• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Bragðlaust og markalaust á Skaganum
Mánudagur, 16. júní 2008 09:07
Það var fátt um fína drætti á leik Vals og ÍA á Skaganum í dag.  Bæði lið gáfu sókninni frí og menn virtust leika á hálfu gasi.  Niðurstaðan gat því aldrei orðið neitt annað en markalaust jafntefli.  Það voru þó nokkrir ljósir punktar við leikinn í dag, eins og Einar Marteinsson í vörninni.
Valsarar voru mættir uppí Keiluhöll um tvöleytið til að hita sig upp fyrir leikinn.  Þar kenndi ýmissa grasa.  Menn fengu sér kaffi, bjór, mulningssnakk og hamborgaratilboð aldarinnar.  Á meðan menn gæddu sér á þessu öllu saman var farið yfir málin og rifjaðir upp gamlar viðureignir við Skagann.  Eftir smá seinkunn á rútunni var svo lagt af stað og menn voru lentir á vellinum rétt rúmlega fjögur.  Menn höskuðu sér uppí stúku og reyndu á leiðinni að átta sig á liðsskipan dagsins.  Kjartan var markinu.  René og Birkir í bakvörðunum og Einar Marteinsson og Bjarni Ólafur í miðri vörninni.  Baldur Bett og Pálmi á miðjunni og Rasmus og Habbó á vængjunum.  Albert Inga og Helgi voru svo fremstir.

Fyrri hálfleikur var tíðindalítill.  Hann var rólegur.  Of rólegur.  Skagamenn áttu eitt fínt færi sem Kjartan varði vel.  Valur vildi fá vítaspyrnu skömmu fyrir hlé en Garðar dæmdi ekkert.  Valsarar sátu í hinum enda stúkunnar og sáu þetta því ekki nógu vel og erfitt að dæma um þetta.  Fyrir utan þetta gerðist ekki mikið.  Liðin voru þétt en vantaði brodd fram á við.  Núll núll í hálfleik.

Seinni hálfleikur: Meira af því sama.  Á köflum var þetta eins og æfingarleikur.  Menn voru á skokkinu og létu næstum eins og engin stig væru í boði fyrir sigur.  Samt var viljinn aðeins meiri hjá Val, þeir pressuðu aðeins er líða tók á leikinn og aðeins meira eftir að Skaginn missti mann af velli.  Helgi Sig átti svo þokkalegt færi skömmu fyrir leikslok en skotið var slæmt og fór framhjá.  Markalaust jafntefli staðreynd.

Björtu punktarnir voru nokkrir.   Valsmenn fengu stig á útivelli, það fyrsta í ár.  Þeir héldu einnig hreinu.  Svo spilaði Einar Marteinsson í vörninni vel og skilaði boltanum einnig vel frá sér.  Þegar Atli kemur inn aftur þá verða þeir flottir saman og þá hægt að færa Bjarna á miðjuna eða vænginn.  Þetta opnar allavega möguleika fyrir Willum sem virðist vera að reyna að byggja upp gamla þéttleikann í liðinu og treystir sennilega á að sóknarleikurinn komi þegar meiddir menn koma aftur.  Við verðum að vona það líka.

Digg    Facebook   
Besservisserar (0)add comment

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy