|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Enn ein niðurlægingin |
| Höfundur: Tryggvi Jónsson | ||||||||||||
| Mánudagur, 10. ágúst 2009 14:36 | ||||||||||||
|
Valur mátti sætta sig við enn eitt tapið í sumar þegar Framarar mættu í heimsókn á Hlíðarenda. Fram sem hefur átt misjöfnu gengi að fagna í sumar mætti kokhraust til leiks eins og flestir aðrir andstæðingar Vals undanfarið. Valsliðið gerði lítið til að lækka rostann í blástökkum sem fóru með sigur af hólmi á heimavelli Vals í fyrsta sinn síðan 1998. Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn. Hvorugu liðanna tókst að skapa sér umtalsverð færi lengi framan af en Valsmenn voru eilítið óheppnari með sín færi. Marel átti skalla í slá og skömmu síðar björguðu Framarar á línu í tvígang. Fátt annað markvert átti sér stað í fyrri hálfleik og fóru liðin markalaus inn í búningsklefa. Valsmenn byrjuðu síðari hálfleik ágætlega og uppskáru mark þegar Matthías Guðmundsson hafði átt gott skot að marki sem Hannes Halldórsson réð ekki við. Helgi Sigurðssonar var mættur eins og gammur í frákastið og kom Val yfir gegn sínum gömlu félögum. Liðið leit ágætlega út fram að markinu og Valsarar í stúkunni almennt bjartsýnir á framhaldið. En sú bjartsýni var jafn fljót að hverfa og jómfrú á Þjóðhátíð. Framarar jöfnuðu metin örfáum mínútum síðar og Valsliðið virkaði eftir það eins og flatur bjór, á Þjóðhátíð. Safamýrarpiltar sundurspiluðu heimamenn og skömmu síðar voru þeir komnir í forystu. Valsliðið leit aldrei út fyrir að geta jafnað leikinn þrátt fyrir að um 20 mínútur væru eftir af leiknum. Samspil gekk ákaflega illa og menn voru skrefi á eftir Frömurum líkt og gegn Fjölni, Fylki og KR í síðustu leikjum. Kraftleysið einkenndi liðið eins og svo oft áður og hreint ótrúlegt að sjá hversu lítið menn geta lokað svæðum og sett pressu á andstæðinga í þessari stöðu. Tónlistin sem spiluð voru í hátalarakerfi Vodafonevallarins fyrir leik og í leikhléi voru með heiðurslistamanni Vals, Stefáni Hilmarssyni. Lögin Sódóma Reykjavík og Hvar er draumurinn? á fullu blasti var kannski Freudísk leið vallarþular til að endurspegla skoðun hans á ástandi liðsins. Kannski að Cry me a river verði bætt á lagalistann fyrir næsta leik. En hvað er annað hægt að segja um þetta blessaða lið okkar þessa dagna? Það hvorki gengur né rekur. Vissulega er Atli Eðvaldsson búinn að sýna jákvæða viðleitni í að fá liðið til að spila knattspyrnu en allt kemur fyrir ekki. Leikmannablandan er ekki að virka. Eitt það versta við liðið er hversu margir byrjunarliðsmenn eru komnir á síðasta snúning á ferlinum og erfitt að sjá þá ætla að gera betur á næsta ári. Þessu tímabili virðist í fljótu bragði vera lokið. Vissulega er ekki langt í 4. sætið í deildinni sem gæti gefið sæti í Evrópukeppni en það er varla raunhæft að búast við því miðað við það sem á undan er gengið. Liðin sem Valur hefur mætt undanfarið eru búin að eiga misjöfnu gengi að fagna en þau hafa engu að síður átt í litlum vandræðum með ráðalaust Valsliðið. Undir stjórn Willums var ætlunin að liðið yrði virkilega þétt á velli og gæfi á sér fá færi. Því miður var þetta frekar gloppótt aðferð þegar