• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Köflótt í 2bænum
Þriðjudagur, 20. maí 2008 03:43
Valsmenn voru mættir Árbæinn í gær í leit að fyrsta útisigrinum.  Áður hafði tapast leikur í Keflavík en sigurleikur á móti Grindavík og slæmt gengi Fylkismanna gaf mönnum vonir um góðan leik Valsmanna.  Það rættist að hluta þar sem Hlíðarendapiltar áttu megnið af fyrri hálfleik og upphafið af seinni hálfleik en Fylkismenn tóku svo öll völd eftir það.  Það fór svo að lokum að heimamenn unnu 2-0 sigur í leik þar sem okkar menn voru æði misjafnir.
  

 

 

Gummi Ben var frá vegna meiðsla en það háði Valsmönnum lítið til að byrja með.  Þeir voru mjög ferskir í upphafi, hlupu mikið og Fylkir gat lítið annað gert en að liggja aftarlega.  Helgi og Pálmi voru nokkuð ógnandi og báðir voru nálægt því að skora.  Pálmi átti þrumuskot úr aukaspyrnu rétt framhjá og Helgi var hársbreidd frá því að pota boltanum yfir línuna eftir fyrirgjöf.  Eins og áður segir voru Valsmenn betri en vantaði þó uppá að komast í opin marktækifæri.  Meiri stuðning hefði þurft frá miðjumönnum til að rugla þétta Fylkisvörnina sem fóru svo að færa sig uppá skaftið þegar líða tók á hálfleikinn.  Þá fóru að koma í ljós ákveðnir veikleikar á vörn okkar manna.  Stungusendingar Fylkismanna fóru að rata í gegnum flata vörnina og ein svoleiðis gaf af sér dauðafæri sem Kjartan bjargaði vel.  Fylkir tók svo forustuna eftir hálftímaleik.  Þar var að verki Halldór Hilmisson en markið kom eftir pressu þar sem Baldur Bett náði ekki að hreinsa almennilega.  Eftir þetta fjaraði fyrir hálfleikur út.

 

 

 

Valsmenn gerðu breytingu í hléi og settu Albert Ingason inn fyrir Gunnar Einarsson og Bjarni var settur í vörnina.  Þetta byrjaði vel og menn voru mjög aktívir til að byrja með.  En eins og í fyrri hálfleik fjaraði þessi kafli út án þess að Valsmenn náðu að skapa almennileg færi.  Fylkir fór svo smá saman að taka völdin.  Skyndilega var sem engin barátta væri eftir í okkar mönnum og menn náðu ekki einu sinni að hreinsa almennilega frá sínu eigin marki.  Trekk í trekk unnu Fylkismenn boltann aftur eftir klúður aftarlega þannig má segja að vítið hafi komið til.  Það nýttu heimamenn og staðan 2-0, og leikurinn búinn.

 

 

 

Heilt yfir var meira vont við leikinn í gær en gott.  Vörnin, sem hefur verið okkar sterkasti hlekkur síðustu ár, er skyndilega orðinn veikasti hlekkurinn.  Hvað veldur er erfitt að segja.  Auðvelt er að benda á að Barry Smith vanti en samt er erfitt að ætla að einn maður geti skipt svona miklu máli.  Annað sem skiptir máli er að Rene Carlsen er langt frá sínu besta enn sem komið er.  Hann virkar þungur og heilt yfir mistækur.  Það er mikið áhyggjuefni því hann var frábær síðasta tímabil en er ekki samur núna.  Tímabilið er þó ungt og hann á eftir að vinna á eins og í fyrra, og eins og liðið í heild.

 

 

 

Það jákvæða við þetta allt saman er tímabilið er langt og Valsmenn hafa þau úrræði til á Hlíðarenda sem þarf til að snúa þessu blaði við.  Á sunnudaginn gefst frábært tækifæri til að byrja, því þá verður Vodafonevöllurinn vígður og svo leikur á móti Fjölni.  Þetta er eitthvað sem allir hafa beðið eftir og frábært tækifæri til að þjappa mönnum saman.  Meira um það síðar.

 

 

 

Digg    Facebook   
Besservisserar (3)add comment

Fótboltaáhugamaður said:

...
Hvort er svín og hvort er perlur.
16:24 | 21 maí | 2008

Johnny B said:

...
Hvað kemur helvítis United eða Höddi Magg við aðdáendasíðu um Knattspyrnufélagið Val
20:30 | 22 maí | 2008

Smári Vals said:

...
Nákvæmlega, þessi pæling á ekki heima á síðu sem þessari. Batnandi mönnum er best að lifa og vonandi verði ritstjórn markvissari með tíð og tíma.
10:46 | 26 maí | 2008

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 20. maí 2008 06:51