann framá við.
Með þessari leikaðferð bætist enn meiri pressa á vörnina sem á fyrir í alveg nógu miklum erfiðleikum. Tólf mörk í fimm í leikjum er ekki að gera sig og þar af eru ellefu á útivelli. Það má ekki horfa framhjá því að allir leikmenn þurfa að taka þátt í varnarleiknum og þurfa því að allir að taka sig á. Hvað sem því líður er þetta skrýtin sjón að horfa á vörnina okkar, sem hefur verið svo sterk undanfarin ár, vera á köflum úti á þekju.
Framundan er erfiður leikur á móti Blikum á heimavelli og nú er bara að stefna á að halda fullkomnum heimavallarárangri og gera Vodafonevöllinn að þeirri gryfju sem hann á að vera. Meira um það síðar.