• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Enn eitt tapið
Sunnudagur, 14. september 2008 12:37
 

Valsarar voru mættir í slagviðrið í Hafnarfirði til að berja sína menn augum í stórslagnum gegn Fimleikafélaginu. Aflabrögð Valsmanna voru rysjótt eins og svo oft áður á þessari vertíð. 3-0 tap niðurstaðan og tölfræðilegir möguleikar á titlinum voru endanlega sendir út í hafsauga.

 
 

 

  

Fáir áhorfendur féllu fyrir gylliboði Actavis um frían aðgang og ókeypis pylsur auka Svala drykkja. Það að leikurinn var í beinni útsendingu hefur eflaust einnig dregið úr mörgum stuðningsmönnum beggja liða. Þeir Valsarar sem sáu sér fært að mæta sátu á víð og dreif upp gömlu stúkuna í Kaplakrika og börðust við að finna sér skjól undan veðri og vindum en kaffi og kökur í hálfleik héldu lífismarkinu í mönnum. Hafnfirðingar jafnan höfðingjar heim að sækja og ekkert út á gestrisni þeirra að setja nema ef vera skildi þaklausar stúkur beggja megin vallar. Til stendur að bæta úr þessu fyrir næstu ár sem veitir ekki af á svona dögum.

 

 

 

Fátt er jafn herðandi fyrir stuðningsmenn en að sitja út keppni í smá óveðri. Valsarar.is hafa svo sem séð það mun verra (líkt og svo oft áður) en veðrið minnti vissulega á leiki á haustdögum árið 2001. Valur tapaði þá m.a. fyrir ÍBV en þá fauk aukaspyrna Bjarnólf Lárussonar af 45 færi inn í markið. Einnig væsti um menn á Kópavogsvelli það sama ár. Það eru þó löngu liðnar martraðir og sú sem hefur átt sér stað þetta árið er hrein hátíð miðað við hvað gekk á fyrir nokkrum árum.

 

 

 

Líkt og í svo mörgum leikjum í sumar hugsaði Valsliðið fyrst og fremst um að spila þéttan varnarleik og taka litlar áhættur fram á við. Í stöðunni 0-0 virtist þetta virka ágætlega og segja má að fyrsta markið hefði allt eins getað dottið fyrir okkar mönnum.

 

 

 

Oft skapaðist hætta upp við mark FH eftir hornspyrnur og í fyrri hálfleik björguðu heimamenn eitt sinn á línu. Valsmenn settu þó aldrei neina verulega pressu á FH-inga framan af leik en sama má segja um andstæðinga okkar. Stálin stinn að mætast og blautur völlurinn gerði báðum liðum erfitt fyrir að byggja upp sóknir.

 

 

 

Á 63. mínútu kom besta færi Vals þegar Guðmundur Bendediktsson skaut boltanum í slánna eftir að hafa tekið stutta hornspyrnu. Aðeins mínútu síðar braut Sigurbjörn Hreiðarsson klaufalega af sér á vítateigshorni Vals. Kjartan stillti þeim Gumma Ben og Hafþóri Ægi upp í varnarvegginn en báðir eru þeir með styttri mönnum í liðinu. Tryggvi gerði sér lítið fyrir og skaut á markið en boltinn hafði örlitla viðkomu í Gumma sem fleytti tuðrunni í netið. Staðan 1-0 fyrir FH og útlitið strax orðið svart enda Valsliðið ekki fláð feitan gölt eftir að hafa lent undir í sumar.

 

 

 

Matthías Guðmundsson skoraði síðan annað mark FH-inga stuttu síðar og gerði þar með út um leikinn. Matthías fagnaði markinu gegn uppeldisfélagi sínu innilega, hljóp að stuðningsmönnum FH og greip um merki félagsins. Greinilegt er að Valsarinn fyrrverandi er orðinn að sönnum félagsmanni í Hafnarfirði og er það vel þó vissulega séu það ákveðin vonbrigði ef horft er á það með Valsara gleraugum.

 

 

 

Tryggvi Guðmunds gekk síðan endanlega frá sigrinum með öðru marki sínu úr aukaspyrnu og aftur hafði boltinn viðkomu í leikmanni Valsliðsins. Kjartan Sturluson leit vægast sagt illa út í því marki.

 

 

 

Jóhannes Valgeirsson dómari stóð sig nokkuð vel en samt má segja að það hafi hallað á Val þannig að FH-ingar komust upp með að vera mjög fagmannlegir í sínum brotum. Margoft tóku þeir lausar tæklingar á vallarhelmingi Vals og komu í veg fyrir hraðar sóknir okkar manna án þess að Jóhannes Valgeirsson tæki á því með spjaldi. Það var ekki fyrr Valsmenn voru farnir að leika svipaðan leik síðustu 20 mínútur leiksins að gjafakvóti Jóhannesar var uppurin. Leikmenn Vals fóru að fá spjöld ótt og títt fyrir samskonar brot og höfðu verið látin óátalin framan af leik.

