• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Þéttir á velli og þéttir í lund
Höfundur: Ásgeir Tryggvason   
Þriðjudagur, 23. júní 2009 14:21
Image
Valsmenn spiluðu sinn besta hálfleik í sumar þegar lið ÍBV var skotið í kaf á upphafsmínútunum á Hlíðarenda í gærkvöldi. Stjörnuleikur hjá fyrrum Fjölnismönnunum þeim Pétri Georg Markan og Ólafi Páli Snorrasyni lagði grunninn að góðum sigri hjá Val sem er hægt og rólega að hífast upp stigatöfluna eftir dapra byrjun á Íslandsmótinu.

Það tók Pétur Georg Markan innan við 10 sekúndur að skora sitt fyrsta byrjunarliðsmark með Val í Pefsí deildinni (© Gaupi ) og Eyjamenn teknir svo illa í bólinu að þeir komust ekki einu sinni í náttsloppana. Glæsileg innkoma hjá Pétri sem átti stórgóðan leik.

Í stað þess að pakka í vörn eins og oft er vaninn héldu Valsmenn áfram að sundurtæta vörn ÍBV og það bar aftur árangur á 9. mínútu þegar Ólafur Páll Snorrason skoraði laglegt skallamark. Áfram hélt pressan fram að hálfleik og flest benti til að stórsigur væri jafnvel í uppsiglingu. Eyjamönnum tókst þó að standa af sér mesta storminn og héldu muninum í tveimmur mörkum.

Stefið varð síðan aðeins kunnulegra í síðari hálfleik hjá Valsliðinu. Vestmanneyjingar færðu sig framar á völlinn og létu vel finna fyrir sér án þess að Þovaldur Árnason dómari hefði kjark í að taka á grófum leik þeirra. Aftur á móti fékk Guðmundur Viðar Mete gult spjald fyrir að eiga orðastað við línuvörð sem benti dómaranum á að spjalda Mete. Þorvaldur hafði ekki fyrir því að spyrja aðstoðardómara sinn nánar út í atvikið heldur fór beint í bókina.

Þó má segja flautumeistara leiksins til hróss að hann tók vel á stimpingum sem einn Eyjamaðurinn vildi fara í við Marel Baldvinsson eftir að sá síðarnefndi hafði stigið Eyjapeyjann hraustlega frá sér. Einnig var Baldur Aðalsteins ákafur eftir innkomu sína en það er ekki við öðru að búast frá Baldri sem leggur sig jafnan allan fram.

Image
Eina sem vantaði hjá Val í gær var að gera endanlega út um leikinn með þriðja markinu. Eyjamenn áttu þannig séð möguleika á að setja pressu á okkar menn með því að læða inn marki en Valsvörnin var samt sem áður firnasterk og Vestmanneyjingar fengu fá afgerandi færi. Síðustu 10 mínúturnar gerðu Valsmenn vel í að drepa niður og stigunum landað af festu.

Enn og aftur stóð Haraldur Björnsson fyrir sínu í markinu og er virkilega gaman að sjá hversu öruggur hann er á velli þrátt fyrir ungan aldur. Haraldur er blessunarlega laus við allar cameru-skutlu-tilhneigingar og haldi hann sig við að gera hlutina jafn einfalt og skynsamlega og hingað til verða honum allir vegir færir.

Pétur Georg var virkilega sprækur og átti heldur betur minnistæða innkomu í byrjunarliðið. Ekki var laust við smá óánægju í stúkunni þegar honum var skipt út af og greinilegt að það er allt á uppleið hjá Pétri eftir erfiða byrjun. Óli Palli var einnig duglegur og vörnin gerði fáa feila. Guðmundur Mete virkar traustur og það er erfitt að sjá hver af miðvörðunum heldur stöðu sinni þegar Steinþór snýr aftur.

Image
Síðuskrifarar á valsarar.is hafa ekki beint verið mestu aðdáendur Willums Þórs undanfarið. Willum vill oft fara helst til örugga leið að hlutunum og er lítið fyrir miklar áhættur í leikskipulagi sínu. Stundum virkar þetta frekar þunglamalegt og oftar en ekki lendum við í óþarfa ströggli með lið sem eiga fyrir fram að teljast veikari.

