|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Köflótt |
| Höfundur: Ásgeir Tryggvason | ||
| Mánudagur, 14. september 2009 18:27 | ||
|
Valsarar voru mættir á Hlíðarenda í gær til að horfa á sína menn taka á móti Stjörnumönnum. Kjartan var sem fyrr í markinu en í vörninni voru Atli og Reynir og Einar Marteinsson og Baldur Ingimar sáu um bakvarðarstöðurnar að þessu sinni. Á miðjunni voru Bett og Sigurbjörn og vængjunum voru Matti og Markan. Frammi var Helgi Sig og Arnar Geirsson. Formúlu 1 keppnin á Ítalíu og snókermót í Sjænghæ töfðu mig nægilega mikið þannig að fyrsta markið fór framhjá mér. Ég hef líklega verið á leiðinni upp tröppurnar og inní salinn þegar markið kom. Staðan 1-0 núll fyrir Stjörnunni eftir þrjár mínútur. Eftir þetta var eins gott að fylgjast vel með því ómögulegt var að reiða sig á batteríið sem á að telja mörkin þarna því það skiptir ansi oft um skoðun. Hvað um það. Valsmenn voru nú búnir að bretta upp olnbogana og setja í gír. Helgi Sig jafnaði með góðum skalla eftir níu mínútur og sóknarmenn Vals áttu satt að segja frekar auðvelt um vik þarna. Arnar Geirsson var mjög hættulegur og komst inní sendingu tilbaka á Stjörnumarkmanninn. Hann lék á markmanninn en skotið fór hins vegar framhjá. Arnar var ekki lengi að bæta upp fyrir þetta og skoraði gott mark. Hans fyrsta mark fyrir Val og eitthvað sem hann hefur beðið eftir síðan hann var fimm ára. 2-1 fyrir Val í hálfleik og Valsmenn klárlega skárri aðilinn í leik sem skipti litlu sem engu máli. Ég setti fram spá við vin minn í hléinu að þetta liti út fyrir að vera leikur þar sem Markan yrði skipt útaf á 59. mínútu. Hann kinkaði kolli. Nánar að því síðar. Í hálfleik fór kallinn að fá sér kaffi. Eitthvað hefur bruggunin klikkað því að ekkert kaffi var til. Það var beðið í nokkrar mínútur og þá kom kaffið og gerði alla glaða. Samt verður þetta að teljast frekar mikil afturför að vera ekki með kaffið á hreinu í hléi, sérstaklega þegar litið er til þess að ársmiðakaffið er ekki lengur til staðar. Já, menn sakna ársmiðakaffisins. Seinni hálfleikur. Valsmenn yfir, Markan, Matti og Arnar með góð hlaup reglulega. Spilið hins vegar fór minnkandi. Stjörnumenn voru alltaf að verða hættulegri og hættulegri en lánleysi virtist ætla verða þeirra banabiti þarna. Reglulega voru þeir í sjensum sem áttu að geta gefið eitthvað en ýmist gáfu menn þegar þeir áttu að skjóta, skutu þegar þeir áttu að gefa hann eða gerðu hvorugt. Á fimm mínútna kafla fékk Stjarnan þrjár aukaspyrnur við teig Valsmanna en þær voru hverri annarri lélegri. Skyndilega var Bjarni Jó farinn að sjást koma úr skýlinu að hliðarlínunni og Kiddi Lá Kiddi Lei kom stundum með honum. Bjarni Jó var með skilaboð. Ein voru á þessa leið: ,,Hættið þessu djöfulsins rugli og farið að gera þetta eins og menn.” Eðlileg skilaboð kannski þegar þriðja aukaspyrnan í röð fer í rugl. Hinum megin var Atli breyta liðinu. Hann tók Markan útaf og setti Viktor inná. Merkilega nokk þá gerðist þetta á 59. mínútu. Ansi nett, ætli það sé hægt að veðja á svona lagað á Betson? En nóg um þetta. Allt í einu fóru hlutirnir að detta með Stjörnunni. Tvö mörk á