• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Grátlegt!
Miðvikudagur, 25. júní 2008 09:29
Valsmenn spiluðu vel og stuðningsmennirnir voru flottir.  Það voru hins FH-ingar sem stálu öllum þremur stigunum á Hlíðarenda í kvöld með marki úr víti í uppbótartíma.  Vítið skildi alla eftir orðlausa en eftir markið voru gestirnir glaðir en Valsarar sárir og svekktir.

Valsmenn voru fyrir löngu búnir að átta sig mikilvægi leiksins í kvöld og því var ákveðið að þjappa mannskapnum með hittingi við braggana í Öskjuhlíð um sexleytið.  Menn æfðu raddböndin og fóru yfir málin á meðan menn fengu sér pylsur og gos og mjöð með.  Andinn var góður í fólkinu enda fyrsti stórleikur sumarsins hjá Val í uppsiglingu.  Auðvitað var fyrsti leikur mótsins stór og svo opnunarleikurinn á móti Fjölni en þessi var samt mun stærri.  Andstæðingarnir FH, liðið sem Valur vann titilinn af í fyrra.  Staðan í töflunni svipuð og á sama tíma í fyrra þegar liðin mættust og Valur sneri við taflinu.  Menn vonuðust eftir endurtekningu á því.  Fréttir úr herbúðum Vals gáfu líka ástæðu til að vera bjartsýnn, Barry að braggast og einnig Gummi og Danni Hjalta.

Þegar leikur hófst sást kunnuglegur karl í vörninni hjá Val sem gladdi okkur rauðu mikið.  Barry Smith mættur aftur, karlinn var í alvörunni kominn aftur.  Þetta þýddi að Bjarni var kominn á miðjuna.  Þetta hafði í för með sér miklar breytingar á leik Vals.  Miklu meira öryggi var í vörninni, liðið gat fært sig hærra upp og samt verið öruggt og gamli góði þéttleikinn kominn aftur.  Stemmningin í stúkunni var einnig mjög góð, sú besta á tímabilinu, nýr söngur kominn inn og allt að gerast.  Úti á vellinum vantaði hins vegar færin en baráttan var mikil.  Barry Smith fékk svo gult spjald fyrir nokkuð saklaust brot um miðjan hálfleik en dómari leiksins, Kristinn Jakobsson, sá svo ekki ástæðu til þess að spjalda Tommy Nielsen fyrir miklu verra brot á Helga Sig.  

Í seinni hálfleik fóru Valsmenn menn að herða á skrúfunum.  Á löngum köflum héldu þeir FH í járngreipum og yfirspiluðu þá.  Valsmenn voru nokkrum sinnum nálægt að komast í ákjósanleg færi en oftast vantaði örlítið uppá.  Rasmus Hansen átti góðan sjens um miðjan seinni hálfleik en hann hitti ekki boltann á fjærstöng.  Helgi átti svo fyrirgjöf sem endaði stöng skömmu síðar og nokkrum sinnum náðu FH-ingar að komast fyrir hörkuskot í vítateignum.   Willum lagði svo allt í sölurnar og setti inn Gumma Ben.  Frábært að sjá hann aftur og Valsstúkan lét alla vita sem heyrðu að Gummi er í miklum metum á Hlíðarenda.  Hinum megin áttu gestirnir svo nokkra sjensa en Kjartan sá við þeim öllum.  Allt virtist stefna í markalaust jafntefli þegar Kristinn Jakobsson dæmdi vítaspyrnu á Barry Smith í uppbótartíma.  Kristinn vildi meina að boltinn hefði farið í hönd Barrys en dómurinn kom öllum á óvart.  Eða þannig kannski, Val gengur alltaf illa þegar þessi dómari er með þeim á grasinu þannig að við hverju er búast.  Arnar Gunnlaugs nýtti svo vítið og sorglegt tap staðreynd.

Eins og áður segir, góð spilamennska, góður stuðningur, grátleg úrslit.  Allavega er ljóst að Valur er á réttri leið.  Aðalatriðið að láta þetta leiðindatap ekki slá sig útaf laginu.  Það er fullt af leikjum eftir og margir af þeim verða góðir, það er ljóst.  Næsti leikur á móti Þrótti á útivelli og við munum taka betur á því þegar nær dregur.

