|
Föstudagur, 04. júlí 2008 00:00 |
Valsarar eru úr leik í bikarkeppninni þetta árið eftir 1-0 tap á móti Breiðablik í Kópavoginum í kvöld. Valsarar náðu sér aldrei fyllilega á strik í leiknum og frískir Blikar unnu sanngjarnan sigur.
Valsarar voru mættir í Kópavoginn í kvöld til að etja kappi við Breiðablik í 16-liða úrslitum Visabikarins. Menn höfðu vissar væntingar fyrir leikinn enda spennandi að taka þátt í bikarkeppni og tilbreyting frá deildarbröltinu. Valsmenn unnu þennan bikar síðast 2005 menn vonuðust eftir fá samskonar cup-run þetta árið. Síðustu leikir Vals gáfu ágætis fyrirheit enda átti liðið góðan leik á móti FH og fylgdi honum eftir með fyrsta útisigri sínum í deildinni á móti Þrótti. Það sem vann á móti Val var hins vegar staðsetning leiksins og andstæðingarnir. Valur vinnur nefnilega voða sjaldan í Kópavogi og ár og dagar síðan Blikar voru lagðir þar.
Barry Smith var kominn í liðið á ný eftir leikbann en liðið var að öðru leyti óbreytt frá Þróttaraleiknum. Leikurinn fór rólega af stað og fátt markvert gerðist framan af. Erfitt var að sjá hvort liðið var betra og hvort liðið ætlaði sér að taka frumkvæðið. Á meðan þreifingum stóð átti sér stað nokkuð skondið atvik þegar góður dómari leiksins rakst á Pálma og datt á rassinn. Eftir að hann stóð upp og leikurinn hélt áfram lendi svo línuvörðurinn í því að fáninn datt af prikinu hans og var næstum fokinn í burtu. Þar sluppu menn fyrir horn því erfitt er skaffa þessi flögg. En hvað um það. Blikarnir voru að herða tökin og Atli Sveinn þurfti hvern sentimetra sem hann átti til að komast fyrir skot Marels Baldvinssonar um miðjan hálfleik. Nokkru síðar áttu Valsmenn bestu sókn sína í fyrri hálfleik. Vörnin fann Gumma Ben við miðju sem náði að gefa bolta á hægri kant á Birki Má í hlaupi. Valsmenn voru þá komnir fjórir á þrjá og til alls vísir. Birkir gaf boltann á fjærstöng en Pálmi var hársbreidd frá því að komast í boltann og Val yfir. Undir lokin bjargaði svo Kjartan vel eftir hornspyrnu. Eftir að hafa hlýjað sér í hálfleik á malbikinu voru Valsarar aftur mættir í kalda stúkuna fyrir seinni hálfleik. Eitthvað voru Valsmenn værukærir eftir tesopann því Blikar fóru skyndilega að vaða í færum. Flest af því fór í gegnum vinstri kant Vals en Kjartan var vandanum vaxinn í öll skiptin. Hann varði svo aftur vel þegar Blikar áttu góða aukaspyrnu en Kjartan náði að slá boltann yfir, frábær markvarsla. Valsmenn áttu svo gott færi eftir klukkutíma leik þegar Atli Sveinn skallaði boltann ofan á slána. Hinum megin hélt Kjartan áfram að verja og nú frá Marel Baldvins í dauðafæri. Kjartan kom þó ekki í veg fyrir mark Blika sem beint úr aukaspyrnu. Svo virtist sem varnarveggurinn hafi klikkað og boltinn fór beint í gegnum hann. Valsmenn reyndu eftir þetta að sækja en gekk illa að byggja upp pressu og skapa sér færi. Þeir fengu þó eitt gott færi nokkrum mínútum fyrir leikslok þegar Helgi Sig átti skot frá vítateignum en það var varið. Leikurinn fjaraði svo út eftir þetta og Valsmenn úr leik úr bikarnum þetta árið. Heilt yfir var þetta lélegur leikur af okkar hálfu. Liðið var bitlaust og átti nokkuð erfitt með verjast stutta spilinu hjá Blikum. Hann er klassíkur póllinn að segja að við einbeitum okkar bara að deildinni núna. Jú víst er fátt annað að gera núna en þessi bikar er mikilvægur, Valsmenn þekkja það frá fyrri tíð hvað það þýðir að vinna hann. Þess vegna var dálítið skrýtið að sjá leikmenn virðast ekki alveg tilbúnir í leikinn í kvöld. Það er nokkuð ljóst að menn verða að mæta grimmari á sunnudaginn þegar Fram kemur í heimsókn á Hlíðarenda. Meira um það síðar.
 |