Í gær var léttleikinn í fyrirrúmi sem kannski má þakka draumabyrjun sem liðið fékk. Þetta er eitthvað sem allir hljóta að vilja sjá meira af og ekki síst þjálfarinn.

Kröfurnar sem við gerum til Willums eru töluvert miklar og eiga líka að vera það. Willum tókst að byggja upp sterkt lið á stuttum tíma og hefur búið við þann lúxus að geta styrkt liðið á hverju ári síðan. Á sínu fyrsta tímabili hjá Val byrjaði Willum með stæl og vann sex leiki í röð í byrjun móts. Liðið endaði í 2. sæti á eftir yfirburðarliði FH og varð síðan bikarmeistari um haustið.

Næsta tímabil var ekkert sérstaklega minnisstætt þar sem FH stakk alla af áður en mótið byrjaði en árið 2007 gekk allt upp hjá liði Willums. Helsti styrkleiki Vals það ár var getan til að ganga frá botnliðunum í Víking, HK og KR án nokkura vandræða. Þetta erum við að sjá FH gera leik eftir leik á meðan Valsliðið er stundum að hafa óþarflega mikið fyrir hlutunum að manni finnst. 

Vissulega tekur tíma að púsla saman nýju liði en segja má að þetta sé smá saman að taka á sig mynd hjá Willum og Þorgrími sem stýrði liðinu í gær. Vörnin er farin að slípast betur saman og ef miðjan hrekkur í gírinn getum virkilega farið að narta í hælana á FH-ingum sem eru í svaka formi þessa dagana.

Fjölmiðlar keppast við að bera mikið lof á Íslandsmeistarana á meðan Valur fær á sama tíma frekar neikvæða umfjöllun. Það er svo sem gott og blessað að hanga í kjölsoginu á Hafnfirðingum ef okkur tekst að skjótast fram úr þeim á endasprettinum líkt og í hitteðfyrra. Til þess að það megi nást þarf liðið að halda áfram að sýna góða sóknartilburði líkt og í gær en getan til þess er svo sannarlega til staðar.

Á fimmtudaginn förum við í heimsókn á gervigrasið í Garðabæ en Stjörnumenn eru með ungt og sprækt lið sem hefur sprengt varnir andstæðinga sinna oft á tíðum í sumar. Það má því gera ráð fyrir að Willum setji öryggið á oddinn enda er Stjarnan skeinuhætt með eindæmum.

Digg    Facebook   
Besservisserar (3)add comment

Ingvi said:

...
Flottur pistill, sammála síðustu málsgrein geri fastlega ráð fyrir svipuðu leikskipulagi og á móti Breiðablik. Framherjar Stjörnunnar eru svo hrikalega snöggir, Hundleiðinlegur fótbolti en virðist virka gegn yngri liðum sem hafa hraða framherja. Verður gaman að sjá hvað gerist.
14:53 | 23 júní | 2009

Beggita said:

...
Flottur pistill....þetta var gaman í gær...liðið er að byrja að sýna karakterinn...vörnin góð og sóknin flott...vantar herslumuninn...tengilið milli varnar og sóknar...og við erum með hörkulið með sjálfstraustið í lagi!!!

Gaman að sjá leikmennina í gær fara framar á völlinn og stundum aðeins úr stöðum...góð skemmtun og árangursrík....tóm gleði!

Gaman að heyra Magga og Tómas Inga tala jákvætt og vel um Valsliðið í Pepsimörkunum í gær...mér finnst þeir alltaf frekar daprir þegar okkar menn eiga í hlut...en Fimleikafélaginu hins vegar hampað endalaust....sama hvernig það spilar....

Hlakka til Stjörnuleiksins á fimmtudaginn og vona að Stuðarar fjölmenni og láti vel í sér heyra!!!!

Sjáumst!!!

ÁFRAM VALUR!!!!
16:47 | 23 júní | 2009 | url

Ási Sveinss said:

...
Verð að segja að stemningin í stúkunni var mjög góð í gær og ábyggilega skemmtilegasti leikur sumarsins hingað til í stúkunni. Tala nú ekki um að það var fullt út úr tjaldi fyrir leik =)
17:03 | 23 júní | 2009

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 12. ágúst 2009 11:08