|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Grísast í Grafarvogi |
| Þriðjudagur, 12. ágúst 2008 01:02 | ||
|
Valsmenn sóttu gríðarlega mikilvæg þrjú stig í Grafarvoginn á mánudagskvöldið í einum spennuþrungnasta leik tímabilsins. Tvisvar komu Fjölnismenn til baka og jöfnuðu eftir að Valur hafði náð forystunni og ef eitthvað var voru heimamenn mun líklegri til að knýja fram sigur. Heilladísirnar voru hins vegar á bandi okkar Valsmanna og mark frá Sigurbirni Hreiðarssyni tryggði að Valur er enn í fullri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn 2008.
Miðað við fyrstu 20 mínútur leiksins virtist Valsliðið ætla að ráða lögum og lofum á vellinum. Sigurbjörn og Baldur Bett lokuðu vel svæðum á miðsvæðinu, Bjarni Ólafur og Henrik Eggerts sköpuðu ursla á köntunum og þeir Gummi Ben og Albert Ingason treystu fjölskylduböndin sem aldrei fyrr í framlínunni.
Fyrsta markið leit dagsins ljós á 12. mínútu þegar Valsarinn í liði Fjölnis, Kristján Hauksson, reyndi að skalla til baka á markvörð Fjölnis sem kominn var langt út fyrir sitt umráðasvæði. Albert Ingason var fljótur að finna blóðlyktina, stakk sér á milli Fjölnismannanna og skoraði auðveldlega. Staðan 0-1 og Valsliðið lofaði góðu.
Stuttu síðar komst Albert aftur í dauðafæri eftir góðan undirbúning hjá samherjum sínum en markverði Fjölnis tókst að verja boltann með bakinu. Eftir þetta atvik fóru heimamenn að komast betur inn í leikinn. Kjartan Sturluson mátti hafa sig allan við þegar hann varði skalla frá markteig og dróg með því Valsliðið inn í búningklefa með hreint skorkort.
Seinni hálfleikur byrjaði fjörlega og jöfnuðu Fjölnismenn eftir að Pétur Markan stakk af flata vörn Valsliðsins sem hafði reynt að fiska hann rangstæðan. Staðan 1-1 og greinilegt að Valsliðið þurfti að spíta í lófana.
Ekki þurftu þó stuðningsmenn Vals að bíða lengi eftir næsta marki. Atli Sveinn Þórarinsson skoraði þá með skalla af stuttu færi og allt lék í lyndi að nýju. Stuttu síðar komst Bjarni Ólafur einn í gegn eftir stungusendingu frá Gumma Ben. Skot hans var ágætt en endaði í innanverðri stönginni öllum Völsurum til mikils ama.
Eftir þetta fóru heimamenn að herða tök sín á leiknum enda hvattir dyggilega áfram af stuðningsliði sínu. Valsliðið fór að draga sig til baka og lét Fjölnismönnum það eftir að stjórna leiknum og eftir tæpar 60 mínútur gaf dómari leiksins heimamönnum glórulausa vítaspyrnu. Leikrænir tilburðir Fjölnismannsins voru hrikalega augljósir og stundum verður hreinlega að efast um heilindi dómara sem dæma á jafn augljósan leikaraskap. Ásmundur Arnarson þjálfari Fjölnis sá engu að síður ástæðu til að kvarta undan dómgæslunni í viðtali á Stöð 2 Sport að leik loknum. Þessi ummæli voru vægast sagt frekar illa tímasett hjá Húsvíkingnum en það hallaði síst of mikið á hans lið hvað dómgæslu varðaði í þessum leik.
Jöfnunarmark Fjölnis úr vítaspyrnunni hleypti fersku blóði í heimamenn sem tóku að sækja án afláts. Valsliðið slapp með skrekkinn margoft eftir því sem sóknir Grafarvogsliðsins tóku að þyngjast. Okkar menn virkuðu hálf hugmyndasnauðir og Willum Þór brá loks á það ráð að skipta inn á þeim Baldri Aðalsteinssyni og Hafþóri Ægi Vilhjálmssyni.
Herbragðið bar tilætlaðan árangur og þegar fáeinar mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma spyrnti Baldur Aðalsteins boltanum fyrir lappirnar á Sigurbirni sem þakkaði pent fyrir sig og potaði boltanum inn af stuttu færi. Þjálfari Fjölnis hélt fram í áður nefndu viðtali að þar hefði verið um rangstöðumark að ræða en sjónvarpsmyndir sýndu svo ekki var um villst að markið var fullkomnlega löglegt. Vandræðlegt í meira lagi fyrir Ásmund sem má þola að éta hatt sinn.
Það er mikill ljóður á leik Vals hversu aftarlega liðið dregur sig í hvert sinn sem það nær forystu. Með fullri virðingu fyrir Fjölni þá er Valur mun betur skipaðra lið sem á að geta tekið stjórnvölin í leik sem þessum. Í staðinn dregur liðið sig til baka og virðist sátt við að verja fengna stöðu þegar það kemst marki yfir, frekar en að láta kné fylgja kviði og ganga frá andstæðingum sínum. Stigin þrjú eru auðvitað gulls í gildi en það þurfti að fara fjallbaksleið til að sækja þau í kvöld. Vonandi mun þetta ekki bitna á þreki leikmanna í næsta leik sem er gegn HK á Hlíðarenda á komandi sunnudag. Þar eigum við harma að hefna eftir fyrr leik liðanna í sumar. Besservisserar (1)
![]()
Valsarí
said:
|
|
... Því miður hefur mfl. flokkur karla í fótbolta ekki sýnt sínar bestu hliðar í sumar. Margir koma á völlinn og borga aðra löppina til þess að horfa á ykkur spila fótbolta. Persónulega finnst mér skemmtilegra að horfa á stelpurnar spila því þær hafa gaman af því að spila fótbolta, þannig á það líka að vera.... Ég veit að þið getið betur, núna má þetta ekki vera bara í kjaftinum, framkvæmið. Áfram Valur |