best lét. Sigrarnir sem unnust voru meira eins og hjá liði í fallbaráttu sem kemst yfir í leikjum og minnti lítið á lið sem ætlaði að vera í toppbaráttu. Menn klíndu inn einu marki og tjölduðu síðan í eigin vítateig og vildu helst halda sig þar. Þetta hefur einnig einkennt liðið hjá Atla þegar það kemst yfir en helsti munurinn fram að því eru menn að reyna að gera eitthvað af viti. Atli Sveinn er til að mynda hættur að dúndra boltanum fram á Marel í hvert skipti sem hann fær boltann og Sigurbjörn er farinn að sýna betri takta með boltann oft á tíðum heldur en undir Willum. Mistökin er þó alltof mörg og liðinu virðist fyrirmunað að snúa leik sér í vil ef það lendir undir, sem reyndar hefur einkennt það í langan tíma. Stjórn Vals var umsvifamikil á leikmannamarkaðnum í vetur og var Valur nánast eina félagið sem gat leyft sér að bjóða 2007 samninga. Það er ljóst að menn fóru í þessi kaup af meira kappi en forsjá. Enginn þeirra leikmanna sem fenginn var til liðsins er búinn að bæta það að neinu marki. Þetta eru þung orð en stundum er sannleikurinn sagna bestur. Valur á ákveðna sjóði vegna lóðarsölu á Hlíðarenda en þeir peningar verða fljótir að klárast ef menn halda áfram á þeirri fjárfestingarbraut sem fetuð hefur verið undanfarið. Ljóst er að miklar hreinsanir þurfa að eiga sér stað að loknu þessu tímabili því stuðningsmenn Vals munu ekki hafa áhuga á að fylkja sér á bakvið lið sem er uppfullt af aðkomumönnum sem hafa lítið fram að færa annað en að hirða síðustu launatékkana á ferlinum. Besservisserar (7)
![]()
Valsarinn
said:
|
|
... Ég ítreka það að Atli verður að fara. Ég sagði að það væru stór mistök að ráða hann og stend við það. Stjórnin líka. |
|
... Stjórnin þarf virkilega að fara hugsa sinn gang og þá meina ég út af leikmannamálum ekki út af ráðningu Atla. Við erum með útbrennda leikmenn í flestum lykilstöðum á vellinum. Það þarf engan snilling til að fatta það að þetta er alveg vonlaust dæmi. |
|
... Mér finnst ótrúlega furðulegt að sjá Valsmenn reyna að blekkja sjálfa sig með að hugsa þetta sem nýtt mót og reyna að ná evrópusæti og þess háttar. Ég held að að það megi teljast gott að valur haldi sig í deildinni miðað við spilamennsku liðsins. Það eina sem getur bjargað því er að Fjölnir og Þróttur eru svo svakalega slök lið að það er fátt sem getur bjargað þeim. En guð hjálpi val ef annað hvort þeirra hrekkur í gírinn. Að ætla sér evrópusæti á kosnað Fram, Keflavík, Breiðabliks, Stjörnunnar eða Fylkis er langsótt. |
|
... Leikmenn Vals verða bara að gjöra svo vel og finna á sér punginn. @Tuddi, ég held að enginn Valsmaður sé að blekkja sig, við erum flestir þakklátir fyrir að vera ekki núþegar komnir í fallbaráttuna. |
|
... Borko mér finnst þú ættir að segja okkur þína skoðun á þessu áður en að ég verð kærður!!! |
|
... 1. Meira hjarta. 2. Lægri meðalaldur. 3. Meiri hraða. 4. Meira hjarta. Reynum að klára þetta tímabil með reisn og tökum svo ærlega til. Hugsum lengra fram í tímann en bara hvernig við ætlum að skrölta í gegnum næsta tímabil. Vinnum að því að byggja upp framtíðarlið. Við erum með mannskap til þess og hljótum að hafa metnað til þess líka. Basic. |