• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Jafntefli í skemmtilegum leik
Sunnudagur, 20. júlí 2008 00:00
Íslandsmeistarar Vals og topplið deildarinnar skildu jöfn 1-1 á Hlíðarenda í gær í fjörugum leik. Leikurinn var kveðjuleikur Pálma Rafns og Henrik Eggerts lék sinn fyrsta leik. Valsmenn byrjuðu með Einar Marteinsson í hægri bakverðinum sem fékk það hlutskipti að fylla skarð Birkis.  Atli Sveinn fékk fyrsta færið í leiknum þegar hann átti gott skot frá hægra horni markteigsins. Markvörður Keflvíkinga náði að verja boltann í horn. 
Litlu síðar fengu gestirnir víti þegar Barry Smith var dæmdur brotlegur í teignum en besti markvörður deildarinnar gerði sér þó lítið fyrir og varði spyrnuna léttilega og sluppu Valsmenn þar fyrir horn.
Eftir þetta áttu Sigurbjörn Hreiðars og Pálmi góð skot sem voru naumlega varin og Valsmenn virtust vera að taka völdin þarna. En þá bitu Keflvíkingar frá sér og Hólmar Örn skoraði fallegt mark þegar hann setti boltann yfir Kjartan Sturlu í fjærhornið. Markið sló Valsmenn útaf laginu og á eftir fylgdu erfiðir tímar. Keflvíkingar áttu nokkrar góðar sóknir og hefðu hæglega getað bætt við mörkum. Þeir gerðu það þó ekki og heimamenn heilt yfir heppnir að sleppa í hléið bara einu marki undir.
Willum gerði tvær breytingar í hálfleik, Barry Smith fór útaf og einnig Einar Marteinsson og inná komu Henrik og Baldur Ingimar. Þeir fóru á sinn hvorn kantinn og Rasmus Hansen og Bjarni Ólafur fóru í vörnina. Miklar tilfæringar en þær áttu eftir að skila sér í því að liðið varð þéttara og gat betur varist hröðum upphlaupum Keflvíkinga. Valsmenn áttu þó erfitt með að skapa sér virkileg færi, nokkrar góðar sóknir sáust en það vantaði herslumuninn, eða þar til Helgi Sigurðsson reis upp og skoraði af stuttu færi tíu mínútum fyrir leikslok. Frábært hjá Helga sem hefur verið drjúgur undanfarið. 

Nú var tilfinningin í stúkunni sú að Valsmenn gætu tekið þetta en hlutirnir áttu eftir að breytast. Nokkrum mínútum eftir markið átti Baldur Ingimar harða tæklingu og dómarinn mat þetta sem beint rautt spjald. Þetta sló vindinn úr Val talsvert og nú lá beinast við að halda fengnum hlut, sem átti eftir að reynast erfitt. 
Keflvíkingar áttu fyrst skot í slá og svo í stöng. Hinum megin voru Valsmenn nálægt því að taka öll stigin en vippa Helga fór rétt framhjá. Lokastaðan varð því sú að bæði lið fengu eitt stig. Við Valsmenn verðum að taka það góða frá þessum leik. Jafntefli við topplið deildarinnar sem er að spila mjög góðan boltann eru ekki alslæm úrslit. Auk þess vorum við undir stóran hluta leiksins og sterkt að ná að jafna og hleypa Keflvíkingum ekki of langt frá okkur. Þetta er allt opið ennþá. 

Aðeins um dómara leiksins. Garðar Örn dæmdi þennan leik mjög vel ef undan er skilið rauða spjaldið á Baldur. Allan leikinn hafði Garðar séð í gegnum fingur sér með nokkur brot sem hefðu vel getað verið spjöld og leyft leiknum að fljóta mjög vel. Svo kemur að brotinu hjá Baldri sem er hægt að lýsa sem harðri tæklingu en alls ekki hættulegri. Miðað við línuna sem var í leiknum þá var þetta bara gult spjald, aldrei nokkurn tímann rautt. Þetta er ansi blóðugt því Baldur er að koma upp úr meiðslum og að spila sig í form og þetta er slæmur tímapunktur til að missa hann í bann.

Að lokum er ekki hægt annað en að minnast á Pálma Rafn. Hann lék í gær sinn kveðjuleik og fékk viðurkenningu frá Stuðurum í leikslok. Pálmi hefur leikið frábærlega þetta tímabilið og skemmt okkur Völsurum vel. Hann á svo sannarlega fullt erindi í atvinnumennsku og óskum við honum alls hins besta þar og þökkum honum um leið fyrir frábærar stundir og frábærar minningar.

Digg    Facebook   
Besservisserar (12)add comment

KRingur said:

...
Enn og aftur vill enginn koma til vals. þetta er farið að verða hálfvandræðalegt fyrir ykkur. Þið reynið við allt sem hreyfist en samt kjósa menn frekar að ganga til liðs við stóra bróður.
Nægir að nefna þá Atla Jó, Jónas Guðna, Guðjón og nú Bjarna.
13:03 | 28 júlí | 2008

stuðari said:

...
einmitt - einhvern vegin hefur kr yfir ótúlegum peningum að ráða sem gerði útslagið með bjarna. Það vill enginn fara í kr nema að fá nógu mikið borgað.

auk þess er kr að lofa leikmönnum fast sæti í byrjunarliðinu sem hefur aftur áhrif á gengið liðsins.