Digg    Facebook   
Besservisserar (5)add comment

Jóhann said:

...
(endurpóstað af vefstjóra)
"Þetta væri ekki umdeilt víti ef um einsdæmi væri að ræða"

Tryggvi, þú ert semsagt að segja að þetta hafi réttilega verið víti en eingöngu vegna þess að þér/ (eða Völsurum yfir höfuð) finnst þessi dómari vera ykkur óvinveittur seturðu spurningamerki við vítaspyrnudóminn!

Það er því ekki furða að þér finnist viðkomandi dómari dæma Val í óhag þegar þú viðurkennir að réttir dómar hjá honum séu rangir þegar þeir snúa að Val.

Til hamingju!
10:58 | 26 júní | 2008

Tryggvi said:

...
Sæll Jóhann. Menn þurfa ekki að horfa á marga fótboltaleiki til að sjá að atvik eins og þessi vítaspyrnudómur geta fallið á báða vegu hjá dómurum. Stundum er dæmt og stundum ekki og oft er ekki einu sinni samræmi í sama leiknum. Þegar Kristinn hefur dæmt leiki hjá okkur á síðustu árum þá fellur varla nokkurt einasta vafaatriði með Valsmönnum. Um það snýst ósættið og flestir Valsmenn eru komnir með nóg af þessu.
10:58 | 26 júní | 2008 | url

Trifon said:

...
Saelir,

eg legg til ad Studarar taki sma snuning a Kidda Jak. Tad er longu ordid timabaert ad bua til lag um kappann. Tyrfti ekki ad vera aberandi ljott, en maetti vera i hadston. Svo vaeri gaman i naestu leikjum sem ad KRistinn daemir hja okkur ( sem verda eflaust fjolmargir ef eg tekki KSI rett), ad vera med einhvern gjorning honum til heidurs. Hvernig vaeri ad utbua storan banner sem segir "Kidda ti Irak ", eda veifa storum raudum spjoldum a tennan jolasvein.

Tad er bara ollum ljost sem tad skoda, og hvet eg einhvern tolugloggann til ad ryna i tolfraedina, en vinningshlutfall Vals sidustu tvo ar, snyst vid i teim leikjum sem KRistinn daemir.

Eru menn ekki uppfullir af hugmyndum um hvernig vid getum vakid athygli a tessu, og gert honum lifid adeins meira leitt ?
11:30 | 26 júní | 2008 | url

ÍA-MAÐUR said:

...
Hef nú séð hann dæma hjá ÍA og Val. þar hefur hann ekki bein verið óhliðhollur ykkur. líkt og á laugardalsvellinum í fyrra þegar þið vælduð yfir því að hann hafi rætt við Gauji. Hann gerði það vegna þess að Willum er ekki smaræðuhæfur á meðan leik stendur. Öskrar og gargar á allt og alla.
Man lika vel eftir leik hja ÍA-Val 2006. þá var Bjarki Gunnlaugs tæklaður út á hlaupabraut af Barry smith. ekkert spjal. næstu sókn á eftir fær leikmaður boltann í höndina, sem var algjörlega óvart þar sem viðkomandi leikmaðr vaar að hlaupa í aðra átt. Spjald. svipað gerist við valsmann, sleppt. Bjarki Gunnlaugs sparkar bolta í burtu i fyrrihálfleik, réttilegt spjald. Pálmi Rafn gerir það sama skömmu síðar.. ekkert spjald. Pálmi Rafn tekur tveggja fóta tæklingu á Pálma Haraldsson. Rétt dæmdi aukaspyrnu. Pálmi seinn í tæklingu spjald.
Þannig að þið getið ekki sagt það að hann sé alltaf að dæma gegn ykkur. hér hef ég nefnt mímörg dæmi.
Vill taka það fram að ég hef ekkert á moti val, síður en svo..
Allt svona "djöfulsins fíflið þitt" commennt tek ég ekki mark ásmilies/smiley.gif
Áfram ÍAsmilies/smiley.gif
03:06 | 27 júní | 2008

Rúnar said:

...
Svona til að æra óstöðugan þá er vert að minnast á grófasta tilfellið af samskiptum kr ingsins við Val. Vítið sem hann gaf Ingvari Ólafs í verðlaun fyrir leggjast á hnén í leiknum við Fram fyrir nokkrum árum. Gerðist síðan svo sauðþrár að neita að viðurkenna mistök eftir leikinn þrátt fyrir ótvíræðar upptökur að atvikinu.

KRistinn er ofmetnasta fyrirbæri í íslenskri knattspyrnu.
13:19 | 30 júní | 2008

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 25. júní 2008 09:29