• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Helgi þaggaði í KR
Föstudagur, 11. júlí 2008 14:54
Á árum áður var Frostaskjól sá útivöllur sem reyndist okkur einna erfiðastur. Frá 1991 til 2003 unnum við ekki einn einasta sigur þar á bæ en mark á lokamínútunni frá Garðari Gunnlaugssyni í bikarkeppninni 2005 braut þá grýlu á bak aftur. Á síðasta tímabili sigruðum við bæði í deild og bikar vestur frá og í ár náðum við gríðar mikilvægum stigum með 1-2 sigri. Þrjú stig skilja okkur nú frá toppliðunum sem leika um helgina og segja má að Íslandsmótið sé orðið galopið eftir brösuglega byrjun.

Leikmenn Vals voru mun meira sannfærandi en heimamenn framan af leik. KR-ingar héldu sig aftarlega og treystu á sprengikraftinn í Guðjóni Baldvinssyni í framlínunni. Líklega er um að ræða bestu kaup ársins í pilti og Vesturbæingar sannarlega öfundsverðir af þessum skæða leikmanni.

Sóknir Vals þyngdust eftir sem á leið á fyrri hálfleikinn. Miðjumenn Valsliðsins, sem eru kannski ekki þeir snöggustu, voru duglegir að jarða sóknartilburði KR sem voru á sama tíma nokkuð þéttir í öftustu línu. Okkar mönnum gekk hins vegar vel að halda boltanum og þeir Helgi Sig, Gummi Ben og Pálmi Rafn voru alltaf líklegir til að opna vörn KR liðsins. 

Markið lá í loftinu og misheppnað úthlaup Stefáns Loga á lokamínútunni skildi allt eftir galopið fyrir Helga Sigurðsson á miðjum vítateig KR. Markahrókurinn mikli beið ekki boðanna og skallaði boltann inn af stuttu færi. 0-1 fyrir Val og KR-ingar slegnir niður rétt áður en flautan gall.

Stuðningsmenn Vals vonuðust eftir álíka góðum seinni hálfleik og þeim fyrri hjá þeim rauðklæddu en annað átti eftir að koma á daginn. KR-ingar hófu að sækja af miklum móð, ákafir í að rétta sinn hlut. Valsliðið dróg sig aftar á völlinn og brimbrjótarnir þeir Sigurbjörn Hreiðarsson, Bjarni Ólafur og Rasmus Hansen máttu hafa sig alla við til að halda aftur af sprækum heimamönnum. Uppi í stúku var tilfinningin sú að Valsmenn þyrftu að gera sitt til að hanga á þessu eina marki út allan seinni hálfleikinn, því fátt benti til að KR-ingar myndu sleppa tökunum sem þeir voru komnir með.

En einn er sá maður í íslensku deildinni sem býr yfir meiri hraða, sprengikrafti og tækni en flestir aðrir. Sá maður heitir Birkir Már Sævarsson. Eftir um 65. mínútna leik tók hann sprett upp hægri kantinn, lék á nokkra KR-inga og sendi loks eitraðan bolta inn í teiginn. Helgi Sig var óheppinn að hitta ekki boltann en sóknin hélt áfram. Vörn KR hafði riðlast eftir þessa rispu frá Birki og eftir frekari barning barst boltinn á Sigurbjörn sem renndi honum á Bjarna Ólaf. Bjarni slapp óáreittur inn fyrir KR vörnina og sendi hnitmiðaða sendingu á "Hitman-Helga" sem lét ekki annað dauðafæri framhjá sér fara. Staðan 0-2 og KR-ingar slegnir út af laginu, innan vallar sem utan.

Fjölmiðlar hafa skotið föstum skotum á Miðjuna er hún reyndi að níða Helga Sig með afbökuðu lagi um yfirþyngd og elliglöp. Sú fýlubomba sprakk svo sannarlega í andlit þeirra sem tóku undir. Vægast sagt vandræðalegt. Hinum megin fékk Björgólfur Takefusa sín skot frá Stuðrum og svaraði hann með marki og jafnaði í leiðinni félagsmet Þórólfs Beck. Ekki amalegur félagsskapur það.

Lokamínúturnar voru lengi að líða og pressan hjá KR þyngdist eftir því sem á leið. Valsvörnin gaf fá færi á sér en eflaust fengu margir hland fyrir hjartað þegar KR-ingar gerðu óp að dómurum leiksins og heimtuðu vítaspyrnu á Sigurbjörn Hreiðarsson.

Á spjallborði KR-inga eru margir að gera sér mat úr meintri hlutdrægni Jóhannesar Valgeirssonar. Oft er það þannig að maður tekur eftir mistökum dómara í tapleikjum og eru Valsarar líklega lítið öðru vísi hvað það varðar. Jóhannes lét leikinn fljóta vel og missti sig ekki í einhverri spjaldagleði sem vel gat gerst enda stálin stinn að mætast. Viktor Bjarki og Guðjón reyndu á upphafsmínútunum að fiska Jóhannes til að flauta ódýrar aukaspyrnur en hann ásamt línuverðinum (og stuðningsmönnum Vals) voru vel staðsettir í bæði skiptin. Klárlega leikrænir tilburðir hjá Víkingnum og Garðbæingnum þar á ferð. Eins var með meinta vítaspyrnu og "ómark" Björgólfs í stöðunni 0-2. Jóhannes og hinn línuvörðurinn voru upp við atvikin í báðum tilfellum. KR-ingum til málsbóta má segja að stundum falla þessir hlutir með liðum og stundum ekki. Samanber vítaspyrnudómur Kristins Jakobssonar í leik Vals og FH á dögunum.

Undirritaður stóð aftast í stúkunni mest allan leikinn og var í góðu áheyrnarfæri frá báðum stuðningshópum. Miðju hópur KR-inga missti dampinn töluvert á tímabili á meðan Stuðarar höfðu yfir meiru að kætast. Stuðningur KR-inga er frekar takmarkaður við þennan hóp sem hefur á nokkrum fínum lögum að skipa en hinn almenni KR-ingur virðist ekki kunna þau. Valslögin eru á sama tíma einfaldari og auðveldara fyrir fjölskyldufólkið að detta inn í þau. Annars er hljómburður í KR stúkunni þannig að menn heyra mest í sjálfum sér og það er erfitt að yfirgnæfa hinn hópinn þó sumir telji sér trú um annað.

Næsti leikur Vals er gegn toppliði Keflavíkur sem lagði okkur sannfærandi í fyrstu umferð mótsins. Stuðningsmenn Keflavíkur eru okkur að góðu kunnir enda miklir öðlingar þar á ferð. Vonandi verða aðdáendur Vals jafn vel stemmdir þegar kemur í þann leik og í gær. Stigin sem verða í boði eru ekki síður mikilvæg en þau sem við hirtum úr Frostaskjólinu í gær.

Titilbaráttan er því kominn á fulla ferð og tvö landsbyggðarlið aðskilja okkur nú frá forystu sætinu. Enn og aftur; Reykjavík treystir á okkur. 



Digg    Facebook   
Besservisserar (0)add comment

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Föstudagur, 11. júlí 2008 16:07