• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Framarar kafsigldir
Föstudagur, 03. október 2008 10:39
Valsarar voru mættir í Vodafonehöllina á Hlíðarenda í gær til að gleyma íslenska efnahagsundrinu í augnablik og einnig til að berja sína menn augum gegn erkifjendunum í Fram. Fyrirfram mátti búast við spennandi leik en annað kom á daginn. Valsmenn léku við hvurn sinn fingur undir taktöfstu trumbuslagi Baldurs Bongó (e.þ.s. Bongólítinn) og völtuðu yfir lánlausa Framara sem áttu aldrei möguleika. Lokastaðan 29-21 og Valur á toppi deildarinnar.
  


 

Strax í byrjun leiks sást að Valsmenn ætluðu ekki að gefa Frömurum þumlung eftir. Um miðjan fyrri hálfleik var liðið komið með örugga forystu. Viggó Siguðursson, hinn geðþekki þjálfari Fram, tók leikhlé um miðjan hálfleik enda leikur hans manna í kaldakoli. Það hafði þó lítið að segja og munurinn milli liðanna hélt áfram að aukast út hálfleikinn. Viggó var þó furðu rólegur á bekknum en líklega þarf gamli jálkurinn aðeins meiri tíma til að ná upp sínum gamla takti á hliðarlínunni.

 

 

 

Valsvörnin reyndist ógnarsterk, bundin saman af Sigfúsi Sigurðssyni og Ingvari Árnasyni og með Ólaf Gíslason í banaformi fyrir aftan sig. Framarar voru gjörsamlega ráðalausir og hvað eftir annað varði hávörnin bolta eða lokaði vel fyrir Ólaf í markinu. Sóknarleikurinn gekk einnig eins og vel smurð vél. Hvort um mulningsvél sé að ræða er ekki komið í ljós en haldi Valsmenn sama dampi geta fá lið veit mikla mótspyrnu.

 

 

 

Munurinn á liðunum var mestur 11 mörk þegar Valur komst í 21-10. Þá hrukku Framarar aðeins í gang en einnig má segja að dómarar leiksins hafi farið að jafna út stöðuna aðeins.  Valsmenn fóru að taka ótímabær skot í sóknni og um leið fóru vafaatriðin að falla með Frömurum. Þó var ekki um neinn skandal að ræða en það vakti samt furðu þegar Sigfús Páll var sleginn í andlitið án þess að fá svo lítið sem aukakast og það þegar dómarinn var í tveggja metra fjarlægð. Einnig fékk Sigurður Eggertsson að bragða á handapati Framara án þess að dæmt væri.

 

 

 

Framarar náðu ágætis leikkafla þegar munurinn var orðinn 11 mörk og sýndu á köflum góðan sóknarleik og náðu að leysa full oft framhjá Valsvörninni. Þeir náðu að minnka muninn í fjögur mörk, 23-19 og virtust til alls líklegir. Hins vegar voru skyttur þeirra ekki í takti við leikinn. Rúnar Kárason sem fór illa með okkur á síðustu leiktíð var ekki svipur hjá sjón og átti fjölda vonlausra skota sem annað hvort vörnin eða Ólafur átti í litlum vandræðum með að verjast. Aðrir Framarar létu lítið að sér kveða. Valsliðið hrökk í gang á nýjan leik og landaði að lokum öruggum sigri.

 

 

 

Öflugastir af leikmönnum Vals voru þeir Elvar Friðriksson, Arnór Gunnarsson og Baldvin Þorsteinsson auk þess sem Óli varði eins og berserkur. Einnig var gaman að sjá Arnar Svein Geirsson sýna lipra takta í hægra horninu en á síðasta laugardag kom hann einmitt inn á í leik Vals og KR í Landsbankadeildinni. Þarna er virkilega efnilegur Valsmaður á ferðinni og verður spennandi að fylgjast með hans framvindu.

 

 

 

Umgjörð leiksins var ein sú flottasta sem boðið hefur verið upp á í mörg ár á Hlíðarenda og eiga stjórnarmenn handknattleiksdeildar sannarlega hrós skilið. Fyrir leik gátu áhorfendur gætt sér á prýðisgóðri fiskisúpu, Subway bátum ásamt einum léttum. Í leikhléi var einnig boðið upp á bakkelsi og með því. Glæsilegt í alla staði og voru viðstaddir heldur betur sáttir. Einn stjórnarmanna staðfesti í spjalli við http://valsarar.is að stefnt sé að því halda þessu áfram í vetur og er það vel.

