|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Fjórða árið í röð í Frostaskjóli |
| Höfundur: Tryggvi Jónsson | ||
| Miðvikudagur, 09. júní 2010 18:28 | ||
![]() Það tók Val 16 ár að brjóta ísinn í Frostaskjóli en síðan þá hafa þrjú stig runnið í stríðum straumi vestur yfir Læk á Hlíðarenda. Eftir að Valur hafði unnið vestur frá 2007, 2008 og 2009 (auk bikarsigra 2005 og 2007) var ekki laust við margir héldu að nú væri komið að KR en þeir verða að bíða í ár eftir deildarsigri gegn Val á heimavelli. Leikurinn fór vel af stað og jafnræði var með liðunum framan af. Eftir tæpan 10 mínútna leik uppskáru Valsmenn aukaspyrnu rétt utan vítateigs. Baldur Aðalsteins stillti sér og tókst að klína boltanum undir varnarvegg KR og í markhornið. Ágætis mark hjá Baldri sem jafnan sýnir sínar bestu hliðar gegn Vesturbæingum. Heimamenn spýttu heldur betur í lófana eftir markið og tóku að sækja linnulaust og komst Kjartan Henry í gott færi en mistókst hrapalega. Skömmu síðar fékk Danni König möguleika á að tvöfalda forystu Vals en varð fótaskortur á ögurstundu. KR tók að herða tökin á leiknum en jafnframt því að fór dómari leiksins að gerast æ skrautlegri. Valsmenn fengu á sig ódýrar aukaspyrnur og spjöld fyrir litlar sakir en lítið var hægt að setja út aukaspyrnu sem Björgólfur Takefusa fiskaði rétt utan teigs eftir um 25 mínútur. Bjarni Guðjónsson sendi stuttan bolta á Óskar Örn Hauksson sem skoraði með hnitmiðuðu skoti neðst í hornið. Staðan jöfn og eftir þetta réðu heimamenn lögum og lofum á vellinum fram að hálfleik en Haukur Páll var þó ekki langt frá því að smygla inn einu marki rétt fyrir hálfleik. Valsarar voru flestir dauðfegnir að hafa haldið jöfnu þegar flautað var til hlés.
Sigurbjörn sýndi sínar bestu hliðar
Í síðari hálfleik tóku fallvötnin að snúast á nýjan leik. KR-ingar héldu eflaust að þeir myndu halda áfram að stjórna af öryggi líkt og í fyrri hálfleik en það var allt annað Valslið sem mætti eftir hálfleiksræðu Gunnlaugs Jónssonar. Menn voru fastir fyrir og skipulagðir en um leið gátu nokkrir leikmenn ekki farið sér óðslega enda með spjöld á bakinu. Eins má segja að Magnús dómari hafi slakað aðeins á smámunaseminni sem einkenndi störf hans í fyrri hálfleik. Talsverð stöðubarátta var á miðju vallarins og KR-ingar virkuðu ívið betri. Sigurbjörn Hreiðarsson var ekki á þeim buxunum að láta það hafa áhrif á sig og á 56. mínútu átti hann gullfallega sendingu inn fyrir KR vörnina sem Arnar Sveinn færði sér í nyt. Arnar tímasetti hlaup sitt fullkomnlega og stakk af Guðmund Reyni bakvörð KR og afgreiddi færi sitt af stakri snilld með hnitmiðuðu skoti yfir norskan markvörð KR. Valsliðið dróg sig aftar á völlinn við þetta mark og leyfði KR-ingum að liggja talsvert á boltanum en lítið kom út úr spili Vesturbæinga sem hafa raðað hverri stjörnunni á fætur annari í lið sitt fyrir þetta tímabil. Engin þeirra virðist hafa það sem til þarf þegar brjót þarf upp stífa vörn og þunglamalegir miðjumenn þeirra hentuðu Bjössa og félögum á miðju Vals fullkomnlega. Leikurinn fjaraði út án þess að KR-ingar næðu að ógna Val að neinu marki og þrjú stig í Frostaskjóli féllu í skaut Vals enn eitt árið.
Maggi Þóris deildi sviðsljósinu en skyggði ekki á úrslitin
Magnús Þórissons stjórnaði flautleiknum og var hann vægast sagt kaflaskiptur. Í fyrri hálfleik dreifði hann ódýrum spjöldum á Valsmenn og var ekki langt frá því að reka Ian Jeffs af velli fyrir glæfralega tæklingu. Jeffs hafði aftur á móti fengið gult spjald skömmu áður fyrir nánast engar sakir sem væntanlega hefur orðið til þess að Magnús sá að sér en KR-ingar voru vitnalega ekki sáttir. Eins hlaut Martin Pedersen gult spjald fyrir mótmæli en þetta er annað spjaldið sem Pedersen fær fyrir mótmæli hjá Magnúsi og í bæði skiptin var um að ræða minniháttar pirring að hálfu Danans. Magnús sleppti nokkuð augljósri vítaspyrnu á KR þegar Atla Sveini var ýtt og eins hefði Grétar Sigfinnur mátt fá í það minnsta tiltal eftir að hann hnakkreifst við Arnar Svein á lokamínútunum að tilefnislausu. Sannarlega ekki til fyrirmyndar hjá fyrrum fyrirliða KR liðsins. Ágætis stemmning var á leiknum og Valsarar í stúkunni fögnuðu að sjálfsögðu innilega að leik loknum. Miðjan eyddi fyrirsjáanlegu púðri í að lýsa yfir hatri sínu á Val en undir lokin fóru að heyrast gól um Guðjón Þórðar. Verði þeim að góðu. Næsti leikur Vals er gegn Selfossi á mánudag. Nánar að því síðar. Besservisserar (1)
![]()
HB
said:
|
|
... Sigurbjörn var frábær á miðjunni og sýndi enn einu sinni hversu mikilvægur hann er fyrir Val. Ef lykilmenn haldast meiðslalausir geta spennandi hlutir gerst í haust. |