|
Mánudagur, 18. ágúst 2008 01:38 |
Valsarar voru mættir á Hlíðarenda í kvöld til að horfa á sína menn keppa við HK. Væntingar mínar fyrir leikinn voru á þann veg að Valsmenn myndu halda áfram því rönni sem þeir höfðu verið á í síðustu leikjum og vinna góðan sigur. Við þetta bættist að Valur hafði tapað illa fyrir HK í fyrri umferðinni og að þeir myndu vilja bæta upp fyrir það í kvöld. Þessar væntingar stóðust ekki því Valsliðið var hreint út sagt hörmulegt og átti ekkert skilið út úr þessum leik.
Helgi Sigurðsson var kominn í byrjunarliðið á nýjan leik eftir smá fjarveru og úr liðinu fór Sigurbjörn Hreiðarsson vegna leikbanns. Helgi fór í framherjann og Albert Ingason fór á hægri kant. Bjarni Ólafur var svo aftur kominn inná miðja miðju. Leikurinn byrjaði rólega og lítið var að gerast. HK-liðið lá aftarlega og Valsarar virtust ekki hafa nokkra hugmynd um hvernig ætti að bregðast við því. Gummi Ben var einn af fáum leikmönnum liðsins sem var að spila að eðlilegri getu og hann átti fyrsta færi leiksins þegar Gunnleifur markvörður HK náði að verja hálfmisheppnaða hjólhestaspyrnu Gumma frá markteig. Gummi átti svo fínt skot nokkru síðar en Gunnleifur varði boltann í horn. Annars gerðist lítið á vellinum og gæðin voru mjög lítil. Markalaust í hálfleik og menn trúðu ekki öðru en liðið myndi koma dýrvitlaust í seinni hálfleikinn.
Nýr hálfleikur, sama sagan. Ekkert að gerast og sendingarnar fáránlega slappar. Barry Smith fór útaf fljótlega í seinni hálfleik og Baldur Ingimar kom inná. Bjarni Ólafur var færður í vörnina og Baldur tók stöðu hans á miðjunni. Áfram gekk ekki neitt og þegar HK komst yfir á 60. mínútu voru menn orðnir mjög áhyggjufullir og pirraðir. Valsmenn höfðu fengið aðvörun nokkrum mínútum fyrr þegar HK-maður slapp í gegn en Kjartan náði að redda því. Hinum megin leystu HK-menn þau fáu próf sem Valur lagði fyrir þá með léttum leik. Valsmenn náðu varla að ógna markinu og fengu aldrei opið færi og þannig skora lið ekki mark. Niðurstaðan 1-0 tap á heimavelli fyrir botnliðinu.
Leikurinn og spilamennskan í kvöld var ekki meisturum sæmandi. Mikill meirihluti leikmanna var að leika virkilega illa í kvöld og virtust engan veginn tilbúnir í slaginn. Einnig vekur það furðu að Willum lætur Albert Ingason spila á hægri kanti meirihlutann af leiknum. Albert hefur leikið vel frammi í síðustu leikjum en hann er enginn kantmaður. Hinum megin kom ekkert frá Henrik og á miðri miðjunni var ekkert að gerast. Baldur Ingimar er settur á miðja miðjuna en hann hefur hingað til verið bestur á kantinum þannig að það var margt skrýtið við þetta í kvöld.
Valur er núna búið að tapa tvisvar í sumar fyrir HK sem eru nóta bene einu sigurleikir HK. Þetta er bara of dýrt og þetta skilur á milli Vals og toppliðina í deildinni í dag. Það er gömul klisja að segja að allir leikir séu erfiðir og að þetta sé erfið deild en sem Íslandsmeistarar þá gera stuðningsmenn kröfu um sigur í svona leik. Í staðinn kemur versta frammistaða liðsins í mörg ár.
Næsti leikur liðsins er á útivelli á móti Breiðablik og ef ekki á illa að fara þar þurfa menn að koma betur stemmdir, betur undirbúnir og leika allavega nálægt eðlilegri getu. Menn þurfa að rífa sig upp og þá vonandi verður hægt að tala um þennan HK leik sem slys.
 |
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 18. ágúst 2008 12:49 |