Nokkrar breytingar voru á liði Vals frá leiknum á móti Bate í Evrópukeppninni. Kjartan var sem fyrr í markinu og Rene og Rasmus í bakvörðunum. Atli var í miðverðinum og fékk Barry til liðs við sig aftur. Bjarni Ólafur var á vinstri kantinum, Henrik á þeim hægri. Sigurbjörn og Baldur Bett sáu svo um miðjuna. Frammi voru svo Helgi og Gummi.
Valsmenn léku undan töluverðum vindi í fyrri hálfleik. Þeir stýrðu ferðinni að mestu og pressuðu heimamenn nokkuð hátt. Grindvíkingar reyndu að treysta á skyndisóknir til að byrja með og fengu fyrsta færi leiksins en Kjartan sá við því. Á 21. mínútu skoraði svo Henrik Eggerts fyrsta mark leiksins og fyrsta mark sitt fyrir Val með góðu skot eftir hornspyrnu. Valsmenn voru varla hættir að fagna markinu í stúkunni þegar þeir fengu víti. Varnarmaður Grindvíkinga var með boltann í teignum sínum og ætlaði að hreinsa útaf en tókst ekki betur til en svo að hann skaut boltanum í höndina sína og vítaspyrna staðreynd. Helgi Sig steig á punktinn og skoraði örugglega. 2-0 og útlitið gott.
Grindvíkingar voru þó ekki á því að gefast og minnkuðu muninn fljótlega í 2-1. Framherjinn þeirra Ondo náði að böðlast í gegnum vörnina og setti boltann í netið. Eftir þennan fjöruga kafla róaðist leikurinn talsvert og Valsmenn fóru í hléið með eins marks forkskot.
Grindvíkingar fengu vindinn í bakið í seinni hálfleik en það breytti litlu, Valsmenn stýrðu ferðinni áfram. Gummi Ben átti fyrst sendingu á Helga sem komst í ágætt færi en nýtti það ekki. Seinna átti Gummi svo aftur fína sendingu, þetta skiptið á Bjarna Ólaf sem náði boltanum á undan markverði Grindvíkinga, komst upp að endalínunni og náði að setja hann í netið. Laglegt hjá Bjarna og góð sending hjá Gumma.
Tveggja marka forskot aftur en heimamenn minnkuðu það aftur í eitt mark fljótlega. Leikmaður þeirra, Stolpa, fékk sendingu inn fyrir vörn Vals og sett boltann í netið. Valsáhorfendur vildu rangstöðu þarna en markið stóð og leikurinn galopinn aftur.
Willum setti Hafþór Ægi inná eftir þetta og hann var ekki lengi að setja mark sitt á leikinn með því að krækja í vítaspyrnu. Helgi steig aftur á punktinn og skoraði aftur. 4-2 staðan og nú hlaut þetta að vera komið. Valsmenn héldu áfram að sækja og Guðmundur Steinn, sem kom inná sem varamaður, átti flottan sprett og flott skot en því miður hafnaði það í stönginni. Það var svo komið fram yfir venjulegan leiktíma þegar týndi sonur Grindavíkur sem sneri aftur skoraði laglegt mark úr vítateignum. Valsmenn tóku svo miðju, brunuðu fram og Helgi Sig skoraði þriðja mark sitt, eftir sendingu frá Gumma Ben. Lokastaðan 5-3 í stórskemmtilegum leik.
Það var margt gott við leikinn í kvöld. Framlínan var flugbeitt og menn eins og Henrik Eggerts og Bjarni Ólafur voru að leika vel. Eins var samvinna Gumma og Helga frábær. Svo lítur Guðmundur Steinn líka vel út, lék vel á móti Bate og kom svo aftur ferskur inn í kvöld. Helgi hefur líka verið duglegur að setj´ann undanfarið og er orðinn sjóðandi heitur. Næsta fórnarlamb hans er Fylkisvörnin. Þar eiga Valsmenn harma að hefna eftir slæmt tap í Árbænum í fyrri umferðinni. Meira um það síðar.