smátíma og þeir voru búnir að...jafna? Nei komnir yfir. 2-3 fyrir þá og hvernig átti Valur að snúa þessu við? Það var ekki auðvelt að sjá það þarna. Marel kom inná af bekknum og Guðmundur Steinn líka og þeir reyndu að fríska uppá þetta en það var ekki margt í spilunum. Þá gerðist dáldið merkilegt. Dómarinn dæmdi víti á Stjörnuna. Varnarmaður var dæmdur sekur um að hafa togað í treyju Marels í teignum. Stjörnuaðdáendur urðu illir þarna og Bjarni Jó var ekki glaður heldur, loksins komið líf í þetta. Sigurbjörn tók vítið og skoraði af öryggi, staðan 3-3. Þegar lokaflautið kom þá var ljóst að liðin þurftu að sætta sig við skiptan hlut og að eitt stig dytti dautt niður. Stjörnumenn voru svekktari en Valsmenn með úrslitin og virtist það hafa eitthvað að gera með vítadóminn. Sæmilegur dómari leiksins þurfti meira að segja “lögreglufylgd” af vellinum. En þetta var nú samt allt saklaust þannig séð. Manni varð þó hugsað til auglýsingarherferðar KSÍ útaf dómurum í sumar. Hvernig var þetta: “Sýnum tillitssemi, við höfum öll ólíku hlutverki að gegna.” Einhvern veginn svona minnir mig. Satt og rétt en hver þörfin var á að setja svona auglýsingar í gang veit ég ekki. Eins skil ég ekki þetta gæslulið utan um dómarana eftir leiki. Ágætt af öryggið á oddinum en samt, man ekki eftir því að einhver hafi ráðist á dómara hérlendis eftir leik. Þetta eru kannski einhverjar FIFA reglur, hver veit? Aftur að leiknum. 3-3 jafntefli og ætli það hafi ekki verið sanngjörn úrslit. Arnar Geirsson fær maður leiksins dæmið frá mér. Hann var mjög sprækur, hreyfanlegur og hættulegur. Í þessu hundgamla Valsliði er ljóst að hann er einn af björtustu punktunum núna og í framtíðinni. Annað sem er ljóst að Valsliðið þarf fleiri bakverði. Í gær var Bjarni í banni. Þá liggur auðvitað beinast við að setja Baldur Ingimar í vinstri bakvörðinn! Einmitt. Hinum megin fékk Einar Marteinsson að spreyta sig. Hann er jú varnarmaður og getur spilað bakvörð. En hann var þarna bara útaf því að Ian Jeffs, sóknartengiliðurinn, er í banni! Þetta er í það minnsta mjög vandræðalegt og Steinþórs Gíslasonar er sárt saknað. Nú eru bara tveir leikir eftir af tímabilinu hjá Val og það sem betur fer. Menn eru strax farnir að einbeita sér og undirbúa næsta tímabil og er það vel. Á dögunum varð það ljóst varnarhetjan Gunnlaugur Jónsson er arftaki Atla Eðvaldssonar og ekkert nema gott um það að segja. Gunnlaugur búinn að gera merkilega hluti með Selfossliðið í sumar á sínu fyrsta tímabili og á örugglega eftir að standa sig ágætlega í djúpri Pepsilauginni. Í þjálfarateymið kemur líka Jim Bett og það verður spennandi að fylgjast með störfum þess mikla meistara á komandi tímabilum. En fyrst þarf að klára leiki á móti liðum sem heita FH og KR. Meira um það síðar. Besservisserar (1)
![]()
Gunni
said:
|
|
... Skemmtileg saga hjá þér, en þetta vorum mjög sanngjörn úrslit fyrir bæði lið. Ég held að boltinn hafi aldrei farið inn hjá Stjörnunni þarna á 3 minútu en við fengum þó víti sem að mér sýndist að ekki hafa verið brot þó svo að smá peysutog inn í teig. Hefði verið skemmtilegra að vinna eftir 3-0 tap á móti þeim fyrr í sumar |