 

 

 

Augljósasti hausverkur Willums og Vals er auðvitað að hraðinn í liðinu er ekki nokkur. Um leið og við lendum undir þá höfum ekki þennan auka gír til að skipta upp í sama hver andstæðingurinn er. Vissulega hafa sölurnar á þeim Birki Má og Pálma Rafni mikið að segja en það er fleira sem kemur til. Helgi er hættur að geta hlaupið uppi kýlingarnar sem virkuðu svo oft í fyrra og aðrir lykilmenn hafa verið skugginn af sjálfum sér. Mestu munar þó um Helga en árangurinn í sumar hefur haldist í hendur við formið á honum. Um miðbik móts virtist hann vera að komast í gang eftir brösuglega byrjun vegna meiðsla en þau tóku sig síðan upp aftur og þar með fór botnin úr þessu hjá besta leikmanni sem og besta liði Íslandsmótsins 2007.

 

 

 

Margir leikmanna Vals eru að komast á aldur og líklega verða gerðar talsverðar breytingar á liðinu fyrir næsta ár. Gummi Ben sem hefur verið potturinn og pannan í sóknarleiknum síðustu tímabil hefur verið þokkalegur í sumar en það er erfitt að sjá hann draga fram töfrasprottan eitt ár í viðbót ef liðið á komast aftur á toppinn. Barry Smith hefur farið þetta á reynslunni einni saman í ár en líkt og kom fram á http://fótbolti.net á dögunum þá er ólíklegt að hann haldi áfram. Svo er auðvitað spurning hvaða Danir verða áfram á launaskrá félagsins á næsta tímabili þó þeir hafi sumir hverjir staðið sig þokkalega.

 

 

 

Heilt yfir er frammistaða liðsheildarinnar í sumar engu að síður óafsakanleg. Þessu liði var spáð Íslandsmeistaratitli af öllum fjölmiðlum fyrir mót en það er eins og menn hafi byrjað á vitlausum fæti strax í fyrstu umferð og aldrei fundið taktinn.

 

 

 

Annað augljóst vandamál í sumar er að við höfum ekki getað unnið liðin fyrir ofan okkur (Keflavík og FH) og hingað til ekki heldur liðin í þremur neðstu sætunum (Fylki, HK og ÍA). Í fyrra fengum við 18 stig af 18 mögulegum gegn lélegustu liðum deildarinnar (þ.e. KR, HK og Víking). Að sama skapi unnum við báða leikina gegn okkar helstu keppinautum í FH en í ár hafa fallvötnin snúist algjörlega við og ekkert dottið með okkur.

 

 

 

Næsti andstæðingur Vals er Þróttur sem er einmitt kominn í 10. sæti í stað Fylkis. Þar á eftir eru Fram og KR. Vesturbæingar eru komnir fram úr okkur og Safamýrapiltar geta hæglega skotist upp fyrir Val í næstu umferð. Því miður er Valsliðið búið að leika þannig í ár að fáar ástæður eru til einhverar sérstkrar bjartsýni. Liðið má lítið við mótlæti og sköpunarkraftur er vægast sagt takmarkaður.

 

 

 

Ljósustu punktar leiksins voru annars vegar góð frammistaða Guðmundar Steins Hafsteinssonar sem sýndi með mörgum liprum sprettum að þar er framtíðar lykilleikmaður á ferð. Hins vegar var það innkoma Steinþórs Gíslasonar á lokamínútunum sem gladdi augað en hann hefur verið frá keppni í næstum tvö ár. Það er vonandi að meiðslasögu hans sé lokið enda um gríðaröflugan leikmann að ræða sem kemur til með að spila stóra rullu á næsta ári. Spilamennska liðsins fram að fyrsta markinu var alveg þokkaleg og voru Valsmenn síst lakari aðilinn. Ef liðið einbeitir sér að því sem það gerir vel og sýnir kjark í fara meira fram á við tekst vonandi að landa nægilega mörgum stigum til að ná í hið eftirsótta Evrópusæti.

 

 

 

Digg    Facebook   
Besservisserar (4)add comment

sæmundur rokksson said:

...
afsakið, en ertu ekki að gleyma leiknum við Fram?
15:42 | 18 september | 2008

Valþór said:

...
Jú rétt. Þeir eru bara svo forgettable...

Lagað !
16:07 | 18 september | 2008 | url

sæmi rokk said:

...
akkurat, hver þarf fram smilies/smiley.gif
16:11 | 18 september | 2008

Siggi Már said:

...
okkur vantar í besta falli framherja
11:04 | 21 september | 2008

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Sunnudagur, 14. september 2008 13:00