 

 

 

Næsti leikur liðsins er gegn FH í Kaplakrika á komandi fimmtudag.

 

Digg    Facebook   
Besservisserar (2)add comment

Guðmundur Albertsson said:

...
Farið hefur fé betra !

Annars átti fyrir löngu að vera búið að stoppa þessa fjöldavæðingu íslenskra knattspyrnuliða. Það mátti ekki byggja blokk í úthverfi þá ar búið að stofna knattspyrnulið.

Nú ætti til að mynda að ganga lengra - leggja niður Víking og Þrótt, og láta Valsmenn taka yfir það svæði.
12:03 | 09 október | 2008 | url

Tryggvi said:

...
Sitt sýnist hverjum auðvitað í þessum efnum. Stuðningsmenn liðanna virðast kæra sig kollótta um þessar þreyfingar. Á mæspeis.com/geiramenn skrifar ónefndur Framari eftirfarandi:

Hvað á það að þýða að einhverjir sauðir í stjórn FRAM séu að hugsa um að skeyta stórveldis klúbbi saman við einhvern smá klúbb sem á ekki neitt, ekki einu sinn sögu.
Það er vandræðalegt að hugsa til þess að vera búinn að vera FRAMari í öll þessi ár og svo allt í einu er það bara tekið frá manni, rétt eins og rífa snuð af ungabarni, það er ljótt og maður gerir bara ekki svoleiðis, það er bara þannig.

Ég tala allavega fyrir mína hönd og örugglega fyrir hönd fleiri manna hér að ef að þessu verður þá mæti ég ekki á fleiri leiki með "FRAM" eða hvað sem þeir ætla að kalla þetta nýja fyrirbæri!

Áfram FRAM!!!


Á spjalli Fjölnismanna finnst enginn sem hefur áhuga á þessu:


Mér finnst þetta vera kjaftæði, að ætla að sameinast Fram er algjör steypa.

Hafa Grafarvogsbúar ekkert stollt. Við erum 20 ára gamalt félag, spilum í úrvalsdeild, höfum spilað tvisvar bikarúrslitum. Það er mjög gott miðið við að félagið sé 20 ára. ....

....Miðið við efnahagsástand eru Framarar ekki að fara að gera miklar framkvæmdir í Úlfarsárdal þeir hafa hvorki heimavöll og ekki nálægt jafn gott æfingasvæði og Fjölnir. Þá vilja þeir fara að blanda sér inn í okkar rekstur því að þeir sjá sér ekki leið út úr kreppunni.
Grétar Atli Davíðsson

------------------------------

Sammála þetta er döpur tilraun Fram sem er á barmi gjaldþrots að komast uppí til okkar láta nýja barnið heita fram og henda svo ookur út. Ég lýsi yfir vantrausti á aðalstjórn Fjölnis að láta sér detta þetta í hug.

Annað hitt hvernig á að vera hægt að semja við þjálfara og leikmenn undir þessum ávirðingum eiðum þessu bulli strax þetta verður aldrei.

----------------------------

Verð nú að segja að ég er ekki að skilja hvað aðalstjórn er að hugsa. Þeir ættu að hlusta á fréttir við hann Steinar Þór Guðgeirsson þar sem hann segir að annar meistaraflokkurinn verði lagður niður, ekki er ég tilbúinn að sjá Fjölni detta út úr efstudeild og eins og kemur fram þurkast útaf kortinu.

Eigum við Fjölnismenn að bjarga Fram frá þeirra peningavandræðum, ekki til að tala um.

Hvernig voga menn sér að fara út í viðræður sem þessar, lýsi ég vantrausti á þessa aðalstjórn(aðalóstjórn).

-------------------------------

Fram á hausnum!!! Nýar fréttir og við eigum að bjarga þeim.

"Fréttablaðið, 09. okt. 2008 06:00

Stoðunum kippt undan rekstri Fram

Eigum við að bjarga þeim með kennitölu Fjölnis?

--------------------------------

Það verður aldrei og í rauninni frekja að ætlast til þess að þetta fari svona.Þeir verða að skeyna sig sjálfir.

En hitt er og í rauninni vel gerlegt það er að samnýta aðstöður en það er allt allt annað en að Fram gleipi okkur kemur ekki til greina.

Andskotans bull
---------------------

Tilhugalífið byrjar ekki vel hjá þeim svo ekki sé meira sagt.
17:53 | 17 október | 2008 | url

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 23. október 2008 10:31