það þýðir ekkert að rökræða þetta við kringa þeir halda að þeir séu fallegastir. þessir leikmenn fara bara í kr og geta ekkert eftir það - koma síðan í Val og blómstra
13:55 | 28 júlí | 2008

GJ said:

...
Þetta er spurning um að spila fyrir 400 hræður sem syngja bara í fjórða hverjum leik eða þegar vel gengur. Eða 2000+ sem styðja þig hvað sem á gengur, flókið val?
17:14 | 28 júlí | 2008

Valur said:

...
nú eru Valsmenn orðnir 400? Vorum við ekki 2?

Þetta er bara enn eitt sem lýsir hrokanum í kr, í síðasta leik - kr-Valur þá vorum um 2000 manns á leiknum og álíka margir stuðningsmenn en heyrðist miklu betur í stuðurum.
17:58 | 28 júlí | 2008

TonyK said:

...
GJ til fróðleiks:
Grindavík-KR: Áhorfendur 770
Grindavík-Valur: Áhorfendur 1137

Ps: Til hamingju með Bjarna hlunk...............
20:45 | 28 júlí | 2008

GJ said:

...
Svo er þessi börkur sem er orðinn frægður fyrir að tala við leikmenn án þess að tala við klúbbana fyrst að verða þreyttasti vitleysingurinn í bransanum. Eini bjáninn sem telur sig alltaf knúinn til að vera með yfirlýsingar til fjölmiðla til að ljúga sig út úr öllum þessum skitum sínum í samningamálum. Willum hlýtur að vera orðinn þreyttur á honum.

Annar þessara leikja var í sjónvarpinu. Þú reynir svo bara að geta hvor það var. Þið náið ekki 1000 hausum á heimavöllinn að meðaltali og það hlýtur að teljast sorglegt fyrir lið sem er íslandsmeistari.
23:13 | 28 júlí | 2008

bjk said:

...
GJ minn. Á þá 6 heimaleiki sem við höfum spilað í deildinni í sumar hafa mætt 7533. Það gerir 1255,5 áhorfendur á hvern heimaleik Vals í deildinni í sumar. Það er samkvæmt minni stærðfræði yfir 1000 hausar á heimavöllinn að meðaltali og yfir meðaltali í deildinni.
Þú ert á góðri leið með að verða þreyttasti bjáninn í bransanum.
00:23 | 29 júlí | 2008

GJ said:

...
Já þetta er meisturum sæmandi. held þið ættuð að drifa í því að byggja hina stúkuna :-D

Og svo efast ég um að þessar tölur stemmi hjá þér, nenni bara ekki að grafa það upp, læt þig um það. Vil hafa þær ready fyrir hádegi á morgun vinur.
00:35 | 29 júlí | 2008

bjk said:

...
Ef þú ferð inn á mbl.is, gras.is eða fotbolti.net tekur oft á móti þér Landsbankadeildarborði. Þar geturðu fengið ýmsar upplýsingar um Landsbankadeildina. Til dæmis má sjá þar að Valur er í 3. sæti deildarinnar með 23 stig meðan KR er fyrir neðan miðja deild, í 7. sæti, með 18 stig. Í þessum sama borða má fá upplýsingar um áhorfendafjölda.
Þar kemur fram að heildaráhorfendafjöldi á leiki í Landsbankadeildinni í sumar er 90211. Meðaláhorfendafjöldi er 1171. Þar kemur einnig fram að heildaráhorfendafjöldi á heimaleiki Vals er eins og áður kom fram 7533. Ef þú lendir í vandræðum með að reikna út meðaláhorfendafjöldann þá gerirðu það með því að deila leikjafjölda (sem er 6) upp í heildaráhorfendafjölda (rétt svar: 1255,5).
Samanborið við áhorfendatölur síðustu tveggja ára, þegar við lékum á Laugardalsvelli, eru þessar tölur frábærar og augljóst að mikill stígandi er í aðsókn á heimaleiki Vals.

P.S. Ekki vina mig.
01:21 | 29 júlí | 2008

KR-ingur said:

...
Til gamans má geta að það mættu 477 áhorfendur á leik Vals í undankeppni meistaradeildarinnar.
Valsarar eru í alvarlegri útrýmingarhættu, en það sem betra er að það er öllum nákvæmlega sama.
Talandi um tölur þá voru yfir 3000 manns á leik KR og Vals um daginn. Þið segið að það hafi heyrst hærra í stuðurum (btw versta nafn sem ég veit um). Ekki blekkja sjálfa ykkur. Það heyrist bara í trommunum og engu öðru.
Það sem mér finnst þó best við Val er að formaðurinn ykkar eða framkvæmdarstjóri eða hvað þið viljið kalla Börk Edward þá er hann ekki einu sinni uppalinn valsari. Maðurinn er uppalinn KR-ingur og því réttnefndur Júdas!!!
09:43 | 29 júlí | 2008

Valur said:

...
kringar eru að skrifa hér að því að þeir vita að Valsmenn eru þeirra mesta ógn. Legg til að menn sleppi að reyna að rökræða þetta enda sjá kringar ekkert nema sjálfan sig.
Edward, Otthar, Börkur og Skúli eru einhverjir mestu Valsarar sem finnast - æfðu með yngri flokkum Vals og allir verið í stjórn.
11:30 | 29 júlí | 2008

KR-ingur said:

...
Það er ekki erfitt að vera mesti valsarinn sem finnst, þ.e. ef hann finnst því eins og þú veist þá eru þeir vandfundnir.
En þeir bræður eru uppaldir KR-ingar.
12:21 | 29 júlí | 2008

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Mánudagur, 21. júlí 2008 09:12