• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Fyrir horn...
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Mánudagur, 09. júní 2008 15:27
Léttirinn var mikill þegar arfaslakur Magnús Þórisson, dómari leiksins á Hlíðarenda í gær, flautaði til leiksloka. Vægast sagt var þar um að ræða langslakasta mann vallarins, sem virtist á köflum hafa mætt á Vodafonevöllinn til að sporta nýju fínu dómaraflautunni sinni, svo ótt og títt blés hann í hana, og verður vægast sagt að játast að dómar hans voru svo sannarlega ekki að falla með Valsmönnum. Menn voru enda að ræða það í stúkunni hvenær kauði færi nú bara að gefa Blikum vítaspyrnu, og þurftu svosum ekki að bíða lengi eftir því, en eftir að Bjarni Ólafur hreinsaði frá marki Vals, hljóp Magnús til, blásandi í nýju flautuna sína og dæmdi vítaspyrnu á algjörlega óskiljanlegan hátt og fyrir engar sakir.
Eitthvað hefur dómurinn setið í Kópavogsprinsinum, enda átti Kjartan Sturlu í engum vandræðum með að verja lélega spyrnu hans, en hugsanlega hefur samviskan verið að naga Prinsinn, því hann er nú oftar en ekki betri en þetta.
Stuðningsmenn Vals voru þó að vonast til þess að flautukonsertinn væri um garð genginn eftir glórulausa vítaspyrnudóminn, en svo var ekki. Eftir að leikmaður Breiðabliks hafði gefið Helga Sig olnbogaskot, og Atli fyrirliði skundað á hans fund til þess að eiga við hann nokkur vel valin orð (sennilega til að útskýra að svona hegðuðu menn sér ekki á Hlíðarenda), fór ekki betur en svo að rólyndismaðurinn Atli Sveinn var skyndilega gripinn hálstaki af e-m götustrák úr Kópavogi og þvínæst rekinn af velli af að því er virtist ölvuðum dómara leiksins, sem þar með kastaði endanlega tólfunum.

Það skal tekið fram, að ástæða fyrir hversu síðbúinn þessi pistill er, er akkúrat að undirritaður vildi sjá atriði úr leiknum sýnd aftur, áður en hann færi að tjá sig um þau. Sjónvarpsupptakan sýndi þó svo ekki var um að villast, að dómarinn og annar línuvörðurinn áttu vægast sagt slakan dag, og verður að setja spurningamerki við það hverskonar skemmdarverkastarfsemi leikmenn og áhorfendur í Landsbankadeildinni þurfa að láta yfir sig ganga í leikjum.

En nóg um dómarann og hans þátt.

Það var virkilega ánægjulegt að sjá til Valsvarnarinnar í þessum leik m.v. þá síðustu, hún virkaði mikið öruggari og ungu varamennirnir sem komu inná virtust falla eins og flís við rass í uppstillinguna, yfirvegaðir og innstilltir í leikinn. Það verður gaman að sjá hvort Einar Marteins komi ekki inní liðið á móti Skaganum, en hann sýndi það í leiknum í gær að hann er góður kandídat í byrjunarlið, fumlaus og öruggur. Ekki er verra að hafa slíkan mann nú þegar Atli Sveinn þarf að sitja af sér bannið vegna þessa fáránlega spjalds sem hann fékk.

Framlínan hjá Val var líka hressari en oft áður, þó að segjast verði eins og er að þessar eilífu kýlingar fram völlinn eru ekki að gera gott mót, enda var sóknin mun þyngri og hættulegri þegar menn spiluðu boltanum með jörðinni og settu pressu á öftustu menn í vörn Breiðabliks. Það virtist enda nokkuð ljóst að þegar Albert, Pálmi eða Helgi sóttu að varnarmönnum blika, þá kom á þá mikið fát sem Valsmenn hefðu mátt spila meira uppá.
Hrósið fær svo Pálmi Rafn, sem er að stíga upp sem virkilega öflugur leikmaður á þessu tímabili sem mikið er að ske í kringum. Sérstaklega var það áberandi eftir að Valsmenn misstu Atla útaf, hversu mikill baráttumóður var í Pálma, sem og reyndar öllu liðinu, og gott að sjá að Valsmenn missa sig ekki í volæði og vesældóm þótt móti blási, heldur þvert á móti.

Albert Inga opnaði svo markareikninginn að hætti fjölskyldunnar, og efast undirritaður ekkert um að sá reikningur verði hár áður en yfir lýkur, enda er drengurinn með gen af bestu sort.

Annar var þetta nokkuð ánægjulegur dagur í sólinni á Hlíðarenda, góð mæting, góð stemming og góð úrslit, auk dramatíkur sem fékk hjartað til að slá aðeins örar. Allt í allt, ánægjuleg 3 stig eftir alltsaman.

Digg    Facebook   
Besservisserar (3)add comment

GJ said:

...
Verð að hrósa báðum liðum fyrir hörkuleik og stórgóða skemmtun. Kom mér örlítið á óvart hvað var mikil harka í leiknum og var það bara af hinu góða.

Það sem stóð uppúr fyrir mér hinsvegar var b-hliðin á leikmanni #3 hjá Val!!! Skuggalega flott.
08:20 | 12 júní | 2008

Tryggvi said:

...
Mjög smekklega að orði komist GJ. Geri ráð fyrir að þú verðir orðinn fastagestur á Hlíðarenda innan skamms.
09:25 | 12 júní | 2008 | url

Siggi Már said:

...
Vissulega er Pála Marie myndarleg rétt eins og ALLAR HINAR stelpurnar í okkar liði, held að það sé leit að annari eins summu af flottum stelpum á einum stað.
09:12 | 13 júní | 2008

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy