• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Eftir fyrsta leik
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Sunnudagur, 11. maí 2008 15:58
Það er alltaf sérstök tilfinning þegar nýtt tímabil gengur í garð.  Langri átta mánaða bið loks lokið og menn spenntir að sjá hvernig liðið sitt kemur undan vetri.  Fyrir Valsara var ennþá  meiri spenna því í fyrsta skipti í 20 ár hefja Valsmenn mótið sem Meistarar og er það í senn skemmtileg og sérstök tilfinning eftir mörg upp og niður tímabil.  Þetta árið er fyrsti leikur okkar manna í Keflavík þar sem Valur hefur átt góðu gengi að fagna undanfarin ár.  
Valsarar ákváðu að taka daginn snemma og klukkan var rétt rúmlega tvö þegar valsarar.is mættu á Paddys í Keflavík.  Þar tók á móti okkur hin hressa Puma-sveit með Joey Drummer í aðalhlutverki.  Á meðan Keflvíkingar æfðu nokkra söngva ræddu Valsarar um komandi leik og komandi Íslandsmót.  Fleiri stuðningsmenn bættust í hópinn og um þrjúleytið var farið í íþróttahúsið þar sem Landsbankinn var með létt hóf með léttum veitingum. Þjálfarar liðanna héldu stuttar ræður og svo sagði Hemmi Gunn skemmtilegar sögur og brandara og á meðan magnaðist upp spennan.  Frá íþróttahúsinu marseruðu svo Valsararnir á völlinn og gerðu sig klára fyrir hörkuleik.
Okkar menn stilltu upp kunnuglegu liði.  Í markinu var Kjartan.  Birkir og Bjarni voru í bakvörðunum og Atli og Gunnar Einarsson í miðri vörninni.  Danni Hjalta og Rene Carlsen voru á vængjunum.  Baldur Bett og Pálmi voru á miðri miðju og frammi voru svo Helgi og Gummi Ben.  Leikurinn var svo ekki gamall þegar fyrsta markið kom.  Keflvíkingar með óskabyrjun og þeir bættu svo við öðru marki skömmu síðar.  Fimm mínútur búnar og tveir löðrungar á Valsmenn.  Menn í stúkunni spurðu sig hvað væri eiginlega í gangi.  Einfaldasta skýringin var að okkar menn hefðu eitthvað gleymt að mæta til leiks enda versta byrjun Vals í leik undir stjórn Willums frá upphafi.
Eftir þetta komst á þokkalegt jafnvægi í leiknum þar sem Valur var meira með boltann án þess að skapa sér teljandi færi á meðan Keflvíkingar lágu tilbaka sáttir við forgjöfina.  Baldur Bett átti hörkuskot sem leit út vel út en frábær markvarsla reddaði því.  Fyrir utan þetta var fátt um fína drætti og okkar menn voru frekar bitlausir.  Gummi og Helgi náðu ekki ógna mikið og það var greinilegt með Helga að hann á enn eftir að ná sér alveg af meiðslunum.
Staðan 2-0 í hálfleik en menn héldu samt í vonina.  Valur lenti 2-0 undir á heimavelli í fyrra á móti Keflavík en tókst að ná jafntefli þannig að allt gat gerst.  Willum gerði breytingu í hálfleik og Hafþór Ægir kom inná fyrir Danna Hjalta og Rene var færður í bakvörðinn.  
Keflvíkingar byrjuðu seinni hálfleikinn betur, fengu gott færi strax og fengu svo víti eftir tíu mínútna leik.  Þeir nýttu það og staðan orðin vonlítil.  Valsmenn komust þó á blað nokkru síðar þegar heimamenn gerðu sjálfsmark.  Aftur var kominn vonarneisti en bara mínútu síðar var slökkt á honum þegar Guðmundur Steinarsson skoraði eftir að vörnin hafði sofnað á verðinum.
Til gera stöðuna vandræðalegri misstu örfáir stuðningsmenn Vals stjórn á sér við þetta og vildu kenna dómaratríóinu um lélegt gengi.  Plastflösku var kastað í átt að línuverðinum og til varð mini-uppákoma í stúkunni þegar einhver sem leit út fyrir að vera vallarstarfsmaður ætlaði að blanda í sér í málin.  Það bætti ekki stöðuna en smá saman komst ró á þetta.  Alltént var þetta vandræðalegt moment fyrir Valsara, eitthvað sem við höfum ekki verið þekktir fyrir og viljum ekki vera þekktir fyrir.
Úti á velli héldu Keflvíkingar áfram að skora og staðan var 5-1 eftir 78 mínútur og leikurinn átti ekkert eftir að róast.  Valsmenn byrjuðu á að skora þegar Hafþór átti góðan sprett og Bjarni Ólafur bætti svo við marki beint úr aukaspyrnu.  Það var fleygur upp í skeytin og mark sem er kandídat fyrir mark ársins.  Staðan þá 5-3.  Í lok leiks urðu svo Valsmenn fyrir áfalli þegar Hafþór Ægir fékk rautt spjald eftir ljóta tæklingu.  Slæmt mál því Hafþór kom sprækur inní leikinn.  
Valsarar.is gengu nokkuð svekktir frá velli en líka nokkuð hissa.  Slæm byrjun en mótið er langt.  Það er enginn tími til þess að vera að svekkja sig því framundan er leikur við Grindavík og það er leikur sem þarf að vinnast.  Meira um það síðar.

Digg    Facebook   
Besservisserar (16)add comment

Beggita said:

...
Well, fall er fararheill og mótið rétt að byrja, áfallið að fjara út og maður farin að hlakka til næsta leiks....

Það VANTAR sárlega MEIRA FJÖR í STUÐARANA, við getum sko mikið betur en þetta...Koma svo! Hvar er Baldur bongó????
Ef hann er hættur, þarf að finna annann trommara og einhverja lúðra...VIRKJA FÓLK!

Og svo FER maður EKKI af velli þegar illa gengur...það er LÉLEGT!
Það er þá sem liðið þarf MEST á stuðningi að halda!!!

ÁFRAM VALUR!
22:48 | 11 maí | 2008 | url

Óttar Felix Hauksson said:

...
Það byrjaði ekki vel mótið hjá meistaraflokknum og enn ver byrjaði það hjá stuðningsmönnum sem urðu félaginu og sjálfum sér til skammar með framkomu sinni í stúkunni. Ekki beint í anda Sr. Friðriks og alls þess góða sem Knattspyrnufélagið Valur stendur fyrir. Hrópandi ókvæðisorðum að dómara og línuverði allan leikinn og toppa svo skrílsháttinn með að henda hálffullri kókflösku og drasli í átt að leikvellinum. Þarna létu menn kappið svao sannarlega bera fegurðina ofurliði. Valsmenn eiga að vera öðrum til fyrirmyndar í íþróttamannslegri framkomu. Það þarf að láta af þessum skrílshætti umsvifalaust.
17:23 | 12 maí | 2008

Borko said:

...
Þessi uppákoma var alveg út í hróa hött og er ég búinn að skrifa yfirlýsingu frá Stuðurum um atvikið sem verður send á fjölmiðla á morgun.
Ég veit samt satt best að segja ekki hvort mér finnst leiðinlegra að hlusta á menn tuða í dómaranum eða fylgjast með allt of mörgum aðilum sem kalla sig stuðningsmenn Vals sitja með krosslagðar hendur, fýlusvip og láta ekkert í sér heyra.
Annars vil ég óska völsurum.net til hamingju með að vera orðnir valsarar.is. Frábært framtak og fín síða.s
18:50 | 12 maí | 2008

Tonyk said:

...
Ég verð að segja fyrir mitt leit vera komið svolítið leiðinlegur svipur á stuðningsmenn Vals. Í staðinn fyrir að styðja liðið þá einbeita menn sér aðeins of mikið af því að bögga dómarann eða níða andstæðinginn. Það virtust td. annsi margir finnast skemmtilegra að dissa Matta en að fagna Íslandsmeistaratitli.

Svo þetta að menn siti með krosslagðar hendur með fýlusvip þá veit ég ekki hvað menn áttu að vera að gleðjast eitthvað gífurlega þarna á laugardaginn. Það er líka svakalega auðvelt að byrja að mæta þegar vel gengur og vera rosalega "hardcore" en hvar voru þessir menn þegar illa gekk? Spyr sá sem ekki veit.........
23:48 | 12 maí | 2008

Ásbjörn Þór said:

...
því miður komst ég ekki á völlinn vegna vinnu, og náði reyndar ekki að fylgjast neitt með að ráði. Þetta er fyrsti leikur og sá leikur sem tapast í sumar.. eins og alltaf þá er það bara gert með stæl smilies/smiley.gif

Þetta atvik með að kasta einhverju inná á völlinn... að agnúast endalaust í dómaratríó og aðra leikmenn er ljótur blettur sem Stuðarar eru ekki og verða ekki þekktir fyrir. Ef mér skjátlast ekki þá verður sá hinn sami og gerði þetta ekki velkominn á leiki í sumar, nema að hann lofi betrun og helst ætti þessi aðili að senda skriflega afsökunarbeiðini frá sér hið fyrsta.

En að þessu jákvæða. Styrkur okkar Valsmanna mun sjást í næsta leik og er ég þegar farinn að hlakka til þeirrar viðureignar, þá verður sungið og trallað alla leið.. stuðarar sem og allir valsarar.

Og strákar til haminjgu með síðuna, það verður gaman að lesa pistlana hér.

kveðjur
Ási aka NR-15
00:17 | 13 maí | 2008

Trifon said:

...
Sælir,

Mér finnst nú í sjálfu sér eðlilegt að aðdáendur geri athugasemdir þegar dómarar og ekki síst línuverðir eru klárlega vanhæfir og eða hlutdrægir. Það þekkist allstaðar þar sem menn koma saman að styðja sitt lið. Auðvitað er það hluti af leiknum að setja pressu á dómara, ekki síst á heimavelli.
En auðvitað er ég ekki að verja það á nokkurn hátt að menn séu að kasta hlutum inná velli, eða með einhver ólæti. það er ófyrirgefanlegt og ekki í anda Valsmanna.

En mér fannst tilfinnalega vanta hljóðfæraleikarana, ef trommarinn okkar góði er hættur að mæta þarf að finna aðra í staðinn. Það lífgar svo uppá hópinn ef við höfum 2-3 tónlistarmenn í hópnum.
10:40 | 13 maí | 2008 | url

Ingvi said:

...
Ég verð bara að taka undir þetta með að öskra á línuverðina og það þarf ekki einu sinni að ræða atvikið með kókdósina. Þetta var klárlega einn leiðinlegasti leikur sem ég hef mætt á, og þá er ég bara að tala sem stuðningsmaður í stúkunni. Við stuðararnir stóðum okkur illa sem stuðningsmenn og það vantaði sárlega trommur og almennt meiri stemningu. Vissulega getur verið erfitt að vera í stuði miða við hvernig leikurinn gekk fyrir sig en við þurfum, líkt og liðið sjálft að taka okkur saman í andlitinu og gera betur hér eftir.

Og þessir línuvarðarbrandarar og öskur þeirra garð er orðið alveg svakalega þreytt. "Sendum línuvörðinn í sturtuna" þar fram eftir götunum.

Ég vil að við stuðarar byrjum núna að setja okkur tvær reglur.

nr 1. Bannað að henda hlutum í dómarana.

nr 2. hætta að segja lélega og þreytta dómarabrandara sem þóttu voða fyndnir fyrir 20 árum síðan og einbeita okkur frekar að Vals söngvum og almennri hvatningu.

Ég skal taka að mér trommuslátt ef það er eitthvað vandamál.

ÁFRAM VALUR
11:43 | 13 maí | 2008

GJ said:

...
Verð að segja að það er mikil framför að leynifélagið stuðarar sé búið að færa sig yfir í Diet Kókið þó svo að þeir virðist nú ekki vera hrifnir af því beint, svo finnst mér að vífilfell eigi að taka sig til og sponsa ykkur fyrir næsta leik, betri auglýsingu er varla hægt að hugsa sér.

Annars verður ágætum línuverði og dómara vart kennt um hvernig fór. Mín kenning er sú að ágætur stuðari hafi ekki áttað sig á að hann var með Diet Kók við hönd og svo þegar hann áttaði sig varð honum svo um að hann grýtti flöskunni frá sér í tómri geðshræringu...
14:04 | 13 maí | 2008

Árni Gunnar said:

...
Ég verð nú samt að segja að línuvörðurinn átti 3-4 afleitar ákvarðanir í seinni hálfleik, þó því verði ekki kennt um tapið, það eigum við alveg sjálfir. Hann var oft langt á eftir línunni á leið að markinu og sá þarafleiðandi ekki rangstöðulínuna beint.

Ein af þessum slöku ákvörðum varð að marki, 1 algjört dauðafæri og eitt sem varð að engu ef mig minnir rétt.

En við höldum bara áfram og tökum Grindavík á fimmtudaginn !!
16:54 | 13 maí | 2008 | url

Mottan said:

...
Kæru Stuðarar og aðrir sem að félaginu koma,

Í leik Keflavíkur og Vals síðasta laugardag, lét ég kappið ráða og um leið voru orð Sr. Friðriks gleymd og ég henti flösku inn á völlinn. Þetta var einstaklega heimskulegt, og fá ekki orð lýst því hversu mikið ég sé eftir þessu. Leiðinlegast finnst mér þó að hafa orðið Val og Stuðurum til háborinnar skammar. Ég vona að þetta muni ekki hafa áhrif á þetta frábæra starf sem hefur verið unnið hjá Stuðurum og að haldið verður áfram, upp til nýrri hæða.

Ég er alinn upp í kringum Val og elska félagið af öllu mínu hjarta. Ég veit að með tímanum mun þetta gleymast, en ennfremur veit ég að ég mun vinna þetta upp með söngvum og stuðningi í allt sumar.

Látið kappið ekki bera fegurðina ofurliði,

ÁFRAM VALUR.
17:17 | 13 maí | 2008

G-Jör said:

...
Það var vissulega til háborinnar skammar að henda flösku í átt að dómara. En það er líka gjörsamlega óþolandi að við stuðningsmenn sem erum í innsta kjarna sem stóðum allan leikinn og studdum okkar lið þrátt fyrir að það væri að tapa sé lítilsvirt. Við stóðum um það bil 10 manns eftir leikinn og klöppuðum fyrir okkar mönnum á meðan bakkelsis fýlupúkarnir yfirgáfu um leið og flautað var af.

Við erum búnir að hittast á fundum fyrir leiktímabilið og vera að skipuleggja sumarið, keyra til Keflavíkur og öskra allan leikinn. Er þetta virkilega þakklætið?

Skammist ykkar!


Áfram Valur!

Og mætið síðan á stuðningsmannafundi og kvartið þar, sama hvort þið eruð alvöru stuðningsmenn að bakkelsis stuðningsmenn.
17:57 | 13 maí | 2008

Mottan said:

...
Voru flestir löngu farnir....margir sem fóru þegar að Keflavík skoraði 5-1.
18:19 | 13 maí | 2008

laki said:

...
Ekki get ég skililið hvern G-jör er að skamma í sýnum pistli, fyrst hélt ég að hann væri að skamma Stuðara en svo Leikmenn en nú held ég að það séu þeir sem hann kallar bakkelsis stuðningsmenn ! hverjir eru það ? og er það slæmt ? eða hvernig flokkar G-jör okkur Stuðara sem erum fjölskyldufólk og getum/viljum ekki hist og undirbúið okkur á pöbbum bæjarins ? erum við bakkelsis stuðarar? við sem erum svo óforskammaðir að kaupa ársmiða og það á fullu verði ! hættum að skammast út í okkar eigin stuðningsmenn hvort sem þeir velji að fá sér veitingar í hálfleik eða bjór fyrir leik.

Áfram Valur
19:08 | 13 maí | 2008

Tonyk said:

...
Bíddu G-Jör vilt þú meina að þú hafi verið persónulega lítisvirtur vegna þess að flestir stuðningsmenn fóru þegar flautað var af? Þarf orðið að þakka stuðningsmönnum fyrir að mæta á leiki? Þetta snýst ekki bara um að öskra sem hæst, það er fullt af fólki sem hefur mætt á Valsleiki í mörg ár, ef ekki tugi ára, en hafa kannski ekki hæst í stúkunni, eru það þessir svokölluðu "bakkelsis fýlupúkar"?

Ókei, þakka þér fyrir að nenna að keyra alla leið til Keflavíku, hérna er vindill. Reyktu..........
19:10 | 13 maí | 2008

Valli said:

...
Svona svona, eigum við ekki að setja punkt aftan við þessa pælingu, og nigga KR-inga eða Framara í stað þess að nigga hvorn annan hérna.
20:01 | 13 maí | 2008 | url

Borko said:

...
Tek undir með Valla. Við skulum nú aðeins draga andann djúpt og telja upp að tíu. Ég skil ósköp vel að menn skuli láta það fara fyrir brjóstið á sér þegar menn ganga yfir strikið eins og gerðist á laugardag. Ég skil líka ósköp vel að það séu ekki allir í aðstöðu eða stuði til að fá sér bjór fyrir alla leiki og öskra úr sér lungun á hverjum einasta leik. En ég skil jafnvel enn betur að menn skuli láta það fara í taugarnar á sér þegar meira en helmingur áhorfenda er farinn áður en flautað er af og örfáar hræður eftir til að klappa fyrir leikmönnum í leikslok og sýna þeim að við stöndum við bakið á þeim sama hvernig fer.
Það er nokkuð ljóst að við getum gert miklu betur í stúkunni, getum látið heyra miklu betur í okkur og til þess að svo megi verða þurfa allir að taka höndum saman, bæði bjórstuðningsmenn og bakkelsisstuðningsmenn (mér finnst þetta svoldið fyndin skilgreining á stuðningsmönnum smilies/smiley.gif. Látum nú í okkur heyra og verum sjálfum okkur og félaginu til sóma.

P.S. Ási á mikið hrós skilið fyrir að horfast í augu við mistök sín. Ég tek ofan fyrir þér fyrir það og vona að þú hafir lært þína lexíu.
21:18 | 13 maí | 2008

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 13. maí 2008 10:27