• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Góður sigur í Dalnum
Föstudagur, 29. maí 2009 00:38
Image
Valsarar voru mættir í Laugardalinn á leik tveggja Reykjavíkurstórvelda Fram og Vals í kvöld.  Bæði lið höfðu staðið sig töluvert undir væntingum og uppskera beggja liða fyrir leikinn voru mögur fjögur stig.  Því var um sannkallaðan sex stiga leik að ræða og tækifæri fyrir liðin að rétta skipið aðeins af.


Valsmenn gerðu róttækar breytingar á liði sínu.  Kjartan Sturluson þurfti að víkja sæti í markinu og inn kom hinn efnilegi Haraldur Björnsson.  Guðmundur Mete kom inn í byrjunarliðið fyrir Reynir Leósson sem meiddist á móti Grindavík.  Hafþór Ægir kom inná vinstri kantinn og Ólafur Páll var settur aftur á hægri kantinn en Baldur Aðalsteinsson var meiddur.  Helgi Sigurðsson var hvíldur en í stað hans kom Guðmundur Steinn sem fékk að vera nokkuð laus á milli miðju og sóknar.

Það var kalt og nokkur vindur þegar flautað var til leiks.  Valsmenn léku undan vindi í fyrri hálfleik.  Jafnræði var með liðunum framan af.  Liðin gáfu fá færi á sér og fóru frekar varlega af stað.  Ef eitthvað var þá frumkvæðið Vals en það var mjög lítið.  Fyrsta markverða atvik leiksins gerðist á 20. mínútu en þá skoraði Fram.  Það kom eftir skyndiupphlaup þegar þeir fóru upp vinstri kantinn.  Hjálmar Þórarinsson komst inní teiginn og renndi boltanum þvert yfir teiginn þar sem Paul McShane kom og renndi boltanum framhjá Haraldi.


Valsmenn fóru aðeins á hælana við þetta og Framarar settu töluverða pressu á þá.  Þeir voru nálægt því að komast í 2-0 skömmu eftir markið en þá bjargaði sláin gestunum eftir skot frá Hjálmari.  Valsmenn náðu þó að jafna sig fljótlega eftir þetta og aftur komst jafnvægi á leikinn en hinsvegar gekk Hlíðarendamönnum illa að komast í færi.  Það var svo á 43. mínútunni, gamla markamínútan, þegar Valsmenn fengu aukaspyrnu á miðjum velli.  Mete tók spyrnuna og setti boltann inná vítateiginn og þar reis fyrirliðinn Bjarni Ólafur upp og skallaði boltann aftur fyrir sig í markið.  Frábært hjá Bjarna og frábært fyrir Val að ná að jafna þetta fyrir hlé og stilla svo strengina betur í hálfleik.

Valsmenn hófu seinni hálfleikinn vel og hann var ekki nema fimm mínútna gamall þegar Marel Baldvinsson var búinn að koma Val yfir.  Ólafur Páll hafði þá fengið boltann á hægri kantinum, sent góðan boltann á fjærstöng og þar var Marel betri en Auðunn Helgason og skallaði boltann í netið.  Gott mark.

Framarar reyndu að svara þessu og áttu ágætt skot utan að velli en það fór rétt framhjá.  Þetta var í raun síðasti alvöru sjens Fram í leiknum því eftir þetta voru Valsmenn mjög þéttir og stjórnuðu leiknum.  Valur hefði hæglega getað komist í 3-1 þegar 20 mínútur voru eftir en þá átti Marel skot í stöng úr dauðafæri í teignum.  Eftir þetta reyndu Framarar að setja pressu en það gekk illa og Valsmenn áttu í raun ekki í neinum erfiðleikum með að halda þetta út og lönduðum góðum og mikilvægum útisigri í Laugardalnum, 2-1.

Sigurinn í kvöld var gríðarsterkur og á móti ágætu liði á erfiðum útivelli.  Það er mikill munur á að vera með fjögur stig eftir fimm leiki eða sjö stig eftir fimm leiki.  Willum fær hrós fyrir að taka af skarið og skipta um markvörð, en þannig ákvörðun er ekki auðveld.  Hann verðlaunaði einnig Guðmund Stein fyrir frammistöðuna á móti Grindavík með því að setja hann í byrjunarliðið og Guðmundur þakkaði fyrir sig með fínum leik.  Heilt yfir áttu allir leikmennirnir fínan dag.  Haraldur var öruggur í markinu, hvort sem var í úthlaupum eða spyrnum frá marki.  Vörnin var fín og gaf fá færi á sér.  Miðjan var ágæt einnig og Hafþór var með góða baráttu á vinstri kanti.  Guðmundur Steinn var eins og áður segir góður og ógnandi og Marel er síðan mjög erfiður uppá topp.  Marel virtist reyndar vera eitthvað haltur þegar honum var skipt útaf og vonandi er það ekki alvarlegt.

Sigurinn í kvöld færir liðinu vonandi mikið sjálfstraust eftir frekar erfiða byrjun á mótinu.  Ég var ekki nógu ánægður með leik liðsins á móti Grindavík en ég var sáttur með leikinn í kvöld og skyndilega lítur staða liðsins mun betur út.  Vonandi er hægt að byggja á þessu og taka þrjú stig í næsta leik á móti Þrótti á heimavelli og fara þannig í landsleikjahléið á góðu róli.

Digg    Facebook   
Besservisserar (0)add comment

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Sunnudagur, 31. maí 2009 23:33